Vísir - 21.10.1964, Page 6

Vísir - 21.10.1964, Page 6
6 V í S IR . Miðvikudagur 21. oktðber 1964. ÍÞRÓTTIR — Framh. aí ols. 2> ur og aftur. Fyrsta sprett Banda- rikjamannanna hljóp Otis Drayton og tókst mjög illa upp. Tveir næstu sprettir, þeir Ashwort og Stebbins unnu nokkuð á og hinn glæsilegi endasprettur færði ör- uggan sigur. í 4X100 m hjá konunum voru svipuð átök, en þar fór alveg öf- ugt, því Pólverjar unnu, en Banda- ríkjamenn urðu aðrir, — og líka þar varð 3/10 úr sek. munur á sveitunum, og auðvitað setti Pól- land nýtt heimsmet í greininni 43.6, USA á 43.9, Bretland 44.0 og Sovét 44.4, Þýzkaland 44.7, Astra- lía 45.0, Ungverjaland 45.2 og Frakkland 46.1. 4x400 m boðhlaup: r 'ýtt heimsmet hjá Baridarikjamöhnum Bandaffkjamennirnir Cassel, Larrabee, Williams óg O’Carr unnu 4X400 rhetra boðhiaupið giæsilega á nýju heimsmeti 3.00.7 min. Bandaríkjamennirnir voru fyrstu tvo sprettina á eftir, en Wiliiams og O’Carr náðu upp því sem vant- aði og unnu glæsiiegan sigur. — Timinn f hiaupinu: 1. USA 3.00.7 (nýtt heimsmet). 2. Bretland 3.01.6. 3. Trinidad/Tibago 3.01.7. 4. Jamaica 3.02.3. 5. Þýzkaland 3.04.3. 6. Pólland 3.05.3. 7. Sovétríkin 3.05.9. 8. Frakkland 3.07.4. 1500 m hlaup: Snell vann einnig 1500 metra hlaupið PÉÍEk SNELL vann einstætt afrek á þessum leikum. Hann vann 1500 metra hlaupið f nótt, en sagt er að hann hafi farið til Tokyo gagngert tii að vinna verðlaun í beirri vegalengd, 800 metra hlaup- ið hafi hann aðeins notað sem „upphitun“ fyrir þetta hlaup, en hann vann einnig gull í 800 metr- um. Sigur hans í nótt í 1500 metrun- unum er einhver auðveldasti sigur i hlaupinu f sögu leikanna. Hlaupið varð aldrei sú mikla raun, sem það hefur oftast verið og olii 80.000 áhorfendum nokkrum von- brigðum. Snell, hinn 26 ára ganili hlaupari frá Nýja Sjáln.ndi hefur bak við sig 6750 æfingakilómetra á árinu auk fjölmargra keppna og það var greinilegt eftir hálfnað hlaupið að enginn mundi stugga við veidi hans að þessu sinni. Snell hefði allt eins getað hlaupið sfðustu 50 metrana aftur á bak, svo mikla yfirburði hafði hann. Veður var heldur óhagstætt til að setja heimsmet og það var hið eina, sem Snell tókst ekki, en hann hljóp þó á afbragðs tfma 3.38.1, en heimsmet Herb. Elliott er 3.35.6 mín. Snell var eftir venju síðastur í hópnum í byrjun og lét aðra um að leiða. Það var ekki fyrr en bjallan tilkynnti að einn hringur væri eftir að Snéll tók á rás, hijóp alia keppinautana uppi og var orðinn langfyrstur, þegar 100 metrar voru eftir. Hann gaf sér iafnvel tfma til að veifa upp í stúkuna til nýsjálenzku áhorfend anna áður en hann sleit snúruna. Röðin í 1500 metrunum: OL-meistari: Peter Snell, Nýja Sjálandi, 3.38.1. Jose Odozil, Tékkósl. 3.39.6 Davis, Nýja Sjálandi, 3.39.6. Awan Simpson, Bretl. 3.39.7 Dyröl Burleson, USA, 3.40.0. Vitold Baran, Póllandi, 3.40.3. John Wheiton, Bretlandi, 3.42.4. Hástökk: Brumel vann i hörku- keppni v/ð Thomas i hástökkinu Rússinn Valerij Brumel vann há- stökkkeppnina á Olympfuleikunum f nótt. Hann stökk 2.18 metra, en John Thomas, Bandaríkjunum, stökk sömu hæð. Báðir stukku þeir þessa hæð í fyrstu tilraun, en Rússinn vann á þvf að stökkva 2.16 metra f fyrstu tilraun, en Thomas í annarri. Keppnin var því geysispennandi hjá þessum tveim stökkvurum, ekki sfður en hún var í Róm þeg'ar þeir hittust þar 1960. Þriðji í hástökkj varð John Ram bo, Bandarfkjunum, stökk 2.16, Stig Pe.tterson, Svíþjóð, fjórði með 2.14, Olympíumeistarinn í Róm, Robert Shavlakadse, Rússlandi varð 5, stökk 2.14 og 6. Svíinn Kjejl Aké Nilson með 2.09, en sömu hæð stukku 4. naéstu menn. Vinnuhagræðing tramh at ois ib og aðrár þjóðir. Hefði hann þvf snúið sér 'til iðnaðarmálastofn- unarinnar í Oslo og verið vísað til Industrikonsulent þar. Is- lenzkir aðilar hefðu sýnt áhuga á því að fá hið norska hag- ræðingarfyrirtæki hingað til lands og úr því hefði orðið. Lars Mjös fagnaði þvf hversu mikið hefði áunnizt í hagræð- ingarmálum á því 10 ára tíma- bili, er liðið væri síðan fyrir- tæki hans hefði byrjað starf hér. Hann drap á starfsemi Iðn- aðarmáiastofnunár Islands, starf Stjórnunarfélags Islands og hinn nýstofnaðj Tækniskóla. Einnig fagnaði hann þvf, að launþegar og atvinnurekendur væru nú 1áðlilúndii;búa' Vinhhhágræðingu með því að sérmennta menn í því skyni. Það kom fram hjá Lars Mjös og Erling Kjellevold forstöðu- manni