Vísir - 11.04.1964, Síða 1
I
VÍSIR
54. árg. — Laugardagur 11. apríl 1964. — 83. tb'
Níu venlanir ætluðu að
hafa kvöldsölu í gærkvöldi
— en lokuðu ullur
Biiizt var við einhverjum á-
rekstrum f gærkvöldi milli kaup
manna og samtaka verzlunar-
fólks út af lokunertima söiu-
búða, þar sem reglugerðin nýja
sem heimilar kaupmönnum að
hafa opið til kl. 10 á föstudags-
kvöldum, gat ekki komið til
framkvæmda.
Vísir hafði laust eftir kl. 10 í
gærkvöldi tal af Magnúsi Sveins
syni skrifstofustjóra V.R., en
hann var þá að koma úr eftir-
litsferð um borgina til áð kanna
hvort verzlanir hefðu opið fram
yfir kl. 7 eða ekki.
Magnús sagði, að 9 verzlanir
hefðu haft opið fram yfir ki. 7
og hefðu eigendur þeirra strax
brugðizt vel við tilmælum stjórn
ar V.R. og lokað samstundis.
Suðurgata
aðalumferðargata
Nýr miðbær við Kringlumýrarveg
Geir Hallgrímsson borgarstjóri kvaddi blaðamenn í gær á sinn fund nið
ur í skipulagsdeildina, sem hefur aðsetur í húsinu Höfða við Borgartún.
Þar voru og staddir nokkrir borgarráðsmenn, borgarverkfræðingur, skipu
lagsstjóri ríkisins og nokkrir aðrir, sem hafa unnið að heildarskipulagi
Reykjavíkur að undanförnu.
Erindið var að skýra frá því að borgarráð hefði tekið nokkrar mikilvægar ákvarð-
anir eftir að hafa kynnt sér tillögur og hugmyndir skipulagsyfirvaldanna. Verða ákvarð-
anir þessar ræddar á borgarstjórnarfundi í næstu viku.
Helztu ákvarðanir eru þessar:
1) Suðurgatan verði gerð að aðalumferðargötu og yrði hún þá leidd í boga frá kirkju-
garðshorninu gegnum mitt GrjótaþOrpið og sameinaðist Geirsgötu frammi á hafnar-
bakka milli vörugeymslu SIS og Háfnarhvols. Þá verði Geirsgata éinnig gerð að að-
alumferðargötu, sem lægi frammi á hafnarbakkanum, sveigði síðan norður á við yfir
svæðið þar sem kolakraninn er nú og sameinaöist Skúlagötunni, þar sem nú mætast
Kalkofnsvegur og Skúlagata. Hin nýja Geirsgata þyrfti að vera upphækkuð a. m. k. á
svæðinu milli Pósthússtrætis og Suðurgötu, svo að afgreiðsla skipa gæti farið fram
undir henni.
2) Þá viðurkennir borgarráð að óhjákvæmilegt sé vegna fyrirsjáanlegrar stóraukinnar
umferðar að mynda nýjan miðbæ, og er það hugmynd skipulagsyfirvaldanna, að
hinn nýi miðbær yrði á svæði skammt frá Borgarsjúkrahúsinu milli Kringlumýrar-
brautar og Hvassaleitis.
3) Þá hafa áætlanir verið gerðar um byggð á svæði Stór-Reykjavíkur og er gert ráð
fyrir að stuðla frekar að byggð suður á bóginn, bæði í bæjarlandinu í Fossvogi og
Breiðholtslandi og ennfremur er búizt við aö mikil aukning verði á byggðinni í Garða
hreppi og í Hafnarfirði. Er talið heppilegra að stuðla að byggð suður á bóginn, vegna
þess hve mikið álag er á umferðaræðum frá austri til vesturs.
Ákvarðanir þessar fjalla um
meginlínur varðandi skipulag
Reykjavíkurborgar og nágrenn-
is. Síðan er eftir áð útfylla þær
og ákveða nánar, en á fundinum
var einnig rætt um ýmislegar
hugmyndir varðandi skipulag
borgarinnar, en tekið skýrt fram
að þar væri ekki um neinar end
anlegar ákvarðanir að ræða.
Um ýmsar þessara hugmynda
var og rætt á fundinum, svo
sem um verndun Elliðaánna og
grænt belti sem yrði á bökkum
þeirra, grænt belti í Fossvogi,
sjóbaðssvæði kringum Nauthóls-
víkina. Þá eru einnig uppi hug-
myndir um að gera nýja tjöm á
svæðinu fyrir framan Háskóiann
og ef til þess kæmi að flugvallar
svæðið yrði tekið undir byggð,
er hugsanlegt að grænt svæði
yrði látið ná alla leið frá tjörn
inni suður í Nauthólsvík.
Hins vegar tók borgarstjóri
það fram, að gert væri ráð fyrir
þvf, að Reykjavíkurflugvöllur
yrði á sfnum stað næstu 20 ár-
in að minnsta kosti sem innan-
landsflugvöllur. Það væri álit
skipulagsmanna, að staðsetning
flugvallarins, þar sem hann er
nú væri mjög þýðingarmikil
bæði fyrir flugið og fyrir bæjar-
félagið.
Það sem liggur að baki hinum
nýju meginákvörðunum borgar-
ráðs er þetta.
Mannfjölgun
Það er áætlað að ibúataia Stór
Reykjavíkur, það er svæðisins
frá Hafnarfirði og upp f Mosfells
Framh. á bls. 3
Geir Hallgrímsson borgarstjóri á blaðamannafundinum í gær. Hér
sést hann skýra hugmyndir um nýjan miðbæ við Kringlumýrar-
braut.
Þátttaka / Atlantshafshandalaginu
tryggir öryggi og frelsi íslands
■■■■■■■■■■■■■■■■■■IMHBHHBBBHBaíiHBB I III I H I T I .I I IIII H I llllllll ■ IIIIIIIHIWI
Blaóíð á dag
Bls. 4 Kvennasiða. Tizku-
fréttir frá New York
— 5 Frá heimsókn banda
riska stúdentakórs-
ins til Akureyrar.
— 7 Kirkjan og þjóðin.
Um norsku kirkjuna.
— 9 Ný verksmiðja fram
leiðir öngla — og
um framleiðslu
Áburðarverksmiðj.
unnar.
( gær voru útvarpsumræður
frá Alþingi. Þessar umræður
fóru fram vegna óska Alþýðu-
bandalagsmanna, um tillögu,
sem fjórir þingmanna þess hafa
flutt um utanríkisstefnu ísiands.
Gerir hún m. a. ráð fyrir því að
ísiand segi sig úr Atiantshafs-
bandalaginu, herinn fari af landi
brott, og stranglega er varað
við því að Island hafi nokkur
afskipti af Efnahagsbandalag-
inu.
Fer hér á eftir útdráttur úr
ræðum tveggja þingmanna Sjáif-
stæðisflokksins, þeirra Davíðs
Ólafssonar og Sigurðar Bjarna-
sonar.
•
Hér fer á eftir útdráttur úr
ræðu Davíðs Ólafssonar fiski-
málastjóra, er hann hélt við út-
varpsumræðurnar i gærkvöidi, í
sambandi við tillöguflutning
kommúnista um hlutieysi ís-
lands.
Hinn 9. apríl 1940 urðu þátta-
Framh. a bls. 6