Vísir - 21.10.1964, Side 5

Vísir - 21.10.1964, Side 5
VÍSÍR . Miðvikudagur 21. október 1964. VANDIA HONDUM VEGNA FRÁFALLS BIRJUZOVS ► Johnson Bandaríkjaforseti hefir lýst yfir, að ekki sé þörf snöggrar breytingar á stefnu Bandaríkjanna vegna þess, að Kínverjar hafa sprengt kjarn- orkusprengju og Ieiðtogaskipti orðið í Sovétríkjunum, „en vér verðum að vera vel á verði“, sagði hann, „og vér verðum að sannfæra aðrar þjóðir um, að vér leitum friðar í heimi, heiðurs op réttlætis“. ► Brezka bifreiðasýningin 'hef- ir verið opnuð í London. Par eru sýndar 350 bifreiðir frá 12 löndum. — Austin 800 kvað vekja sérstaka athygli á sýningunni, að sögn brezka út- varpsins. Bifreiðirnar eru frá m. a. Sovétríkjunum, Vestur- Þýzkalandi, Hollandi og Japan. Tito forseti Júgóslavíu hefir sæmt Birjuzov látinn æðsta heið- ursmerki, sem þar er hægt að sæma þá, sem dánir eru. Birjuzov, forseti sovézka her- ráðsins, fórst í flugslysi um sein- ustu helgi, er flugvél sem flutti hann og 9 aðra háttsetta sovézka herforingja, rakst á fjall i Júgó- slavíu og biðu allir, sem í flug- vélinni voru 29 manns bana. Ætl- uðu þeir að vera viðstaddir hátíða- höld í Júgóslavíu. Herforingjarnir höfðu allir bar- izt i síðari heimsstyrjöld og verið með í að hrekja nazista frá Bel- grad. Seinustu fréttir frá Moskvu herma, að sovézku leiðtogunum sé mikill vandi á höndum að því er varðar val manns ístað Birju- zovs. Birjuzov. Cassado — tramhaio al bls 16 sem við röbbuðum við hann. Hann er einn af nemendum Cas- als hins heimsfræga celloleik- ara og hefur sjálfur getið sér slíka frægð, að hann fer í hljóm leikaðferðir viðsvegar um heim. Hann hefur nú verið á söng- ieikaför um Norðurlönd og Iék í gærkvöldi hjá Tónlistarfélag- inu og endurtekur hljómleik- ana f kvöld. Fýrir nokkrum árum var Cassado í hljómleikaferð í Japan. Þar lék hann m.a. fyrir keisarahirðina. Hann er kvænt ur japanskri konu Chieko Hara og er hún undirleikari hans á píanó. JJann hafði gaman af að ræða um áhrif hinnar vestrænu tónlistar um víða veröld. Tón- list var upphaflega hvergi sjálf stæð listgrein. Það varð alltaf eitthvað að fylgja henni, leik- list, ballett, kvæðalestur eða söngljóð. Þannig hefir þetta ver ið um allan heim. Og tónlistin hefur upphaflega alls staðar verið einhljóma. Svo gerðist það suður á Italíu á elleftu öld. að tónlistin þróaðist og varð marghljóma og enn liðu fjórar aldir og þá gerðist aftur merkilegt atvik suður á ítalju, að það var farið að flytja hana sjálfstæða og farið var að léika á fiðlur og önnur hljöðfærí og mynda hljömsveitir, það er hljómsveitarverk voru flutt. Þetta var vissulega stórkostleg uppfinning og maður finnur það núna, hvarvetna í öðrum heimsálfum, hvernig hin vest- ræna tónlist gagntekur áheyr- endur. að er líka sérstök ástæða til þess að þetta gerðist á vesturlöndum, segir hin fríða japanska kona hans, það er ein faidlega vegna þess, að Vestur landamenn fóru að skrifa niður nótur. Það var aldrei gert í Jap an. Þar lærðu hljómlistarmenn- irnir iögin af föður sínum og hann af sínum föður ættlið eft- ir ættlið. — Já, ég