Industrikonsulent í Reykjavík, að margir aðilar hafa notið þjónustu Industri- konsulent hér á landi, t.d. Raf- orkumálastjóri, Reykjavíkur- borg, Póstur og sími, Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og mörg einkafyrirtæki. Unnið er nú að þvl að auka vinnuhagræðingu í flestum frystihúsum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Hefur verið komið á ákvæðisvinnu með bonusfyrirkomulagi í mörgum húsanna með göðum árangri. Norðmaður frá índustrikonsul- ent hefur undirbúið þessar breytingar ásamt íslendingum, sem sérmenntaðir eru á þessu sviði. Industrikonsulent hefur nú 5 ráðunauta starfandi hér á landi, Norðmenn og íslendinga. Hið norska fyrirtæki hefur skrif- stofur f Kaupmannahöfn, Stokk hólmi, Júgóslavíu, Alsír, New York auk skrifstofa í Oslo og Reykjavík. ÞÝZKIR KVENSKÓR Ný sending í fyrramálið. Fjölbreytt og fallegt úrval □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ IMW ■ » ' JM.. -Aníí. . / x Jii% - P ■ /7 SKOVAL Austurstræti 18 Eymundssonarkjallaranum. "□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□^ t.s □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ a □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ a □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ a □ Monte Christo Skáldsagan ódauðlega fæst f bókaverzluninni Hverfisgötu 26. AÐALFUNDUR Handknattleiksc.eildar Vikings verður haldinn fimmtudaginn 22. okt. kl. 8 e. h. í félagsheimilinu. Stjórnin Jafnvægi — Kramh af ols 1 ir króna til umráða, eða þegar í upphafi hafa haft 250 milljón hann náði aðeins til Norður- Noregs — en hann er að flat- armáli álíka og ísland, en helm ingi fieiri íbúar og lífskjör að mörgu lík. Sjóðnum var ætlað að hjálpa til þegar einkafram- takið gat ekki haldið áfram vegna fjárskorts. Hér var miðað við það í upphafi, að fást við að leysa vandamálin á breiðari grundvelli en áður. Sjóðurinn studdi ekki neinar ríkisframkvæmdir. Það var sem fyrr segir vegna ágætrar reynslu í Norður Noregi sem kröfur voru bornar fram um að láta starfsemina ná til alls landsins, og koma til hjálpar þar sem þörf var, og ekki sízt þar sem atvinnuskilyrði voru einhæf. Sjóðurinn hefir nú til umráða 600 milljónir króna og eru veitt lán úr honum til 20 ára með lágum vöxtum (4-5'/2 af hundraði). Reidar Carlsen benti á 3 mik- ilvæg atriði, sem taka yrði tillit til, er um væri að ræða jafn- vægi í byggð landsins: Hvort hráefni sé fyrir hendi, hver virkjunarskilyrði eru og sam- gönguskilyrði. Hann bentj á hinar miklu breyt ingar sem orðið hafa í Noregi frá aldamótum á því, hvaða at- vinnu menn stunda, eftir að bæirnir og iðnaðurinn fóru að soga til sín fólkið, en reynslu Norðmanna kvað hann vera, að það borgaði sig, lands, þjóðar og framtíðarinnar vegna að við halda byggð um landið allt, og búa fólkinu skilyrði sem það getur þrifizt við hvarvetna, o'g notið alls þess, sem þéttbýlið hefir upp á að bjóða. Reidar Carlsen vakti sérstaka athygli á því hve geysi miklir framtíð- armöguleikar væru bundnir við aukin skemmtiferðalög, — þau hefðu orðið lyftistöng sveitum, þar sem allt hefði verið komið í kalda kol. Tekjur af ferðalög- um erlendra ferðamanna væru orðin landinu mikilvæg tekju- lind og ýtt undir heimilisiðnað o.s. frv. Reidar Carlsen fjallar nánar um þessi mál I erindum sínum Margt er líkt með skyldum á við um íslendinga og á það líka við um vandamálin. Nú kemur hér mikilhæfur og reyndur mað ur til þess að gera grein fyrir þróuninni í Noregi og bendir á hvaða leiðir Norðmenn fara í einu mesta vandamáli þeirra. Geta íslendingar vafalaust margt af þeim lært um þetta. Old boys-leikfimi. Á vegum fimleikadeildar Ár- manns eru nú að hefjast æfingar í nýjum flokki í old boys-leikfimi. Um síðustu mánaðamót byrjuðu old boys-æfingar hjá Ármanni, en sá flokkur varð fullskipaður þeg- ar á fyrstu dögunum. Nú verður stofnað til nýs æfingaflokks, og er hann sérstaklega ætlaður þeim, sem ekki hafa aðstöðu til að æfa nema einu sinni í viku. Æft verð- ur á þriðjudögum kl. 9—10 síðd. í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu (minni salnum). — Kennari verður Þorkell Steinar Ellertsson. — Þátttaka er ÖUum ! heimil. Ármann. Aðalfundur Körfuknattleiksráðs Reykjavíkur verður haldinn í félagsheimili KR við Kaplaskjólsveg miðviku- daginn 28. okt. 1964 kl. 8 eftir há- degi. Stjórnin.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.