Vísir - 08.09.1965, Síða 16

Vísir - 08.09.1965, Síða 16
VISÍK ffifðviKiKiagnr s. sept. T9ö5 Ahugi Kalnefndin hefur lagt til við landbúnaðarráðu- neytið, að hey verði út- vegað frá þeim hlutum landsins, sem vel eru settir með heybirgðir, og flutt sjóleiðis austur á land, til þeirra svæða. sem urðu illa úti vegna kalskemmda á túnum. Verði sumt af þessu heyi gefið en annað selt og veiti Bjargráðasjóður bæði lán til heykaup- anna og bein framlög til Tveir slösuðusf flutninganna. Blaðinu hefur borizt greinar- gerð frá landbúnaðarráðuneyt- inu um aðgerðir vegna heyleysis á Austurlandi, sem fylgir í kjöl- far kalskemmdanna þar. Er þar meðal annars greint frá laus- legri áætlun, sem kalnefndin hef ur gert um kostnað við útvegun og flutning á heyi til Austur- lands. Þar er áaetl. heyþörf 3 þ. tonn, þar af 1000 gefin og 2000 seld á 1500 kr. pr. tonnið eða alls á 3 milljónir króna. Þar við bætist binding og flutningur að skipi, 1100 kr. á tonnið, eða alls 3,3 milljónir króna, hafnargjöld, framskipun og flutningur 693,75 á tonnið, eða alls rúmlega 2 millj. króna, og loks uppskipun og hafnargjöld eystra, 243.75 kr. á tonnið, eða alls rúmlega 0,7 milljónir króna. Alls nemur þessi kostnafiur 9.112.000 krónum, en þar frá er áætlafi að dragist frá heykaup, 1500 kr. á tonnið, alls 4,5 millj., svo kostnafiur Bjargráðasjóðs er áætlaður 4.612.000 krónur. Hef- ur stjóm sjóðsins heitifi stufin- ingi sinum við þessar ráðstafan- ir. Kalnefndina skipuðu Pétur Gunnarsson deildarstjóri, Gísli Kristjánsson ritstjóri og Kristján Karlsson erindreki. Þeir hafa nú, að lokinni söfnun gagna og upplýsinga, tekið að sér að sjá um framkvæmdir í þessu máli. Búnaðarfélag íslands hefur tekið að sér að kanna, hversu mikið hey bændur f landinu Framh * bls 6 Rúrik í hópi leikkvenna á æfingu „Syndafallsins11 Leikritahríð í ÞJÓDLEIKHUSINU Tvö slys voru bókuð hjá lög- reglunni í Reykjavík, sem bæði urfiu skömmu fyrir hádegi i gær, en óveruleg meifisli i báðum tilfellun- um. Það fyrra varð kl. 10.15 á Kalk- ofnsvegi, en þar féll drengur af reiðhjóli og kastaðist í götuna. Hið síðara varð þrem stundar- fjórðungum síðar við Reykjavíkur- höfn. Unglingspiltur, Bjöm Hilmars son Sundlaugavegi 22 stóð aftan á vörubílspalli við m. s. Selá, en féll af pallinum og kvartaði undan þrautum í baki. Báðir piltamir voru fluttir í slysa varðstofuna til athugunar. 20 ný verk sett þnr á svið í vetur „Eftir syndafallið/# frumsýnt á sunnudap Vetrarstarf Þjófileikhússins hefst næstkomandi sunnudag mefi frum- sýningu á leikritl Arthurs Millers, „Eftir syndafalllfi“. Upphaflega var áformafi afi sýna að verk sl. vor en vegna tafa var þvi frestað til haustsins. Aðal- hlutverkin eru i höndum Rúriks Haraldssonar og Herdisar Þor- valdsdóttur, og er það almanna- rómur. að leikritið fjalli um sam- búð höfundarins og fyrrum eigin- konu hans, Marylin Monroe. Síðar í mánuðinum verða teknar upp sýningar á Jámhausnum eftir Jón Múla og Jónas Ámasyni, en það var leikið 25 sinnum fyrir fullu húsi á síðasta leikári. Þá verður sýnt leikritið Afturgöng- umar eftir Henrik Ibsen, og hefur Gerda Ring verið ráðin leikstjóri, en hún setti upp Pétur Gaut fyrir þrem ámm í Þjóðleikhúsinu. — Afturgöngumar