var undrandi þegar ég var í Japan, þá lék hirð- hljómsveitin þar japönsk þjóð- lög. Ég fór til hljóðfæraleikar- anna og bað þá um að fá nótur. — Ha nótur, — Þær eru ekki til, við bara lærðum þetta af feðrum okkar, sögðu hljómlist- armennirnir. Verkamannabústaðir — Verðtrygging launa — Þingsköp Alþingis Fundir voru í báðum deildum Alþingis í gær 1 efri deild var eitt mál á dag- skrá, frumvarp um verkamanna- bústaði, sem félagsmáiaráðherra, Emil Jónsson, iagði fram. í neðri deild voru þrjú mál á dagkrá og voru tvö þeirra rædd, frumvarp um verðtryggingu launa og um breytingu á fundarsköpum Aljíing is. Forsætisráðherra, Bjarni Bene- diktsson, fylgdi báðum þessum frv. úr hlaði. Verkamannabústaðir Frv um breyt. á lögum um verka- mannabústaði var lagt fram i efri deild af félagsmálaráðherra eins og áður segir. I því er gert ráð fyrir að íbúðalán hækki allt að 50% frá því sem nú er, og efnahagsvið- miðun sú, er nú gildir verði rýmk uð, svo að réttur manna til lána verði ekki. skert- ur. I fyrstu grein frv. segir, að lánsfjárhæð megi vera allt að 90% af kostnaðar verði, þó ekki yfir 450 þús. kr I’ annarri grein frv. segir, að láns fjárhafi megi ekki hafa haft meira en 100 þús. kr. tekjur síðastliðin 3 ár miðað við 65 þús. nú að viðbættum 7500 kr. í stað 2500 áður til að fá lán. Þá er að síðustu lagt til, að hver einstaklingur njóti ekki verðhækkunar á verði allrar íbúðarinnar, ef hann greiðir upp lánið, fyrr en eftir 20 ár. Var málinu síðan vísað umræðu laust til 2. umr. og nefndar. Verðtrygging launa. í neðri deild lagði forsætisráð- herra fram frv. um verðtryggingu launa. Fylgir það í kjölfar sam íomulagsins frá 5 júní í sumar. 1 1 gr. frv. segir nánar frá á hvaða (aun skuli greiða ærðlagsuppbót, i 2. gr. segir frá nvernig skuli -eikna út vlsitölu og hvenær. í 3. gr. er svo gert ráð fyrir að verðlagsuppbót samkv. frv. skuli nema 0,61% af grunn- launum fyrir hvert stig, sem kaup greiðsluvísitala hvers þriggja mán aða tímabils kunni að vera hærri en framfærsluvísitala 163 stig. 1 almennum athugasemdum við frv. segir m. a. Á síðastliðnu vori fóru fram viðræður á miili ríkisstjórnarinn- ar, Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands um leiðir til stöðvunar verðbólgu og til kjarabóta fyrir verkafólk. Þessar viðræður leiddu, eins og kunnugt er, til samkomulags þann 5. júní s. 1. um verðtryggingu kaupgjalds um breytingu viku- og mánaðarkaups, um styttingu eftir vinnutíma og breytingu eftirvinnu álags, um lengingu orlofs og um sérstakar aðgerðir í húsnæðismál- um. Var samkomulagið háð því skilyrði, að samningar næðust á milli verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda til eins árs eða lengur, er ekki fælu í sér neina hækkun grunnlauna á því tímabili. Það var ætlunin, þegar sam- komulagið var gert, að sum atriði þess yrðu staðfest með bráða birgðalögum, og þá einkum verð trygging kaupgjalds, er átti að koma til framkvæmda þann 1. september. Setning bráðabirgða- Iaga frestaðist hins vegar vegna dráttar á því, að samningar tækj- ust nógu almennt á grundvelli 5 júní