Vísir - 21.10.1964, Qupperneq 16
Miðvikudagur 21. október 1964
Búlgarar únægðir
► Búlgarar hafa lýst ánægju
sinni yfir leiðtogaskiptunum i
Sovétrikjunum en kommúnistar
í öðrum löndum Austur-Evrópu
fara gætilega og biða átekta.
A 7 þúsund gist-
ingsr í SíBumúla
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni f Reykjavík hafa 6105
manns gist fangageymslur lögregl-
unnar f Siðumúla frá s.I. áramótum
og fram til 15. þ. m.
Á öllu árinu í fyrra gistu 7302
manns Síðumúla, en árið 1962 voru
gistingar þar 5092 talsins.
Auk þessa hefur lögreglan
nokkuð oft, einkum undir vikulok-
in eða um helgar orðið að stinga
drukknum mönnum eða óláta-
seggjum i kjallara lögreglustöðv-
arinnar vegna þess að fangageymsl
an í Siðumúla hefur yfirfyllzt.
Hugsýnir Beethovens og
nótnalaus tónlist
Samtal V'isis v/ð cellósnillinginn Caspar Cassada
J^g sé jafnan fyrir mér svip-
myndir, landslags og Iita
þegar ég er að leika, sagði Casp
ar Cassado.
— Hvort reynið þér þá að
sjá hugmyndir tónskáldsins eða
yðar eigin hugmyndir og
reynslu, spurði blaðamaður.
— Ég hlýt sem túlkandi að
reyna að sjá fyrir mér hug-
myndir tónskáldsins. Ég veit
það til dæmis að fyrir Beethov-
en hafði umhverfið og lands-
Iagið mikla þýðingu. Ég hef
því reynt að kynnast því um-
hverfi, sem hann dvaldist í, og
þegar ég leik verk hans sé ég
fyrir mér í hugsýn hið þýzka
landslag, hina þýzku skóga og
engi.
— En er ekki eitthvert fljót
í lögum hans?
— Jii, auðvitað.
— Hvort er það þá Rín þar
sem hann er fæddur og ólst
upp eða Dóná, þar sem hann
lifði sín skapandi ár?
— Bæði, en þó held ég öllu
meira Dóná, umhverfið kring-
um Vínarborg.
i^aspar Cassado hinn spænski
cellósnillingur var staddur á
fundi með blaðamönnum, þar
Framh. á bls. 5
Norskt fyrirtæki stuðlar að
vianuhagræðingu á íslandi
Industrikonsulent hefur sturfnð hér í 10 úr
Áhugi á hagræðingu í is-
lenzku atvinnulífi fer nú stöð-
ugt vaxandi. Fyrir nokkru var
skýrt frá því, að ákveðið væri
að nokkrir Islendingar myndu
fara utan til þess að kynna sér
vinnuhagræðingu og starfa að
hagræðingarmálum fyrir sam-
tök launþega og atvinnurek-
enda hér á Iandi. En hér á
landi hefur sl. 10 ár starfað
norskt fyrirtæki INDUSTRI-
KONSUI.ENT, sem unnið hefur
að hagræðingarmálum fyrir
fjölmargar innlendar stofnanir
og fyrirtæki án þess að sú starf
semi hafi verið básúnuð út.
Hefur hið norska fyrirtæki m.
a. unnið að vinnuhagræðingu í
frystihúsunum og á stóran þátt
í þeirri ákvæðisvinnu, sem þar
hefur verið tekin upp.
í tilefni af 10 ára afmæli
Industrikonsulent hér á landi
bauð fyrirtækið ýmsum gestum
til hádegisverðar á Hótel Sögu
í gær. Skýrði aðalforstjóri Ind-
ustrikonsulent í Oslo Lars Mjös
þar frá starfsemi fyrirtækisins
en meðal gesta var norski am-
bassadorinn í Reykjavík, full-
trúar frá ýmsum stofnunum og
fyrirtækjum er fengið hafa
þjónustu hins norska firma á
Afengissala hefur
aukizt um 14,7 %
undanförnum árum og frétta-
menn útvarps og blaða.
Lars Mjös skýrði frá aðdrag-
anda þess að Industrikonsulent
hefði sett upp útibú hér á
landi. Kvað hann Eirík Briem
rafmagnsveitustjóra ríkisins
hafa farið þess á leit við sig
1954, að hann hæfi starfsemi
hér á landi. Færði hann Eiríki
miklar þakkir fyrir þátt hans í
málinu’ og afhenti honum blóm-
vönd í þakklætisskyni. Eiríkur
kvaðst hafa orðið þess var á
ferðalögum sínum um Evrópu
fyrir rúmum 10 árum, að hvar
vetna ruddi vinnuhagræðing
-«>sér til rúms en íslendingar
höfðust ekkert að i þeim efn-
um. Sagði Eiríkur, að sér hefði
fundizt það ótækt, að íslending-
ar kæmu ekki á aukinni hag-
ræðingu í atvinnulífi sínu eins
Framh. á bls. 6.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
nam sala áfengis frá Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins sam-
tals 229.6 millj. en var á sama
tíma í fyrra 200.4 millj. Nemur
söluaukningin 14.7%.
