Vísir - 06.09.1965, Síða 1
ISIR
55. árg. — Mánudagur 6. september 1965. - 201. tbl.
SKEIÐARA
Hlaupið f Skeiðará fer enn
vaxandi. Það óx enn í fljótinu í
nótt, en ekki mikið. Símasam-
band yfir sandinn er nú slitið,
þar sem einn staurinn hallast
orðið svo mikið að víramir
. liggja niðri í vatninu.
Flóðið er hægfara, en það er
þegar orðið geysimikið. Skeið-
ará hefur upp á síðkastið fallið
aðallegá í tveimur kvíslum, sem
nokkrir km. voru á milli. Nú er
flóðið orðið svo mikið að fljótið
breiðir sig yfir allt svaeðið mflli
þessára tveggja kvísla.
Blaðið átti í morgun samtal
við Fagurhólsmýri og sögðu
menn þar, að áin héldi enn á-
fram að vaxa og auðséð að svo
yrði enn um sinn. Ekki er jaka-
burður þó neitt óvenjulega mik-
ill, nema helzt nálægt JökuHelli.
Fljótið er mjög dökkt og af því
megn fýla. Á Skaftafelli hefur
fallið á málma, en ekki er vitað
til að þess hafi orðið vart vfðar.
Mynd þessi var tekin yfir Skeiðará nú um helgina. Sýnir myndin, hvernig fljótið öslar fram þráðbeint til hafs. Á þessu svæði eru að jafnaði
óteljandl kvíslar og sandeyrar hvarvetna á miLU. Nú er vatnið svo mikið, að það flæðir yfir alit á breiðu svæði. Ljósm. von Linden.
Verðlagsákvæði verði afnumin
Til að bæta þjónusfu v/ð neytendur, segja stórkaupmenn
Ráðstefna norrænna stórkaupmanna sett i morgun
Aðalmálið á móti nor-
rænna stórkaupmanna,
sem haldið er hér í
Reykjavík dagana 6.—9.
september, er verðlags-
eftirlit og verðlagsá-
kvæði.
Ráðstefnan var sett klukkan
9,30 í morgun á Hótel Sögu og
er sú fjórða í röðinni, — fyrsta
sem haldin er hér á íslandi.
Göngur
hefjast
Ámesingar eru nú að leggja upp
i fyrstu göngur, en þær vara á
aðra vlku hjá þeim sem lengst fara.
Það eru Flóamenn og Hreppa-
menn, sem lengst fara. Þeiru eru
8 talsins og fara í svokallaða und-
anreið inn að Amarfelli hinu
mikla við sunnanverðan Hofsjökul.
Á fimmtudaginn kemur fara 12
menn til móts við þá inn á Fjórð-
ungssand og loks fer 12—15 manna
hópur inn að Dalsá n. k. sunnu-
dag.
Miðvikudaginn 15. sept. koma
gangnamennimir með safnið niður
Þjórsárdal og niður í byggð.
Réttað verður f Skaftholtsrétt
fimmtudaginn 16. þ. m. og í
SkeSSarétt daginn eftir.
Félag fsl. stórkaupmanna gerð-
ist aðili að samtökum nórrænria
stórkaupmanna árið 1962, en
ísland mun vera eina norræna
landið sem enn býr við ströng
verðlagsákvæði. Hafa verðlags-'
ákvæði og opinbert verðlagseftir
lit verið afnuirtin með öllu á öðr
um Norðurlöndum, nema örlítið
mun eima eftir af verðlagseftir-
liti í Finnlandi og Noregi.
Þróunin hér á landi hefur ver
ið nokkur, síðan 1960, en það ár
var mikill hluti af innflutningi
gefinn frjáls, og má segja að um
80% innflutnings landsmanna sé
nú orðinn frjáls.
Framhald á bls. 6.
Þjófar staðn-
ir að verki
Tvelr ungir piltar voru staðnir
að innbroti í Sjálfstæðishúslð í
fyrrinótt og vom handsamaðir.
Lögregluþjónn sem var á varð-
göngu í miðbænum síðari hluta
nætur, heyrði grunsaml. hávaða
í Sjálfstæðishúsinu. Hann fór að
svipast um hverju þessi hávaði
sætti og rakst þá á mann, sem
kominn var inn í ölgeymslu húss-
ins. Hann tók manninn með sér og
flutti f lögreglustöðina. En þegar
hann var nýkominn þangað barst
lögreglunni tilkynning um, að sézt
hefði til manns uppi á þaki Sjálf-
stæðishússins. Var þá aftur farið
á stúfana og sá maður einnig sótt-
ur.
Við yfirheyrslu kom í ljós, að
þeir höfðu brotizt sameiginlega
inn í Sjálfstæðishúsið og kváðust
hafa ætlað sér að ná f öl, þvf
báðir voru þeir þyrstir. Þó mun
ekki nema annar þeirra hafa verið
ölvaður, a.m.k. svo að á sæi. Sá
hefur komið talsvert við sögu lög-
reglunnar áður, en hinn lftið
eða ekki.
Formaður Félags íslenzkra stórkaupmanna, Hilmar Fenger, setur ráðstefnuna
Kaupmenn taka IBM ísína þjónustu
í undirbúningi er nú hjá
Kaupmannasamtökum ís-
lands að koma upp sameigin
legu IBM vélabókhaldi fyrir
félagsmenn samtakanna.
Knútur Bruun, framkvæmda-
stjóri samtakanna sagði í
morgun að hér væri um að
ræða eitt stærsta hagsmuna
mál kaupmanna. Með slíku
kerfi gætu kaupmenn fengið
betri innsýn í fyrirtæki sín
og kaupmenn í heild fengju
haldgóðar upplýsingar t. d.
þegar rætt væri um samn-
inga og við verðlagsyfirvöld
um dreifingarkostnað.
Mál þetta hefur verið í undir-
búningi í nokkra mánuði og hef
ur þýzkur viðskiptafræðistúdent
Peter Molenhauer, unnið að rit
gerð um þetta mál. Var hún
mjög vel unnið að sögn Knúts
Bruun og hefur nú verið send
IBM, sem gerir verklýsingu.
Ætlunin er að sérstakur mað
ur hafi aðsetur hjá Kaupmanna
samtökunum á skrifstofu þeirra
á Marargötu 2, en þangað munu
kaupmenn geta snúið sér, þegar
þar að kemur og mun maður
þessi „mata" rafeindaheila
IBM með upplýsingum, en „heil
Framh. ð 6. síðu