Vísir - 08.09.1965, Blaðsíða 9

Vísir - 08.09.1965, Blaðsíða 9
V1SIR. Miðvikudagur 8. september 1965 Fransarí leitar íslenzks ævintýrs ☆ Tveir ungir Frakkar hafa flakkað um landið í sumar. Það er í sjálfu sér enginn .viðburður, en blaðamaður Vísis kynntist öðrum þeirra af hendingu og ræddi stuttlega við hann um ferðalagið og fleira, sem hefur drifið á daga hans. /■. Félagamir festu sig á Steinadalsheiði. (Ljósm. D. Vigneau). Með skegg eins og O- A-S-maður og smávax inn; talar með handa- pati, var í Algeirsborg og Constanza og Oran, þegar svartfætlingarnir herjuðu með plast- sprengjukasti og eirðu engu, hvorki lifandi né dauðu, og nú er Mussju Daniel (það er heilagt nafn) Vigneau staddur á íslandi í enn meiri ævin- týraleit. Hann er aðeins tæpra tuttugu og fjög- handritum og ljósmyndum drög að ferðalýsingu af ís- landi, en þeir félagar hafa ferð azt um landið þvert og endi- larigt síðan í vor. Leikið sér að því að klífa og aka upp á fjöll og jökla. Þeir hafa barizt við beljandi jökulfljót, misviðri og óblíða náttúru: Á leið úr Svartárkoti til Öskju villtust þeir, lentu í gjömingaveðri, urðu benzínlausir, og neyddust til að fara sömu leið til baka fótgangandi nokkrar þingmanna le'iðir til að sækja benzín. Þeir fóru vestur á fjörðu, sleiktu hvem fjörð, þar sem þeir gátu komið þvi við. Þeir fóm yfir SpFengisand og Kjöl, og allt Norðaustur-hálendið könnuðu þeir eins og eftir hemaðarplani. Svo ílentust þeir um síðir á Austfjörðum — þéir þurftu peninga. Á Seyðisfirði fengu þeir vinnu í síldarverk- smiðjunni Þór og hafa unnið þar um hríð. -Daniel kom fyrst til íslands í fyrrasumar og vann þá á Hermóði. em fjarlægari, svolítið naprir í v’iðmóti, en þegar ég stóð uppi á Öskju í sumar skildi ég, hvað hefur haft áhrif á tilfinn ingalíf og skaphöfn þessarar þjóðar...“ Fransmaðurinn Daníel lét móðan mása. Þegar ég kom aftur til París ar í desember í fyrra, fann ég, að ég saknaðj einhvers. Það héldu mér engin bönd: ég varð að komast aftur til íslands". Hvort Mussju Daníel Vigneu hefur eignazt hér ítök eða ei, skal látið ósagt, en Fransmenn eru nefnilega sagðir virða ást- ina þrátt fyrir allt. Þeir meira að segja geta látið lffið henn- ar vegna. Nú sagði hann okkur brot úr Iífi sínu: „Fæddur og alinn upp að nokkm í Tours skammt frá Orleans. Pabbi er stillingar-sér fræð'ingur í Alfa-Romeo-bflum, en vinnur nú í París. Ég fór í menntaskóla, var kallaður f her inn 19 ára og var sendur til Norður-Afriku til að bæla niður óeirðimar þar. Þetta var of mikil reynsla fyrir mig að sumu leyti...“ Monsieur Daniel Vigneau, sem segist vera orðinn þreyttur á inu f Evrópu: „Kannski er ég að leita að þessu frumstæða...' (Ljósm. Vfsis B.G.) inn, sem stjómaði handtökunni, heilsaði með „honneur" og Sal an gerði hið sama“. 