þýddi Bjami Benediktsson frá Hofteigi og em leikendur Gunnar Eyjólfssón, Guð- björg Þorbjamardóttir, Valur Gíslason, Láms Pálsson og Bryn- dís Schram. Fyrir jól verður ennfremur sett upp stykkið „Endasprettur" eftir Peter Ustinov, alvöruþrungið gam- anleikrit í þýðingu Odds Björns- sonar. Aðalhlutverk leikur Þor- steinn Ö. Stephensen, áttræðan öldung, er rifjar upp aldurskeiðin. „Mutter Courage" eftir Bertol Brecht verður að öllum líkindum jólaleikrit, og um leið fmmsýnt nýtt bamaleikrit eftir Ingibjörgu Jónsdóttur, „Ferðin til Limbó“. Ingibjörg Þorbergs samdi lögin, en leikstjóri verður Klemens Jóns- son. Síðari hluta leikársins, eða eftir áramót er áformað að sýna írska leikritið „The Playboy of the Western World“ eftir John Synge í þýðingu Jónasar Ámasonar. Leikstjórinn er ísléhdingum að góðu kunnur .Thomas MacAnna. Framhald á bls. 6. vaknaður austantjalds á aðild að Evrópuráðinu >agt frá fundi Smithers framkvæmdastjóra EvrópuráÓsins með islenzkum fréttamónnum Óvenjulegur og all merkílegur hlutur hefur gerzt hjá Evrópuráðinu í sumar. Þangað haf a far- ið að koma fyrirspumir frá Austur Evrópulönd- um varðandi starfsemi Evrópuráðsins og virðist sem sú hugmynd sé að byrja að vakna austan jámtjalds, að Evrópu- samstarfið kunni einnig að verða gagnlegt fyrir Austur Evrópuríkin. Peter Smithers framkvæmda- stjóri Evrópuráðsins skýrði fréttamönnum Reykjavíkurblað- anna frá þessu 'á fundi sem hann hélt með þeim í gær. Þetta var aðeins eitt af mðrg um atriðum varðandi Evrópu- samstarfið sem hann ræddi. En Smithers sagðist gera sér von ir um að í framtíðinni gætu Austur Evrópuþjóðimar gerzt aðilar að Evrópusamstarfinu. Og greinilega hefur komið fram í umræðum á ráðgjafarþingi Evrópuráðsins, að stjómmála- menn á Vesturlöndum gera sér vonir um þátttöku Austur Evr- ópuþjóðanna og þær raddir hafa Framh á ols 6 króna og Bjargródasjódur borgi helminginn Á biaðamannafundinum I gæn Smithers framkvæmdastjóri Evrópnráðsins og Pétur Eggerz sendiherra, fulltrúi Islands hjá Evrópuráði. LÉLEG SÍLDVEIÐI Á ÍSLANDSMIÐUM Norska eftirlitsskipið, „Nomin“, I 15 norsk sildveiðiskip eftir á kom nýlega til Þórshafnar til þess síidarmiðunum, og er búizt við, að sækja vistir, áður en það leggur | að vertfð þelrra ljúki um miðjan f sfna sfðustu ferð á síldarmiðin I september. við lsland f ár. Nú eru aðeins um I Skip>stjórinn á „Nominni", Johan 3000 T0NN AF HEYI '.........ÍÉI FLUTT Aætlað að kostnaður nemi um 9 milljónum Mydske, sagði 1 viðtali við frétta ritara „Aftenposten“ að eftirlits- skipið hafi margsinnis þurft að s’inna viðgerðum og öðrum verk- efnum síðan það lét úr höfn í Bergen 17. júní s. 1 .Þá voru um 60 norsk síldveiðiskip á Islands- miðum, en nú eru flest þeirra farin á miðin við Bjamarey eða Shetland. Síldveiðin við Island i sumar hef ur verið léleg, bæði hjá Norðmönn um og Islendingum. Samkvæmt síldveiðiskýrslu um 30 norskra skipa reiknast meðalafli hvers skips um 700 tunnur. Afli 24 snur voðarbáta reiknast 5-10 þúsund hektólítrar fyrir hvert skip. Ekki hafa mörg rússnesk skip stundað síldveiðar við ísland i sumar. Stór hluti rússneska veiði- flotans er á miðunum milli Jan

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.