Vísir - 08.09.1965, Blaðsíða 2
V í SI R . Miðvikudagur 8. september 1965.
HÓTEL SAGA sigraði
★ í sumar hefur staðið yfir hörkuskemmtileg keppni í knatt-
spyrnu, í nær algjörri kyrrþey og I skugga „stóru“ knattspyrnu
mótanna. Þeir sem hér börðust voru starfsmenn á veitingahúsum
Reykjavíkurborgar og af Gullfossi.
★ Leikir þessir hafa verið leiknir á sunnudagsmorgnum (óvenju-
legur leiktími!) og eins eftir hádegi á daginn. Þetta stafar af því
meðal annars að stór hluti þeirra, sem hér hafa komið við sögu
eru veitingaþjónar og matsveinar, dyraverðir og birgðagæzlu-
menn, allir starfandi hjá veitingahúsunum. Þá hafa Gullfossmenn
orðið að sæta lagi til að keppa.
Sfðasti leikurinn fór fram á
sunnudagsmorguninn. Þá vann
Hótel SAGA stóran sigur í leik
sínum gegn Klúbbnum, vann 5:1.
Með þessum sigri f sfðasta leik
mótsins skauzt Saga fram úr erf-
iðasta keppinautnum, sem var
Keflavík
keppir
sjálft flaggskip islenzka flotans,
GULLFOSS.
Staðan að lokinni keppninni var
þessi:
HÓTEL SAGA
GULLFOSS
HÓTEL BORG
KLÚBBURINN
RÖÐULL
NAUST
3 2 0 23:12 8
3 1 1
2 2 1
1 1 3
1 1 3
1 1 3
7:6 7
12:8 6
16:18 3
11:13 3
14:25 3
Vegleg verðlaun voru gefin til
þessarar keppni, CINZANO-bikar-
inn, sem Albert Guðmundsson gaf,
en hann er umboðsmaður fyrir þá
tegund af vfni. Næst þegar Gull-
foss-menn verða í heimahöfn sinni
mun verða slegið upp fagnaði og
verður öllum þátttakendum keppn-
innar boðið þangað.
Dregið í Bikarkeppmnni:
Kefíavík og KR-b
mætast aftur
í gær var dregið í bikarkeppn-
inni í 5. umferð, sem er fyrsta um-
ferðin í aðalkeppninni. Leika þessi
lið saman:
KR-a—Akureyri,
FH eða Valur-b—Akranes,
Keflavík— KR-b,
Fram—Valur-a.
I
kvöld
1 kvöld keppa Keflavík og
Ferencvaros í Búdapest. Er leik-
ur liðanna sem kunnugt er liður í
Evrópubikarkeppninni í knatt-
spymu.
Ekki er með vissu vitað um tím-
ann á leiknum, en hann mun fara
fram í flóðljósum á hinum stóra
Nep-leikvelli. Búizt var við að á-
horfendur yrðu mill'i 20—30.000
talsins.
r r
Arsþing F.R.I.
Ársþing Frjálsíþróttasambands
Islands 1965 verður haldið helgina
27 .og 28. nóvember n. k.
Tillögur frá sambandsaðilum,
sem óskast lagðar fyrir ársþingið
þurfa að hafa borizt stjórninni
minnst tveim vikum fyrir þing.
Stjóm FRÍ.
Þarna eru sem sagt fjórir leikir,
sem geta farið hvernig sem er.
Eflaust verður leikur KR og Ak-
ureyrar spennandi og óvíst hvern-
ig honum lýkur. Akranes ætti að
eiga auðvelt með FH eða b-lið
Vals, en Keflavík hefur bitra
revnslu af b-liði KR, sem sló þá
út í þessari keppni fyrir ári, þá
nýbakaða íslandsmeistara. B-liðið
hjá KR er mjög gott um þessar
mundir og nægir að benda á þá
j hroðalegu útreið sem Þróttur fékk
í leiknum gegn liðinu. Leikur Fram
og Vals gæti einnig orðið skemmti
legur, því hér eru tvö mjög jöfn
lið dregin saman.
