Vísir - 15.09.1964, Side 6

Vísir - 15.09.1964, Side 6
~ J . - . lujadagur i». sepíember 1864. UVíRPOOL VANNKR-6:t Nær 36 þúsund Liverpoolbúar lögðu ieið slna á Anfield Road Ieikvöllinn í gærkvöldi og horfðu á lið sitt sigra, — nokkuð sem ekki hefur verið mikið um að undanförnu hjá Liverpool-liðinu. Independiente vnnn Milon 1:0 Independiente frá Buenos Aires vann um helgina á heimavelli sín- um sigur yfir Inter Milan með 1:0, en leikurinn er liður í keppn- inni um heimsmeistaratign félags- liða og annar úrslitaleikja keppn- innar. Sfðari leikurinn fer fram í Milano síðar í þessum mánuði. Við leikhlé hafði hvorugt liðið skorað mark, en í sfðari hálfleik skoruðu Argentínumennirnir eina mark leiksins og tókst að verjast 10 gegn 11 Itöh.n, en miðvörður Independiente slasaðist í seinni hálfleik og varð að yfirgefa völl- Nú vann liðið KR íslandsmeistar ana, með 6:1 og sló okkar menn þar með út úr Evrópubikarkeppn- inni með samanlagðri markatölu 11:1. KR er þar með úr Evrópubik arnum en Liverpool fer í 2. um- ferð. KR-liðið byrjaði vel og komst þegar í hættulegt færi á 1. mín. KR lék síðan varnaraðferð, eins og í fyrri leik liðanna f Laugar- dal, og varð leikurinn heldur svip- lítill og lognmollulegur. Heimir Guðjónsson bjargaði hvað eftir annað meistaralega í hornunum og Hörður Felixson og Ellert Schram björguðu einnig mörkum. Á 14. mín. kom mark frá Byrne h. bakverði, fastur bogabolti yfir Heimi og litlu síðar skoraði Ian St. John af 11 metra færi, við- stöðulaust skot og óverjandi. Þá kom loks mark KR í leikn- um 2:1. Þetta var á 36. mín. Gunn- ar Felixson skoraði markið eftir að Gunnar Guðmannsson sótti upp kantinn, sendi síðan til Sveins Jónssonar, sem lék á Yeats og, Stevenson og sendi á Gunnar Fel., sem vippaði í netið. Var staðan f hálfleik 2:1. I seinni hálfleik eyddu allir leik- menn eða allflestir tfmanum á vallarhelmingi KR, þar sem KR- liðið hafði plantað sér niður við vítateiginn. Á 7. mfn. fann Hunt i gat á vörninni og 3:1 kom með I skoti hans. Graham skoraði 4:1 á 20. mín. og Stevenson 5:1 á 22. mín. og loks á 30. mín. kom 6:1 frá John miðherja úr mikilli þvögu KR-ingar fengu mikið klapp að leik loknum fyrir hetjulega fram göngu sína, það var vel tekið á móti þeim af fólkinu á Anfield, eins og Bill Shankley sagði fyrir stuttu síðan í viðtali við Vísi. ,LStlci bikdrkeppnin4 Keflav'ik nægir jafn- tefli til sigurs Keflavík nægir jafntefli í síð- asta leik „Litlu bikarkeppninnar“ gegn Akranesi, en Keflavík vann í fyrradag Hafnarfjö.ð með 6:2 á heimavelli sínum. Keppni þessi er eins og kunnugt er milli Akraness, Hafnarfjarðar og Keflavíkur og ! átti að ljúka í vor, en þrem leikj- um varð að fresta til hausts. Keflvíkingar höfðu yfirburði f I leiknum um helgina og höfðu í I hálfleik yfir 3:0. Stórt frjólsíþróttnmót um síðustu helgi: KEPPT í 43 Um helgina fór fram unglinga- mót FRf f frjálsum fþróttum. Kepp endur voru alls um 70, en 80 áttu rétt á að vera með. Keppt var í 43 greinum, og hefur áreiðanlega aldrei verið keppt í jafnmörgum greinum á móti hér á Iandi. ÍR | fékk flesta meistarana, 18 talsins, KR 15, utanbæjarfélögin 10, en Ármenningar, sem hafa löngum verið stórveldi f frjálsum fþróttum, áttu engan mann f keppninni. Stighæstu einstaklingar i hverj- um flokki fyrir sig fengu verð- laun. Kjartan Guðjónsson ÍR varð fyrstur í unglingaflokki með ,48 stig, Ólafur Guðmundsson KR í drengjaflokki með 32 stig, Þórður Ólafsson USVH í sveinaflokki með 15 stig og Sigríður Sigurðardóttir, 1R, í stúlknaflokki með 26 stig. Sigríður vann 4 greinar í keppn- inni og Kjartan 8. Allar líkur eru á að mót sem þessi fari fram á hverju ári í framtíðinni, og mjög líklega verð- ur það haldið að Laugum í S.