Vísir - 11.08.1964, Qupperneq 5
s
t’ÍSIR . Þriðjudagur II. ágúst 1964.
V'opnahlé samþykkt — Yænlegri horfur
Kýpurstjórn og Tyrkjastjórn féllust á vopna-
hlé með vissum skilyrðum
Fyrstu útvarpssendingar trá
erlendum stöðvum í morgun
hermdu, að vopnahlé hefði ver
ið haldið — skot hefðu að vísu
heyrzt á strjálingi í gærkvöidi
"g fram eftir nóttu á strand-
'engjunni norðvestan til 3
eynni, þar sem mest var barizt
fyrir loftárásir Tyrkja, e.i
gæzluliðsflokkar Sameinuðu
þjó-ðanna, sem þangað voru
Inonu — fyrirskipaði loftárásir.
komnir, sögðu ekki hafa komið
til neinna alvarlegra árekstra
Ríkisstjórn Kýpur og ríkis-
stjórn Tyrklands féllust hvcr
um sig á vopnahlé, eins og Sam
einuðu þjóðirnar fóru fram á
en gegn skilyrðum.
Kýpurstjórn setti það höfuð-
skilyrði, að öllum loftárásum
verði hætt.
Tyrklandsstjórn setti það að
skilyrði, að lið Kýpurstjórnar
sem hertók þorp á strandlengj-
unni í grennd við Kokkina,
hverfi burt þaðan, en íbúum
þorpanna, sem eru tyrknesku-
mælandi, leyft að hverfa til
heimila sinna þegar.
U Thant framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna sagði ;
gær á fundi Öryggisráðsins, að
það tækifæri sem gæfist með
vopnahléinu yrði nú að nota
til hlitar til þess að ná sam
komulagi um lausn deilunnar
U Thant sendir nú sérlegan
sendimann til Kýpur til þess að
vinna að lausn málanná.
Sir Alec Douglas Home for
sætisráðherra Bretlands sagði >
gær, að fyrsta skrefið nú væri
að sjá um, að vopnahléð yrði
haldið, og þar hefði gæzluliðið
mikið hlutverk að vinna. Sir
Alec lét I ljós mikla ánægju
yfir, að Kýpurstjórn og Tyrk-
landsstjórn hefðu samþykkt
vopnahlé. Hið sama gerði Har-
old Wilson leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar. Báðir brugðu við,
þar sem þeir voru í sumarleyf-
um úti á landi, og komu til
London, þegar er frétt'irnar
bárust af loftárásum Tyrkia,
enda Iá þá ljóst fyrir, að heims-
friðurinn var í hinni mestu
hættu.
Inonu forsætisráðherra TyrK-
lands hefir varað við afleiðing-
unum, ef áframhald verði á á-
rásum á tyrkneska bæi og porp
og tyrkneskumælandi fólk, og
könnunarflugferðum ' verður
haldið áfram, sagði hann.
SÆNSKA GÆZLULIÐIÐ
GEGNIR ERFIÐU
HLUTVERKI.
i Sænska gæzluliðið hafði erf-
iðu hlutverki að gegna meðan
mest var barizt á Kokkina
svæðinu, en þar voru 200—
300 tyrkneskumælandj, vopn-
færir menn til varnar. gegn 2 -
3000 manna vel vopnuðu liðb
Kýpur-Grikkja, og þetta lið var
búið að hertaka 3 þorp i grennd
inni, en sænska Iiðið var byrjað
að flytja burt úr þeim konur og
börn áður en bardagar hófust
og gengu vasklega fram f oví
og einnig eftir að bardagar
voru hafnir af fullum krafti
Og þegar beðið var um aðstoð
þeirra til þess að flytja burt
konur og börn frá Kokkina, og
það talið ókleift orðið, var svar
Svía: „Við reynum samt — oa
notum brynvarðar bifreiðir."
Kunnugt er, að í loftáras
Tyrkja var grísku eftirlitsskim
við Kýpurstrendur sökkt.
Hervæðing var ekki fyrirskio
uð í Tyrklandi, en lausafrétcir
voru komnar á kreik um það
en mikill viðbúnaður var í hafi.-
arbænum Iskenderun til inn-
rásar. Hann er í 170 km. fiar
lægð frá ströndum Kýpur.
Ekki eru enn fyrir hendi áreið
anlegar tölur um manntjón í loft
árásunum.
Þessi mynd var tekin er Tyrk'r sendi 64 orrustuþotur til árása á lið Kýpur-Grikkia á strandlengj-
unni í grennd við Kokkina, og á eftirlitsskip úti fyrir ströndinni. Einu þeirra var sökkt.
Grivas og Makarios — lögðu á ráðin um árásir á þorp Tyrkja.
."...' ■■ ^ •
HJÁ ANDRÉSI
HERRADEILD (I. HÆÐ):
Karlmannaföt, unglingaföt, drengiaföt.
Verð frá kr: 500, -
Stakir jakkar, stakar buxur, mikill afsláttur.
Gerið góð kaup, - Kaupið skóiafötin
á ótrúlega Iágu verði.
HERRADEILD (götuhæð):
Karlmanna-, unglinga- og drengjaskyrtur
Verð frá kr: 85,-
og peysur með allt að 40% afslætti
DÖMUDEILD (götuhæð):
Kvenkápur. ungíingakápur, dragtir
Verð frá kn 759 ._
Kaupiö skólakáput nar meöan verðið er lágt
HÉSliflMi I