Vísir


Vísir - 27.06.1964, Qupperneq 6

Vísir - 27.06.1964, Qupperneq 6
V í SIR . Laugardagur 27. júní 1964. F&rfiiffBgEr Framh. af bls. 16. — Er ekki eitthvað leigt út af húsnæðinu ennþá? — Jú, heilt hús, sem fylgdi með I kaupunum. Og auk þess er götuhæðin öll leigð undir verzlanir. Við höfum því mikla möguleika að bæta við okkur húsnæði, þegar þar að kemur. — Seljið þið mat eða eitthvað annað? — Við seljum ekki mat. En við höfum ágætt eldhús, nuið rafmagnseldavél, skápum, vö.sk- um og fsskáp og þar geta gest- imir eldað eftir vild. Margir eru undrandi yfir því að sjá ísskáp. Sllkt tæki segjast þeir aldrei hafa séð í nokkru farfuglaheim- ili áður. Það eina, sem við höfum til sölu, eru póstkort og frímerlci, farfuglamerki og farfugíabækl- inga. — Er húsið opið allan sólar- hringlnn? — Það á að vera lokað um miðjan daginn og eins frá kl. 11 að kvöldi til 7 að morgni. En við höfum orðið að vera héma meira eða minna á nótt- unni llka vegna þess hve sum- ir koma seint I bæinn, ekki slzt með flugvélum utanlands frá. — Hvað kostar gisting? — 30 krónur. — Getur hver sem er gist hjá ykkuf? — Ekki nema þeir, sem hafa skírteini frá alþjóðasamtökum farfugla. En þau fást hjá okkur ef menn vilja. — Gista lslendingar jafnt sem úöendingar hjá ykkur? — 1 fyrra gisti enginn Is- Iandingur hjá okkur. En fyrsti Mendingurinn, sem gisti I ný-ja farfuglaheimilinu okkar var kennari norðan frá Akureyri. Pyrir lslendinga, sem ekki eru alltof kröfuharðir eða ríkir af peningum ætti þáð að vera hag- kvæmt að gista hjá okkur. Fn tfl þess þurfa þeir að kaupa farfuglaskírteini. — Hvaða aðbúnað hafið þið VPP á að bjóða? — Rúmstæði með góðri dýnu og tvö teppi I hvert rúm Gest- urinn verður hins vegar að koma sjálfur með lakpoka utan um teppin. Sumir koma með svefnpoka og sofa I þeim. — Hvað gistu margir hjá ykk ur 1 fyrra? — Um 2500 gistingar voru skráðar. Nuna eru þeir ekki orðnir nema 183, en ferðamanna straumurinn er líka rétt að byrja. í nótt var allt fullt hjá okkur. — Koma gestir I hrotum, eða nokkuð jafnt og þétt yfir allt sumarið? — Það er mest um þá við skipakomur til landsins. — Þá koma þeir I smærri eða stærri hópum. Gista yfirleitt fyrstu næturnar I Rvík, en ferðast síð- an út á land og safnast svo saman aftur um það leyti sem skipin fara. Margir koma l;to með flugvélum, t. d. Loftreiða- vélum, staldrá hér við I 2—3 daga og halda svo ferðinni á- fram. — Hvaðan hafa þeir útlend- fcllssveit sýna sameiginlega. Þí hafa blómaverzianirnar í Reykja vík sérstakt sýningarsvæði á miðju gólfi og skiptast þær á að sýna þar. Jón Alfonsson, húsvörður á Lauf ásvegi. ingar verið, sem gist hafa hjá ykkur I sumar? — Frá Ameríku, Ástraiíu, ísrael, Austurríki, Sviss, Þýzka- landi, Frakklandi, Énglandi, Skotlandi, írlandi, Svíþjóð og Danmörku. — Hvers konar fólk er þetta helzt? — Allt milli himins og jarðar. Talsvert af nemum, kennurum og öðrum menntamönnum. Yf- irleitt fólk. sem vill ferðast ó- dýrt og kærir sig ekki um lúx- us. Við höfum heldur ekki upp á slíkt að bjóða. — Hefur þetta fólk yfirleitt gert sér rétta hugmynd um ís- land, þegar það kemur? — Ég held fæstir. Það gerir sér yfirleitt enga grein fyrir þvi hvernig hér er umhorfs og hvernig það eigi að ferðast. — Sumir koma í þeim tilgangi að spás?Qra yfir þverar s;pg endi- langar óbyggðirnar, eins og þær væru tún. En þrátt fyrir dálítil vonbrigði fara flestir mjög á- nægðir til baka og sumum líkar svo vel, að þeir hafa komið aftur. Blómasýning — Framh. af bls. 1. Gróðrarstöðvarnar hafa keppzt við að viða að sér fegurstu skrautjurtum hvarvetna úr heim inum, svo að nú stöndum við á engan hátt nágrannalöndum okkar að baki I þessum efnum. Þátttaka íslenzkra garðyrkju- manna á blómasýningum erlend is hefur leitt f Ijós, að við er-1 um hvarvetna samkeppnisfærir | á þessu sviði. Fréttamönnum var I gær boð ið að líta inn I Listamannaskál- ann þar sem garðyrkjubændur kepptust viðaðkomaframleiðslu sinni fyrir og skreyta sýningar- svæðin. Sjö garðyrkjubændur frá Hveragerði taka þátt I sýn- ingunni, en þeir eru: Bragi Einarsson, sem rekur garðyrkju- stöðina Eden, Hannes Arngrims- son, GarðyrkjUstöðin I Fagra- hvammi h.f., Laurltz Christian- sen, Pau) Michelsen, Björn og Þráinn Sigurðssynir og Hallgrim ur Egilsson. Garðyrkjubændur úr Mos- Hjartanlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR Þórsgötu 14 Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarkonum