Vísir - 21.10.1964, Page 3

Vísir - 21.10.1964, Page 3
VlSIR . Miðvikudagur 21. október 1964, 3 Bíll framtíð- arinnar <............... ................................... ■* - - ■. ................................................. . ,a.......................................................... ........................................................................ .......... ................................................. Ilraðbátur eða bíll f Reykjavík. Ljósmyndari Vísis uppi á kistulokinu. * 1 REYKJAVÍK Myndsjáin ætlar að bjóða hæst virtum lesanda ?ínum í óvenju- Iega ökuferð í dag. Það er með sérkennilegum bíl, sem e.t.v. get ur kallazt bíll framtíðarinnar. Hann er nú í Reykjavík og ekur um götur borgarinnar. Hann lik- ist einna helzt bifreið af DKW- gerð, sem sést hafa hér á landi. Þó er munur á þeim, það sést bezt ef skyggnzt er undir vagn- inn. Þar er stálbelgur undir öll- um mekanismanum, sem er loft- og vatnsheldur og ef litið er aft an undir hann, þá sjást tvær skrúf ur likt og f litlum mótorbát. Það er því rétt til getið, að hér er um að ræða bifreiðategund sem er með þeim ósköpum gerð, að sama er um land eða vatn. Það er láðs og Iagar bíll. Við skreppum á honum niður að Reykjavíkurhöfn og dembum okkur í sjóinn. Vonandi fær grandalaust fólk, sem stendur á nærliggjandi bryggjum ekki hjartaslag af skelfingu, þegar við ökum beina leið fram af einni bryggjunni f sjóinn. Það lítur heldur óhugnanlega út, en þetta er allt f lagi, því að bíllinn sigl ir um sjóinn eins og skemmtilegur léttibátur. Möguleikarnir eru óþrjótandi. Hugsið ykkur, hvað það getur ver ið sketmmtilegt að aka austur á Þingvöll, hafa veiðistengur með sér og þegar kemur að Þingvalia vatni þá demba sér formélalaust út í vatnið og fara að dorga. Á slfkum bíl hefur verið siglt yfir Ermasund og slfkan bfl sækjast auðugir bandarískir sport menn eftir að eignast, því að hann sameinar kosti farartækis og veiðibáts hvar sejn er. Það er auðvelt að aka aftur upp á þurrt land. Eitthvað er undarlegt við þessa bfltegund. Hann er með tvær skrúfur eins og varðskipið Óðinn. Við ökum rakleitt fram af bryggjunni og niður í sjóinn, Bílstjórinn, Bjöm Sigurðsson vinstra megin. Pét- ur Sveinbjarnarson blaðamaður Vfsis hægra megin.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.