- Þingeyjarsýslu næsta sumar, en reglurnar um keppnina endurskoð- aðar, þannig að einn og sami mað- ur sé ekki keppandi í of mörgum gréinum. , ú i Vestmanncseyjar 69 — Kópavogur 57 Elzti þátttakand- inn 56 ára í bæjar- keppni í frjálsum Gott samstarf Myndirnar, sem hér fylgja, eru úr keppni KR og FH, sem Iauk um helgina með sigri hinna ungu KR-inga. Það vakti mjög mikla athygli, þegar ungur Hafn firðingur, Viðar Halldórsson, 11 ára gamall, kvaddi sér hljóðs í ölveizlu eftir leikina og afhenti KR-ingum smágjöf, „prógram“ leiksins KR—Liverpool með á- ritunum alira leikmannanna. KR fékk hins vegar fyrir sigurinn fagran skjöld, sem er gefinn af Einari Sigurðssyni í Hafnari'irði. Á myndinni. þar sem Viðar litli er að afhenda KR gjöf sína (stendur á stól), er Sigurðui ^'' Halldórsson að taka á mót' gjöt inni, en bak við hann eru Árni§ Ágústsson, Gunnar Jónsson og Ragnar Magnússon, sem allir hafa unnið mikið starf með þess um ungu mönnum. Hin mynd in er úr leiknum. Vestmannaeyjar og Kópavog- ur háðu keppni sín í milli um helgina í Eyjum f frjálsum f- þróttum og tókst keppnin hið bezta. Lokaúrslit urðu þau, að Eyjamenn báru sigur úr býtum, fengu 69 stig gegn 57. Eftir fyrri daginn höfðu þeir 37 stig gegn 28 Kópavogsmanna. í samkvæmi að lokinni þess- ari „landskeppni“ voru verð- laun afhent. Þar fékk Hallgrím- ur Jónsson verðlaun fyrir bezta afrek mótsins 51.76 metra f kringlukasti, Ármann J. Lárus- son fyrir bezta afrek Kópa- vogsmanns, 13.51 í kúluvarpi, og Karl Jónsson frá Vestmanna eyjum fyrir að vera elzti þátt- takandi keppninnar, 56 ára að aldri. Karl var meðal þátttak- enda í sleggjukastinu og er það án efa einstakt, að menn á hans aldri séu svo ungir í anda. LIÐ EVROPU GEGN JÚGÓSLAVÍU □ □□□□□□□□□DD DDDDQ □□□□□□ E3 □□□□□E3DDDE3Q □□□□!!□ nt3DD n B □ n □ a n □ □ □ □ □ □ □ □ E3 □ □ □ □ □ ta n □ E3 ts Q S2 Q Enginn Norðurlandamaður er í Evrópuliðinu, sem hefur nú ver ið valið gegn Júgóslavfu 23. sept. n. k., en ágóði af leiknum rennur til fólks, sem verst varð úti f jarðskjálftunum miklu í Skoplje. Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú samþykkt þá 15 leik- menn, sem þýzki ríkisþjálfar- inn Helmut Schön valdi og úr þessum hópi verður liðið endan lega valið. Leikmennirnir eru þessir: Markverðir Jashin (Rússland) og Tilkowski (V.-Þýzkaland). Bakverðir: Lala (Tékkóslóvak íu), Schnellinger (V.-Þýzkaland) og Matrai (Ungverjaland) Framverðir: Pluskal (Tékkósló vakíu), Meszoly (Ungverjaland), Voronin (Rússland) og Szymani ak (V.-Þýzkaland). Framlfnan: Augosto (Portú- gal), Eusebio (Portúgal), Seeler (V.-Þýzkaland), Masopust (Tékkóslóvakíu), Somoas (Portú gal) og Sandor (Ungverjaland). □ □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ L’i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.