Landsspítalans fyrir frábæra hjúkrun I veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Jónas Jónsson börn tengdabörn, barnabörn . Framhald aí bls. 2 að þriðja hjartað. Síðan hefur hann spilað tígli. Norður he.fur drepið tígulinn I fyrsta eða öðrum tígulslag og þá er draumurinn bú- inn. Á góðum degi hnekkja Lárus og Jóhann svona grísaslemmu. Hefðu Svíarnir þá fengið makleg mála- gjöld og tapað leiknum með 1 vinningsstigi gegn 5. Guðmundur Kr. Sigurðsson, keppnisstjóri, mun I sumar hafa vikuleg spilakvöld I Silfurtunglinu við Snorrabraut. Spilað verður á fimmtudagskvöldum og þá aðailega tvímenningskeppni. Þátttaka er op in öllu bridgefólki og vilji einhvej- ir spila einmennings- eða sveita- keppni, þá er ég ekki I vafa um að Guðmundur getur komið þvl I kring. Smjönð Framh at bls I hvort tveggja — er það stað- reynd að á 5 fyrstu mánuðum þessa árs hefur selzt 42 lestum minna af smjöri en á sama tíma í fyrra. Ostar hafa undanfarið að- allega verið seldir til Þýzka- lands. Salan á íslenzkum osti þangað hefur verið hagstæð, miðað við sölu á osti frá öðrum Norðurlöndum, sagði Sigurður Benediktsson. Sagði hann að Þjóðverjum líkaði mjög vel við íslenzka ostinn og þætti hann bragðgóður. Talsvert ér framleitt af mjólkurdufti til útflutnings og er öll framleiðslan til maíloka þegar seld. Afurðasölur íslenzkra land- búnaðarafurða liggja annars að mestu niðri um þessar mundir, nema sala mjólkuraf- urða, sagði Agnar Tryggvason framkvstj. I viðtali við VIsi. Hann sagði að útflutningur kindakjöts færi alltaf fram á haustin og væri lokið fyrir áramót. Allar gærur voru komn ar úr landi fyrir marzlok. Aftur á móti eru selskinn ó- seld ennþá, en líkur fyrir all- mikilli eftirspurn I þau og kvaðst Agnar vona að verð myndi a.m.k. ekki lækka frá þvl I fyrra. Þá hækkuðu sel- skinn skyndilega I verði, eða um 50% frá árinu áður, og eftirsókn I þau virðist vera á- þekk nú ef ekki meiri. Þrir selskinnakaupmenn hafa boðað komu slna á næstunni til SlS, og bendir það ákveðið I þá átt að eftirspurnin sé mikil. í fyrra seldi Sambandið yfir 2600 sel- skinn úr landi, eða talsvert meir en helming heildarframleiðsl- unnar. Hestar Framh af bls 16 ar með íslenzk hross yrðu sendir út á sumrinu, allir til Mið-Evrópu. Tvær flugvélar hafa það sem af er árinu, verið sendar eftir hestum til íslands og sennúega von á einni flugvél þessara er- inda til viðbótar áður en langt líður. Verðið hefur farið hækkandi sagði Agnar. Hér sunnanlands er markaðurinn að mestu upp- urinn. Bændur hafa selt það sem þeir telja geta selt og út- flutningshæft er. Hefur nú mest verið leitað eftir hrossum I Skagafirði og Húnaþingi, NYKOMIÐ Nýkomnar stretch buxur og stretch barnapeysur. Margir litir. Mjög hagstætt verð. með fatnabinn á fjölskylduna Laugaveg 99, Snorrabrautar megin — Sími 24975 Skrifstofustúlka Viljum ráða unga stúlku til bókhalds og vélritunar- starfa. Vinnutími gæti verið eftir samkomulagi. Tilboð með uppl. um fyrri störf sendist Vísi fyrir 1. júlí merkt. „Skrifstofustúlka 200“. GBersalan Gler og ísetningar Álfabrekku við Suðurlandsbraut. Sími 41630 Opnanlegir gluggar glerjaðir og gler sett saman með secostrip. Framtíðarstarf Piltur eða stúlka (helzt vön framköllun og kóperingu) geta fengið framtíðarstarf. Tilb. sendist blaðinu merkt: „júlí“ TÚNÞÖKUR Mjög góðar túnþökur til sölu. Heimflytjum og afgreiðum á staðnum eftir óskum. Sími 15434. AUGLÝSING Eftirtaldar verkfræðistofur og verkfræðingar eiga aðild að Félagi ráðgjafaverkfræðinga á íslandi. Þessir aðilar taka að sér hvers kyns verkfræðiþjónustu og leitast við að finna sem hagkvæmasta faglega lausn hvers verkefnis. Verkfræðistofa Baldurs Líndals, Brautarholti 20 Sérgrein: Efnaverkfræði. Verkfræðistofa Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdimarssonar, Suðurlandsbraut 2. Sérgrein: Byggingarverkfræði. Verkfræðistofa Guðmundar Magnússonar, Hverfis- gata 82. Sérgrein: Byggingarverkfræði. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen s.f., Miklubraut 34 Sérgrein: Byggingarverkfræði. Verkfræðistofa Theodórs Árnasonar, Hverfisgata 82. Sérgrein: Byggingarverkfræði. Verkfræðistofan Vermir s.f., Laugavegur 105 Sérgrein: Vélaverkfræði. Jarðhitatækni. Bolli Thoroddsen fyrrv. bæjarverkfræðingur, Miklubraut 62. Finnbogi R. Þorvaldsson, próf. emeritus, Aragata 2. Félag ráðgjafaverkfræðinga. mamtíB

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.