Vísir


Vísir - 15.09.1964, Qupperneq 1

Vísir - 15.09.1964, Qupperneq 1
:■:> tr. -m VISIR 54. árg. - Þriðjudagur 15. september Í964. - 211. tbl. ÚTFARARATHÖFN FRÁ DÓMKIRKJUNNI í DAG Útför Dóru Þórhallsdóttur fer fram frá Dómkirkjunni í dag. Athöfnln hefst kl. 2, en fimm minútum áður gengur forseti og fjölskyida hans f kirkju úr Al- þingishúsinu. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur sorgargöngulög á Austurvelli í stundarfjórðung áður en kveðju athöfnin hefst. Útfararræðuna flytur herra biskupinn dr. Sigurbjörn Einars son, dr. Páll Isólfsson leikur á orgel, leikið verður á strokhljóð- færi og Dómkirkjukórinn syng- ur. Athöfninni í Dómkirkjunni lýkur með því að kista hinnar látnu verður borin úr kirkju. Þessir bera: Dr. Bjarni Benediktsson forsæt isráðherra, Emil Jónsson, formaður Alþýðu- flokksins, Hannibal Valdimarsson, formað ur Alþýðubandalagsins, Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokks'ins, Guðmundur I. Guðmundsson, ut anríkisráðherra, Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra, Birgir Finnsson, forseti Alþingis ÍKi'BS Kista forsetafrúarinnar borin út að líkvagninum að lokinni minningarathöfninni í morgun. „Birta leikur um minningarnar" Minningarathöfn í Bessastaðakirkju í morg- un um Dóru Þórhallsdóttur, forsetafrú Minningarathöfn um Dóru Þórhallsdóttur, for setafrú, fór fram í Bessa- staðakirkju, sóknar- kirkju forsetahjónanna, í morgun og hófst kl. 10. Kirkjan var þéttsetin við þessa virðulegu og látlausu kveðjuathöfn, og allmargir stóðu í kirkjunni og úti fyrir. Sólskin var og norðaust- an andvari, bjart yfir og haustlitir. Meðal viðstaddra við minn- ingarathöfnina voru forsætisráð- herra íslands, dr. Bjarni Bene- diktsson og frú huns, Sigríður Björnsdóttir, aðrir ráðherrar og frúr þeirra, biskup Islands, herra Sigurbjöm Einarsson, handhafar forsetavalds, forstöðumenn er- Iendra sendiráða og formenn þingflokka. Kl. 9.45 gengu nánustu vanda- menn forsetafrúarinnar, forset- inn hr. Ásgeir Ásgeirsson, böm þeirra, tengdaböm og bamabörn heiman frá Bessastöðum í kirkj- una, stfginn sunnan við kirkj- una, en dánarklukkunum var hringt. Kirkjukórinn var ailur fagurlega skrýddur blómum og þar stóð kista forsetafrúarfamar, er gengið var í kirkju, blómum skrýdd og blómsveigum hlaðið að henni. Minningarathöfnin hófst með því, að Páll Kr. Pálsson lék á orgel sálmforleik í g-moll eftir Bach, en sfðan var leikinn sálm- urinn )VA hendur fel þú hon- um“, kór Bessastaðakirkju söng. Sóknarpresturinn, séra Garðar Þorsteinsson, prófastur flutti minningarræfíuna og lagði út af þessum orðum f 60. kapitula Jes aja, spámanns: „Ris upp, skín þú, þvi að Ijós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp yfir þér. Drottinn skal vera þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull." Minningarræðan bar þess skýr an vott hversu bjart er yfir minningu hinnar látnu forseta- frúar. M.a. komst prófasturinn að orði á þessa leið: „Skær birta leikur um aliar þær minningar.“ Prófasturinn minntist forseta- frúarinnar sérstaklega sem eig- inkonu, húsmóður og móður, þ. e.a.s. einkalifs hennar. Hann gat þess, að hún hefði talið sig mikla gæfukonu, ekki vegna þess að hún hefði siðustu 12 ár- in skipað æðsta tignarsess ís- lenzkra kvenna, heldur vegna þeirrar hamingju, sem henni hefði hlotnazt í einkalífi sfnu, frá bernsku til hinztu stundar. Á eftir minningarræðunni var leikinn sálmur séra Hallgríms „Guð komi sjálfur nú með náð,“ og að lokum lék organistinn Eroica — sorgargöngulag eftir Beethoven á meðan kista forsetafrúarinnar var hafin úr kirkju. Sonur forsetahjón- anna, Þórhallur Ásgeirsson, tengdasynir þeirra, Gunnar Thor oddsen og Páll Ásgeir Tryggva- son, og synir barna forsetahjón- anna, Ásgeir Thoroddsen, Sig- urður Thoroddsen, Sverrir Þór- hallsson, Tryggvi Pálsson og Ás geir Pálsson, báru kistuna úr kirkju í líkvagninn. Forseti ís- larúfs, herra Ásgeir Ásgeirsson og báðar dætur forsetahjónanna VaThoroddsen og Björg Ás- geírsdóttir, gengu samhliða næS't á eftir kistunni úr kirkju, en þar næst Lily Ásgeirsson, tengdadóttir forsetahjónanna, og dætur barna forsetahjón- anna. Síðan aðrir vandamenn þeirra, embættismenn, innlendir og erlendir, og aðrir kirkjugest- ir. Kista forsetafrúarinnar var sveipuð þjóðfánanum og var ek- ið beint frá Bessastaðakirkju að Dómkirkjunni í Reykjavík. Með- fram veginum frá Bessastöðum til Reykjavíkur blöktu fánar hvarvetna í hálfa stöng. Yfir þessari kveðjustund á forseta- setrinu á Bessastöðum hvíldi djúpur helgi- og tregablær, seni seint mun þeim úr minni líða, er viðstaddir voru þá einstæðu athöfn. Frú íslenzks þjóðhöfð- ingja í embætti hefur ekki áður í sögu Iandsins verið kvödd hinztu kveðju. Forseti tslands, herra Ásgeir Ásgeirsson og fjölskylda hans gengur til minningarathafnarinnar f Bessastaðakirkju í morgun. Dætur forsetahjónanna, Vala Thoroddsen og Björg Ásgeirsdóttir, leiða föður sinn. Til hægri séð inn eftir Bessastaðakirkju f morgun við athöfnina.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.