Vísir - 12.07.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 12.07.1965, Blaðsíða 16
Samið við mjóikurfræðinga Ekki náSist samkomulag í kjara deilu mjólkurfræð'inga fyrr en kl. 5 að morgni laugardagsins. Hófst þá vinria í Mjólkurbúi Flóamanna Framh. á bls. 5. Anisir í s|úkrnfEugi Annríkt var hjá Flugþjónustu Bjöms Pálssonar um helgina. Alls fóru flugvélar hans þrjár ferðir t'il að sækja sjúklinga. Kl. 7 í gærmorgun var hringt ofan úr Borgarfjrði og tilkynnt um slys, stúlka hafði dottið af hestbaki, Guðrún Pétursdóttir að nafn'i. Fiug véim lenti á Stóra-Kroppi, en sjúkrabíll úr Borgamesi ók sjúkl ingnum af slysstað. Upp úr há- deginu var sjúklingur sóttur á Homafjörð, og ennfremur var sótt lasiburða eldri kona yfir að Húsa- felli. Hún er ættuð frá Biönduósi en hafði veikzt á ferðalagi. Fjölmennt var í Varðarferðinni og var bílakostur stór. Á myndin ni, sem er tekin við Stöng i Þjórsárdal sjáum við að fólkið unir sér vel I góða veðrinu í baksýn eru faratækin, 20—30 bifreiðir. ÞÚSUND MANNS í VARÐARFERD Þúsund manns tóku þátt í sumarferðalagi VarSar í gær og er það vafalaust eitt fjölmenn- asta hópferðalag, sem um getur hér á landi. Lagt var af stað frá Austurvelli f 20-30 langferðabif- reiðum og farið um byggðir Ár nessýsíu og Þjórsárdalur skoð- aður, heimleiðis var farið um Grafninginn. Veðurguðirnir reyndust hlið- hollir lengst af og tilhögun ferð arinnar og skipulagning var með ágætum. Fararstjórum gekk vel að halda þessum þúsund manna hóp saman og var ferðin hin ánægjulegasta. Lagt var af stað árla morg- uns og haldið yfir Hellisheiði og í Grímsnes'ið, þar kom á móti hópnum Steinþór Gestsson frá Hæli, varaþingmaður Árnes- sýslu, bauð hópinn velkominn Framhaid bis. 5 Leitað að stolnum bíl Kært var yfir stuldi á bifreið tii, við það að bíll var ræstur sem lögreglunnar í Reykjavílc um síð- stóð fyrir utan húsið. Hún fór ustu helgi. fram úr og skyggndist út. Sá hún Um kl. 6 áröegis á laugardaginn þá að hennar eigin bfll var horf- vaknaði stúlka að Laufásvegi 631 inn, þaðan sem hann átti að Veiðin um heigina Allgóð véiði var sl. sólarhring um 60-170 mílur SA af Gerpi. Síld- in er yfirleitt léleg. Veður var gott á miðunum. Samtals fengu 47 skip 49.060 mál og tunnur. Aflafregnir af ein- stökum skipum eru eftirfarandi: Heimir SU, 1500 mál, Ásbjörn RE, 1100, Eldborg GK, 1600, Gull- berg NS, 1500, Snæfugl SU, 300 tn. Húni II. HU, 1400 tunnur, Baldur EA, 700 mál, Jón Þórðarson BA, 1100, Sólrún IS, 1300, Krossanes SU, 1300, Stefán Árnasop SU, 600 Framnes IS, 1200, Draupnir IS, 800, Pétur Jónsson, ÞH, 920, Bjart ur NK, 700 tunnur, Gullfaxi NK, 700 mál, Hafrún IS, 1800, Vigr’i GK, 1250, Amfirðingur RE, 1100, Gunnar SU, 1400, Jón Eiríksson SF 800, Ögri RE, 1100, Ingiber Ólafs- son, GK, 1800, Gunnhildur IS 600, Anna SI. 1100, Jón á Stapa SH, 850, Ingvar Guðjónsson GK, 600, Sif IS, 950, Sveinbjöm Jakobsson SH, 300, Pé'tur Sigurðsson RE, 500 Halldór Jónsson SH, 1050, Barði NK, 1400, Höfrungur III. AK, 1700, Straumnes IS, 850, Skarðsvík SH, 950 tunnur, Sigurvon RE, 1700 mál Páll Pálsson GK, 350, Siglfirðingur SI, 1040, Sunnutindur SU, 900, Hólmanes SU, 1350, Áskell ÞH, 700, Akraborg EA, 1200, Einar Hálf dán's IS, 1000, Víðir II. GK, 600, Óskar Halldórsson RE, 1100, Súl- an EA, 1300 og Otur SH, 900. Veiðin frá því kl. 7 á laugardags- morgun og til kl. 7 á sunnudags- morgun var 29.260 mál og fengu 29 skip þennan afla. Einstök skip fengu: Jón Kjartansson SU, 1100 mál, Björgvin EA, 1500, Bára SU, 1100, Reykjaborg RE, 1200, Björh Jónsson RE, 700, Hafþór;RE, 700, Runólfur SH, 