Vísir - 03.05.1965, Side 3

Vísir - 03.05.1965, Side 3
V1 s IR • Mánudagur 3. maí 1965. Kaupstefnan og sýningin „is- lenzkur fatnaður 1965“ var opn- uð í Lido á föstudag kl. 5 e. h. að viðstöddum Jóhanni Hafstein iðnaðarmálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasyni, menntamálaráðherra, Geir Hallgrímssyni, borgarstjóra og öðrum gestum. Formaður framkvæmdanefnd- ar sýningarinnar, Bjami Bjöms- son, forstjóri, flutti ávarp þar sem hann skýrði frá aðdraganda sýningarinnar og hlutverki henn ar og þakkaði öllum þeim, sem unnu að þvi að koma sýning- unni upp. Gunnar J. Friðriksson, for- maður Félags íslenzkra iðnrek- enda, skýrði frá því m. a., að vænta mætti, að þessi kaup- stefna yrði upphaf árlegrar kaupstefnu íslenzkra fatafram- leiðenda og að aðrar greinar ís- lenzks iðnaðar myndu einnig efna til kaupstefnu á sinni framleiðslu. Með þessari kaup- stefnu væri íslenzkur iðnaður að taka í sína þjónustu nýja söiutækni, sem væri knýjandi 3 í anddyri Lido er nokkurs konar sögusýning klæðnaðar fyrri alda, og er myndin tekin þar af helztu framámönnum sýningarinnar, en þeir em. Frá vinstri: Ásbjöm Bjömsson, Bjarni Björasson, Böðvar Jónsson, en þeir þrír eru f framkvæmdanefnd kaupstefnunnar. Næstur er Gunnar J. Friðriksson, formaður Félags íslenzkra iðnrekenda^ Árni Þ. Árnason^ ráðunautur kaupstefnunefndar, Kjartan Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri kaupstefnunnar og Þorvarður Alfonsson, framkvæmda stjóri Félags íslenzkra iðnrekenda. ÍSLENZKUR FA TNADUR nauðsyn vegna hinnar breyttu samkeppnisaðstöðu íslenzks iðn aðar síðari árin. Jóhann Hafstein, iðnaðarmála ráðherra, tók síðan til máls og sagði m. a. að hann óskaði ís- lenzkum iðnrekendum til ham- ingju með þessa kaupstefnu. Það væri ljóst að íslenzkur iðn- aður væri á tímamótum þar sem hann væri að hverfa til frjálsari verzlunar frá haftatím- anum. í því væri falin viss hætta en það hefði glatt sig að finna bjartsýni og áræði íslenzkra fatnaðarframleiðenda með þvf að halda sýninguna. Sagðist hann óska þess að íslenzkur iðnaður yxi bezt í sem frjáls- astri samkeppni. Lýsti ráðherra því yfir, að sýningin væri opn- uð. Kaupstefnan er jafnframt þvf Framh. á bls. 6 Tveir ráðherrar að skoða sýningarbás Vinnufatagerðar íslands. Frá vinstri Jóhann Hafstein og Gylfi Þ. Gíslason ásamt Bjama Bjömssyni forstj. . ’ ■ • Frágangur margra sýningabásanna er mjög smekklegur. Þetta er bás Við bás Model Magasín. Frá vinstri Jón Þórisson forst. Model Magasín ræðir við kollega sína Elís Ad- Elgs h.f. olpsson og Jón M. Jóns&on frá AkureyrL

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.