Vísir - 11.04.1964, Page 5

Vísir - 11.04.1964, Page 5
5' VINSÆLIR GESTIR Á AKUREYRI SIR . Laugardagur 11. apríl 1964. Akureyringar tóku vel á móti North Texas State University Choir, þegar hann kom þangað í stutta heimsókn, sem lauk í gær. Hvert sæti í Akureyrar- kirkju var skipað þegar kórinn söng þar á miðvikudagskvöld,, stólum komið fyrir hvar sem hægt var að tylla þeim í kirkj- unni. Á árshátíð íslenzk-ame- ríska félagsins á fimmtudags- kvöld söng kórinn einnig, í þetta sinn, lög úr bandarískum söng- leikjum við mikinn fögnuð á- heyrenda sem höfðu troðfyllt hinn stóra sal sjálfstæðishúss- ins. t Þar heilsaði karlakórinn Geys ir hinum bandarísku gestum, en síðan var Frank McKinley stjórn andi kórsins gerður að heiðurs- félaga Geysis. Afhenti Ámi Ingi mundarson merki Geysis sem McKinley tók við. Hann lét síð- ar í Ijós að Geysir væri bezti karlakórinn sem hann og söng fólk hans hefði heyrt í á söng- ferðalagi þeirra. Geir S. Björnsson, prent- s'.niðjustjóri, form. íslenzk-ame- ríska félagsins á Akureyri stjóm aði hátíðinni. Valgarður Haralds son kennari sagði frá kynnisferð til Bandarikjanna. Fyrr um dag- inn sat bandaríski kórinn há- degisverðarboð bæjarstjórnar Akureyrar í skíðahótelinu, og síðar um daginn snæddi hann í Sjálfstæðishúsinu í boði ísl.- ameríska félágsins. Geir S. Bjömsson, formaður fs- Ienzk-ameríska félagsins. Frá hófinu í skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Talið frá vinstri: Magnús Guðjónsson bæjarstjóri, frú Mc Kinley, Jón Sólnes forseti bæjarstjórnar og McKinley kórstjóri flytur ræðu til að þakka fyrir mót- tökurnar. Allar hinar myndimar em frá hófi íslenzk-amerfska félagsins á Akureyri. Myndin tekin úr veizlusalnum. Söngstjóri Geysis, Ami Ingimundarson, afhendir Frank McKinley merki Geysis og tilnefnir hann meðlim kórsins. Messur Dómkirkjan: Ferming kl. 10.30 Séra Óskar J. Þorláksson. Ferm- ing kl. 2. Séra Jón Þorvarðarson. Barnasamkoma kl. 11 í Tjarnar- bæ. Séra Hjalti Guðmundsson. Laugarneskirkja: Messa kl. 10. 30, ferming, altarisganga. Séra Garðar Svavarsson. Bústaðaprestakall: Barnasam- koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30 f.h. Guðsþjónusta á sama stað kl. 2. Séra Ólafur Skúlason. Elliheimilið: Guðsþjónusta kl. 2. Séra Bjarni Jónsson vígslubisk up. Athugið breyttan messu- tima. Heimilispresturinn. Kirkja Óháða safnaðarins Tvær fermingarmessur kl. 11 og kl. 2. Almenn barnasamkoma fell ur niður og því miður er aðeins rúm í kirkjunni fyrir vandamenn fermingarbarnanna. Séra Emil Björnsson. Neskirkja: Fermingarmessa kl. 11. f.h. og kl. 2 e.h. Séra Frank M. Halldórsson Hallgrímskirkja: Ferming kl. 11 i Séra Jakob Jónsson. Ferming kl. 2. Séra Sigurjón Þ. Árnason. . Háteigsprestakall: Fermingar- ( messa og altarisganga í Fríkirkj- i unni kl. 10.30. Séra Arngrímur | Jónsson. Fermingar í Dómkirkj- ) unni kl. 2 e.h. Séra Jón Þorvarðar 1 son. Ásprestakall: Almenn guðsþjón ' usta í Laugarásbíói kl. 11. f.h. Séra Grímur Grímsson Grensásprestakall: Messa í Fossvogskirkjukl.il Ath. breytt- an messutíma. Sunnudagaskólinn fellur niður. Séra Felix Ólafsson. Leidrétting Þau mistök urðu í myndsjá-blaðs ins í gær, að nafn Guðmundar Vil- hjálmssonar fyrrverandi forstjóra Eimskipafélags íslands féll niður f myndatexta undir mynd þar sem hann var ásamt þeim Óttari Möller og Elísbergi Péturssyni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.