Á tímabilinu 1. júlí — 30 sept.
nemur salan sem hér segir:
Heildarsala:
Selt í og frá Reykjavík kr.
67.826.796,00. Selt í og frá Akur
eyri kr. 10.152.075,00. Selt í og
frá Isafirði kr. 2.206.580,00. Selt
í og frá Siglufirði kr. 2.374.660,-
Selt í og frá Seyðisfirði kr.
4.852.405,-.
Samtals kr. 87.412.516,00.
Á sama tíma 1963 var salan
eins og hér segir:
Selt í og frá Reykjavík kr.
58.055.280,00. Selt í og frá Ak-
ureyri kr. 10.256.403,00 Selt í
og frá Isafirði kr. 2.040.521,00.
Selt í og frá Siglufirði kr.
2.599.402,00. Selt í og frá Seyð-
isfirði kr. 3.776.640,00.
Samtals kr. 76.728.246,00
Spænski cellosnillingurinn Cassado og hin japanska kona hans.
Allir utanríkisráðherrar Norð-
urlanda á fundinn í Reykjavík
Agnar Kl. Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu. sagði
Vísi í morgun að allir utanríkisráð
herrar Norðurlanda myndu sækja
fund utanríkisráðh þessara landa
sem haldinn verður í Reykjavík
KRAFÐIST SKÓLAGJALDS
EN HÉLT ENGAN SKÓLA
dagana 27. og 28. þessa mánaðar.
Með þeim verða ýmsir embættis-
menn og sérfræöingar, alls verða
fundarmenn um 30, þar af 5 íslenzk-
ir.
Utanríkisráðherrarnir eru væntan
legir til Reykjavíkur n.k. mánudag,
Per Hækkerup frá Danmörk, A.
Karjalainen frá Finnlandi, Halvard
Lange frá Noregi og Torsten Nils-
son frá Svíþjóð
Á haustfundum sínum eru
utanrikisráðherrarnir vanir að ræða
dagskrármál þess allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna, sem í hönd
fer hverju sinni, og marka afstöðu
sína til þeirra. Svo verður einnig
nú, en að þessu sinni hefst allsherj-
arþingið síðar en venjulega, eða
ekki fyrr en að afstöðnum forseta-
kosningum í Bandaríkjunum.
Agnar Kl. Jónsson kvað deilu
SAS og Loftleiða ekkert verða á
dagskrá utanríkisráðherrafundarins,
hún væri nú algerlega afgreitt mál.
Kæra hefur borizt til rannsókn-
arlögreglunnar út af misferli
manns nokkurs, sem augiýsti i
haust eins konar námskeið eða
skóla og tók námsgjaldið fyrir-
fram, án þess að úr skóiahaldi
yrði.
Náungi þessi krafðist 2 þús. kr.
fyrirframgreiðslu sem námsgjalds
og nú hefur a.m.k. ein kona kært
málið til rannsóknarlögreglunnar
út af þessu. Hafði hún greitt til-
skilið gjald eða 2 þúsund krónur,
en af skólahaldi, sem hefjast átti
10. þ. m. varð ekki og engar líkur
að af því verði í náinni framtíð.
En þetta mun ekki vera eina
misferli þessa manns. Hann fékk
nýlega dýrindis ritvél að láni hjá
fyrirtæki einu hér í borg. Var
verðmæti ritvélarinnar röskar 20
þús. kr. Daginn eftir seldi hann
ritvélina og fékk fyrir hana 5
þúsund krónur. Þann mann mun
hins vegar Jhafa rennt grun í á
eftir að ekki var allt með felldu
um sölu vélarinnar og gaf sig
fram við fyrirtækið sem lánað
hafði hana manninum.
Einhverjar fleiri kröfur hafa
komið á hendur þessum sama
manni og mun vera full ástæða til
að varast hann.
upp í óveðrinu
í nótt slitnaði vélbáturinn Hrönn
ÞH 36 upp í Húsavíkurhöfn, en
mjög slæmt veður var í nótt, ofsa
rok af suðvestri. Rak bátinn fyrir
veðrinu út úr höfninni og rak upp
í fjöruna fyrir utan bæinn.
„Það var lán í óláni að hann
hefur rekið upp í sandfjöru", sagði
eigandinn Eysteinn Gunnarsson í
stuttu samtali í morgun. „Senni-
lega er hann alveg heill en ég hef
enn ekki komizt út í hann, en
núna er að fjara og þá fer ég og
athuga það betur“.
Hrönn er 15 tonna bátur smíð-
aður úr eik, 20 ára gamall og
hefur verið gerður út á línu, en
hefur legið í nokkurn tíma, en á
nú að fara í botnhreinsun og vél-
arviðgerð en síðan gerður út