'C’ftír herménnskuna Damel um hríð dvaldist um hrið í Sahara, „kannski til þess að leita að hinu upprunalega og óbrotna". „Ég var þar áhorfandi að gift ingu. Bamung brúðhjón, brúð urin 12 ára, brúðguminn 16-17 ára. Um fimmtfu manns höfðu safnazt saman við húsið. Allan tímann hafði verið leikið undir á iitlar trumbur. Drykklöng Á leiðinni upp að öskju frá Svartárkoti áðu þeir hjá seli. (Ljósm. D. Vlgneau). urra ara. Hann hafði keyrt eins og ljón svo til f striklotu alla leið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur á Landróver, módel ’57, á fimm- tán tímum. Fyrir austan er hann í síldarvinnu ásamt vini sínum Mussju Blaise Sandoz, („hann er tækriifræðingur, sem kann skil á mörgu“) og nú var Daniel kominn með stafia af „lVTér leiddist þá að sumu leyti 1 A— ég er ekki hrifinn af Reykjavík. Mér blöskraði, hvemig Islendingar skemmta sér. Af hverju drekka þeir sig út úr fulla? Þeir fara mikils á mis í lífinu, ef þe'ir venja sig á það. Mér fannst ekki bölvað að vinna með þessu fólki — það er ágætt út af fyrir sig. Þegar ég var í Sahara, var ég innan um Araba — ég gerði mér far um að kynnast siðum þeirra og háttum. íslendingar „Þurftirðu að drepa marga?“ „Ég forðaðist súkt, en ég horfði á útlendingasve'itina brytja niður Arabana". „Kynntistu Salan og hans dárum?“ „Ég sá hann við handtökuna á flugvellinum í Algiers. Hann hafði látið snöggklippa sig, lit að á sér hárið og látið sér vaxa skegg, svo að hann þekkt ist ekk'i. En hann hlaut samt allta/ að þekkjast. Ekki sáust á honum svipbrigði. Hershöfðing stund le'ið — áreiðanlega 35 mínútur...“. sagði Daniel, „loks birtist brúðguminn. Hann heldur á blóðu drifnu hand- klæði, sem táknaði, að stúlkan var hrein mey. Tmmbusláttur jafnt og þétt. Með þessari sönn- un var allt fengið stúlkunni ekki varpað á hræsibekk eins og tíðk ast í þeim tilfellum, ef kemur í ljós, að brúðurin er spjölluð, sem þó er sjaldgæft meðal Ar aba. Við á Vesturlöndum lítum hins vegar á slík tilfelli sem sjálfsagðan hlut...“ „Ég ætla aftur til Sahara“, sagði Daníel, „ég á margt eftir ókannað þar“. Eftir Sahara fór Daníel fyrst til Parísar, en eirði þar ekki. Þá réði hann sig á búgarð við Stratford — upon — Avon í Englandi. Hann hélt til Aþenu — gat ekki hugsað sér að nema í Frakklandi. í Grikklandi var hann við bókmenntanám, að þvl er hann sagði. Hann sagðist hafa verið laus við námið. „Ég á eftir að ferðast svo miklu miklu meira. Ég lifi fyrir ferða lög: þau gefa iífi mfnu gildi“. Þeir félagar voru á sífelldu flakki um I’sland i sjö vikur og tóku sér náttstað á sveitabæj- um eða sváfu i bflnum eða í hlöðum, en aldre'i á hótelum. Þeir höfðu nóg að borða. „Ég var alltaf að afla mér vitneskju um Iand og þjóð, safnaði kynja sögum og þjóðsögum, sem ég ætla að nota í væntanlega bók“, sagði Fransarinn. „Við fengum yfirleitt góðar móttökur alls staðar. Eitt sárn aði mér: Vinur minn skað brenndist i Námuskörðum. Hann hafðl verið að glannast við ieirhverina. Ég var þá að leita að hjólförum að Kröfiu. Þegar ég sé hann hoppa á öðr- um fæti, ekur bill fram hjá, með læknanúmeri: „Ég tek eft ir þvi, að læknirinn sér félaga minn svona á sig kominn, með bláan brunninn fótinn. Hann ekur leiðar sinnar. SIBar hitti ég Isekninn — hann *- heima f ákveðnum kaupstað. „Hvers vegna sinntirðu ekki félaga mín um?“ „Ég var í frii og þvf ekki skuldbundinn tll að vlnna lækn isstörf*. Ég hef ekki ennþá botn að í þessum fslenzka Iækni“. —stgr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.