samkomulagsins á milli verka lýðsfélaga og vinnuveitenda. Þar sem ríkisstjórnin ákvað að greiða niður hækkun vöruverðs fyrst um sinn, var heldur ekki brýn þörf á setningu laganna Enn hafa að visu allmörg félög ekki lokið samn ingum við vinnuveitendur, en engu að síður þykir rétt að fá lagaheimild fyrir verðtryggingu launa, eins pg í frumvarpi þessu er lagt til. Síðan mælti forsætisráðherra eitthvað á þessa leið: Frá því 1939 þegar útreikningi vísitölu var kom ið á, hefur margvisleg löggjöf urr hana gilt. Að sumu teyti veitir hún tryggingu en einnig ber hún ' sér hættu um of öran verðbólgu vöxt. Þess vegna er ekki hægt að segja, að vísitalan skuli alltaf gilda, né heldur banna hana í eitt skipti fyrir öll. Það verður að meta ástæðurnar hverju sinni og athuga hvaða ráð eru tiltækileg. Árið 1960 þótti ekki gerlegt að halda vísitölunni í lögum. Þessu hefur hins vegar fylgt ótryggur vinnufriður, og þegar ákvæði um vísitölu voru gerð að skilyrðum fyrir samningum í sumar, þótti rétt að verða við þeim óskum. Og mikið hefur áunnizt með þess- um samningum eða Vinnufrlður i heilt ár. Miklar umræður urðu um þetta mál að lokinni ræðu forsætisráð- herra. Tók þar fyrstur til máls Dg talaði lengst, -ðrarinn Þórarins son. Áleit hann betta vera n. k. ■arðarför yfir 3 og einasta megin- itriði viðreisnar- úefnunnar. — Þá -agði hann, að úutfallið milli kaupgj. og verð lags hefði ekki haldizt í hendur- undanfarin ár og væri þetta allt önnur þróun en í nágrannalönd- um okkar, Væri þetta fyrst og fremst að kenna rangri stjórnar stefnu, sem hefði það að mark miði að skerða kaupmátt. Helztu úrbætur í þessum vandamálum væru að lækka vexti og hækka útlánin. Þessu næst talaði Eðvarð Sig urðsson Sagði hann, að þetta frv. hefði verið höfuðefnið í kröfum A. S. 1. og verðtryggingin væri höfuðforsendan fyrir nýrri þróun efnahagsmálun- '.m. Þetta eitt nægir þó ekki, því svo mikið bil væri milli kaupgjalds Dg verðlags. Og 'ímann fram til læsta vors yrðu •íkisvaldið og al- nannasamtökin að nota vel ti) þess að koma á kjarabótum. Þá kvaðst hann áiíta, að þróunin hefði orðið önnur og betri, ef vísitalan hefði aldrei verið afnum in. Forsætisráðherra, Bjarni Bene diktsson, svaraði þessu og sagði m. a að oft hefði heyrzt, að við reisnin hefði farið út um þúfur En allur almenningur fagnaði þeim mun sem orðið hefur í lífs- háttum s. s. afnámi hafta og mynd um mikilla gjaldeyrisvarasj. Þeir sem fara til útlanda, finna einnig þennan mun, því nú er hægt að selja íslenzku krónuna á skráðu gengi og allt svartamarkaðsbrask úr sögunni. Hitt skal þó viður- kennt, að okkur hefur ekki tekizt að leysa allan vanda og verðbólg an hefur farið vaxandi. En samn ingarnir í vor, voru fyrstu samn- ingarnir um Iangt skeið til að koma fram stefnubreytingu, og þessari tilraun hefur verið vel tek- ið af öllum almenningi. Enn væru þó til einstakir hópar manna, sem væru óánægðir. En þrátt fyrir það, að lífskjör einstaklingsins hefðu aldrei verið betri en nú mætti margt gera til úrbóta. Höf- uðverkefnið í því sambandi væri stytting vinnutímans, sem þó væri ekki