Leikimir fara fram um helgina.
Færeyingar komu of seint
j í íG-J
WKfíym, R
cs. ;
Vildu vera með í Evrópubikarnum í
handknattleik en ffleiri Ijón
virðast í veginum
Um síðustu helgi hringdi
síminn hjá iþróttaritstjóm Ber-
lingske Tidende. Það var for-
maður færeyska félagsins Kynd
............................................................................;............;............................................................................................................................................... j
J I
ill, sem var í símanum.
„Við vildum gjarnan fá gefna
upp utanáskriftina hjá alþjóða-
handknattlelkssambandinu",
var sagt. „Við viljum vera með
í Evrópubikarkeppninni".
Blaðamaðurinn gat sagt fær-
eyska formanninum, Jödleis, að
umsóknarfrestur væri fyrir
löngu útrunninn og búið væri
að draga i keppninni, og auk
þess væri vafasamt hvort
Kyndill gæti farið fram hjá
DHF og tekið þátt i keppni
sem þessari.
„Þá bíðum við þar til næsta
Þessa gamanmynd birti eitt
dönsku blaðanna vegna áhuga
Færeyinganna.
ár ...“ var svarað hinum megin
á línunni.
Kyndill er mjög gott hand-
knattleiksfélag og var hér á
íslandi í sumar og keppi 8 leiki,
tapaði 4 og vann 4.
Fredslund Petersen formaður
DHF sagði að ekki kæmi til
greina, að færevska félagið taki
þátt i Evrópubikar nema með
leyfi sambandsins. Ilvort það
leyfi fæst eða ekki er ekki gott
að segja um en eflaust verður
DHF heldur tregt til þess.
KVENNALANDS-
LIÐ f HANDBOLTA
LIÐ HÓTEL SÖGU: Rögnvaldur Gunnlaugsson, glímukappi og birgðavörður var „fyrirliði utan leikvallar“,
og hann er lengst til vinstri f efri röð, þá koma Friðbjörn Guðmundsson, Guðmundur Tómasson, Sigurður
Haraldsson, Finnbogi Guðmundsson, Gunnar Friðþjófsson og Þórður Þorgilsson. í fremri röð frá vinstri:
Magnús Jónsson, Þorbjörn Guðmundsson, Sveinn Sveinsson, Trausti Víglundsson, Guðjón Sveinsson Hall-
dór Skaftason og Baldur Heiðdal. Á myndina vantar: Sigurð Jónsson, Þorfinn Guttormsson og Gunnar
Stefánsson.
Landsliðsnefnd kvenna hefur ný-
lega valið eftirtaldar stúlkur í
landslið íslands fyrir heimsmeist-
arakeppnina, sem fram fer í
Vestur-Þýzkalandi 8.—15. nóvem-
ber n.k. Undankeppni fer fram við
Dani í Kaupmannahöfn dagana 28.
og 30. október n. k. Sigurvegarar
úr þeirri keppni fara áfram ( aðal-
keppnina:
Sigríður Sigurðardóttir, Val,
Sigrún Guðmundsdóttir, Val, Sig-
rún Ingólfsdóttir, Val, Vigdís Páls-
dóttir, Val, Rut Guðmundsdóttir,
Ármanni, Svana Jörgensen, Ár-
manni, Ása Jörgensdóttir, Ár-
manni Sigríður Kjartansdóttir,
Ármanni, Jóna Þorláksdóttir, Ár-
manni, Elín Guðmundsdóttir, Vík-
ing, Edda Jónasdóttir, Fram, Gréta
Hjálmarsdóttir, Fram, Sylvía Hall-
steinsdóttir, F.H.. Jónína Jónsdótt-
ir F.H., Sigurlína Björgvinsdóttir
F.H.
Liðið heldur utan þriðjudaginn
26 október n. k.