1,100, Skájaberg NS 150, Þórsnes SH, 300, Faxi GK, 750,' Jörunður • IlyRE 3000, Garð- ar GK, 11Ó0, Guðrún Jðnsdóttir IS, 800, Ingvar Guðjónsson GK, 1500, Halldór Jónsson SH, 700, Gnýfari SH, 300, Arnar RE, 1100, Grótta RE, 1100, Sigurður Jóns- son SU, 1200, Jón Finnsson, GK, 1800, Guðrún Guðleifsdóttir IS. 2000, Guðrún Þorkelsdótt'ir SU, 750, Margrét SI, 560, Náttfari ÞH, 700, Bergur VE, 800, Þráinn NK, 1000, Auðunn GK, 600, Vonin KE, 400 og Einir SU, 550 mál. standa. Stúlkan gerði lögreglunni þegar aðvart og var leit hafin, en þegar sú leit hafði engan árangur borið fram til hádegis var lýst eftir bifreiðinni, R-344 í útvarpinu. Skömmu síðar bárust lögregl- unni fréttir um að til bifreiðarinn- ar hefði sést á Suðumesjum og að hún myndi standa mannlaus og yfirgefin hjá Vogastapa, þar sem Reykjanesbraut og Grindavíkur- vegur mætast. Eigandinn fór og sótti farkost- inn, sem var þá benzínlaus orðinn og enda yfirgefinn af þeim sökum. En hann var óskemmdur að mestu eða öllu. 10 þús. keyptu sig inn á Landsmótið Fréttamaður VIsis náði tali af Hafsteini Þorvaldssyni austur á Laugarvatni seint I gærkvöldi. Hann sat á hótelherbergi sínu í héraðsskólanum og „slappaði af“ eftir umstang undanfarinna daga. Hafsteinn átti rikan þátt i að undirbúa og skipuleggja þetta glæsilega landsmót UMFI, sem fram fór um sl. helgi. Hann Iét vel af árangri mótsins. — Við erum ákaflega ánægð- ir, sagði hann, og teljum allar vonir hafa rætzt við þetta mót. Ég vil flytja öllum á sambandssvæð inu þakkir fyrir stuðning við fram kvæmd mótsins og ekki síður fólk inu, sem sat heima og annaðist búin til að gera hinum kleift að sækja mótið hér á LaugarvatnL Hann var inntur eftir ágóðanum af mótinu. Hann kvað MLOOO manns hafa keypt sig inn, en bætti því svo við að mun fleirl hefðu verið áhorfendur, bæði hefði Framh. á bls. 5 Fallhlífarstökk á Sandskeiði Síðdegis síðastliðinn laugar- dag stökk ungur Bandaríkja- maður í fallhlíf úr flugvél yfir Sandskeiði. Þessi ungi maður, er varð 22ja ára daginn áður, heitir Stewart E. Eanes, og mun næsta árið kenna fallhlíf- arstökk hér á landi. 30. marz á þessu ári var stofn aður hér I bæ klúbbur, er hef- ur það að markmiði að kenna fallhlífarstökk, og er hann op- inn öllum áhugamönnum um þá íþrótt, beggja kynja, og hvort sem menn hafa sjálfir áhuga á að stökkva eða ekki. Klúbbur þessi hefur fengið Stewart E. Eanes Jr. úr bandaríska flotanum á Kefla- víkurflugvelli til að kenna stökk, en hann hefur að baki 155 stökk, þótt hann stökkvi einvörðungu í frístundum. Eanes stökk reynslustökk á Sandskeiði á laugardaginn, úr tæplega 6000 feta hæð, lét sig detta niður í 2880 fet en opnaði þá fallhlífina. Viðkoman við jörð var, að því er hann sagði, rétt eins og stokkið væri af skrifborði og niður á gólf. Var hann mjög ánægður með allar aðstæður til stökks á Sand- skeiði. Klúbbur sá, er stofnaður var í vetur, er opinn öllum almenn- ingi, og geta menn frá 16 ára aldri fengið leyfi til fallhlífar- stökks. Markmiðið er að stunda þetta ekki e’invörðungu sem íþrótt, en þjálfa upp úrvalslið ennfremur til björgunarstarfa. Formaður klúbbsins er Sverrir Ágústsson, flugumferðarstjóri. Takist vel til fyrsta árið, er ætlunin að Eanes reyni að fá leyfj til að dveljast hér annað ár til viðbótar. „Passaðu þig manni, að detta ekki út úr flugvélinni,“ hrópaði lítill snáði, áður en Mr. Eanes fór á loft. Hér svífur hann síð- ustu metrana til jarðar. „Viðkoman er rétt eins og stökkva af skrifborði og niður á gólf“. Stewart E. Eanes nýlentur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.