hægt að koma á í einum rykk, málið væri flóknara en svo. Árið 1961 hefði Björn Jónsson flutt tillögu um skipan nefndar til athugunar á þessum málum. Nefndin hefði komizt á fót, og væru sum atriði samkomulagsins frá 5. júní byggð á tillögum henn ar. Og haldið yrði áfram að vinna að framgangi þessara mála. En höfuðforsendan fyrir því, að tæk ist að sigrast á verðbólguvandan- um væri að semja við almanna- samtökin, En þrátt fyrir þessa örð ugleika hefði tekizt að gjörbreyta lífsafkomu Islendinga. Ennþá urðu nokkur orðaskipti milli þeirra Þórarins Þórarinsson ar og Bjarna Benediktssonar en að lokum talaði Hannibal Valdimars son. Sagði hann m. a. að allur texti frv. væri saminn í samráði við verkalýðshreyf- inguna. Megin- atriði þess væru verðtrygging kaupgjalds og fellt niður bann við vísitölu. Enn þá væri kaupgjald ð oflágt en verka lýðshreyfingin hefði boðizt til að vinna með ríkisstjórninni að stöðv un verðbólgunnar og fá þá önnur hlunnindi en hækkun grunnkaups Hægt er að deila um vísitölukerfi, en hún er þó alltaf aðvörun á ríkis stjórnina um að halda verðlagi í skefjum. Og þetta vísitölulausa tímabil hefur verið verkafólki og atvinnurekendum erfitt og ég á- mæli ekki rfkisstjórninni fyrir að breyta um stefnu að fenginni reynslu og held, að þetta verði til hagsbóta fyrir almenning. Hér væri stefnt að samstarfi verka- lýðshreyfingarinnar, atvinnurek- enda og ríkisvaldsins um stöðv- un verðbólgunnar. Þá talaði hann um þau atriði önnur, sem fengust með samkomu laginu þ. e stytting vinnutímans og úrbætur í húsnæðismálunum en sagði síðan eitthvað á þá Ieið, að þegar þetta var fengið, þá urðum við að slaka til. Og þess vegna er kaupið of lágt og það vitum við vel. Það þyrfti að hækka um 12 kr. á tímann, en það er meira en nokkur ríkisstjórn ræður við í einu. Og ef við höfum verið of slakir í kaupkröfum, er við okkur að sakast, því við töld um, að betra væri að fá þetta smám saman með samningum. Síðan var máiinu vísað til 2 umr. og nefndar. Þingsköp Alþingis. Forsætisráðherra, Bjarni Bene- diktsson, lagði fram í neðri deild stjórnarfrv, um breytingu á þing- sköpum. Er hún á þá leið, að hámarkstala þeirra, sem kjörnir eru í fastanefndir deilda, skuli framvegis vera 7 f stað 5 áður. Sagði forsætisráðherra, að þegar þessi þingsköp voru sett, hefðu þingmenn verið 40 en eru nú 60 og sé því eðlilegt, að þessu hlut- falli sé breytt Það hafi komið í Ijós á síðasta þingi að ekki var heppilegt, að hafa einn þingflokk utan nefnda, enda hefði verið ráðg azt við hann í öllum meiriháttar málum. Öll rök hnigju því í þessa átt, Næstur tók Skúli Guðmunds son til máls. Rakti hann, í upphafi ræðu sinnar efni greinar er menntamálaráðherra, Gylfi Þ Gíslason, hefði á sinum tíma skrif að í Alþýðublaðið, þegar Ijóst varð, að Alþýðubandalagið kæmi ekki mönnum í nefndir Alþingis með eigin atkvæðamagni. Að lok um taldi hann æskilegt að gera aðra breytingu um leið og þessa þ. e. að setja ný ákvæði um, að þingmenn gæti skyldu sinnar og sæki þingfundi. Síðan var frv. vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.