Vísir - 05.11.1965, Síða 2
v 181R . Föstudagur 5. nóvember 1965.
Þarna eru nokkrir af piltunum í skí'ðadeild Víkings fyrir framan skálann sinn. Frá vinstri eru á myndinni
Jóhannes Tryggvason, Gísli Elíasson, Ólafur Friðriks-son, sem er að útskýra fyrir þeim teikningu hússins,
Sigurður Hauksson og Brynjar Bragason.
Nýr skáli á rúst-
um hins gamla
Innan skamms munu piltarnir í Víkingi státa af nýjum og
glæsilegum skíðaskála i Sleggjubeinsskarði, skammt fyrir
ofan Kolviðarhól og Skíðaskála Vals. Þeir byggja á rúst-
um hins gamla skála síns, sem brann á páskadagsmorgun
1963.
Starfsemin í Skiðadeild Vík-
ings er öflug sem sjá má af því
að það er ekki nema ár liðlð frá
því að framkvæmdir hófust
þama efra og um næstu helgi
vonast piltamir til að skállnn
verði fokheldur. Og nú er líka
á þrotum það fé, sem trygging-
arnar greiddu eftir brunann og
fyrirsjáanlegir erfiðleikar em í
innréttingu á skálanum vegna
fjárskorts. Hins vegar hafa marg
ir gamlir félagar lofað að styðja
deildina með ráðum og dáð eins
og oft fyrr og því er nokkur von
um að innréttingín komist á rek
spöl í vetur og næsta sumar. í
vetur verður vart hægt að taka
á mpti gestum, en hins vegar
ætla skíðamenn Víkings að nota
skálann og hafast þar við og
vinna um helgar en bregða sér
þess á milli út í hinar ágætu
skíðabrekkur.
Nýl skálinn er talsvert stærri
en sá gamli sem brann. Gólfflöt-
urinn er 155 ferm. og fyrir utan
hann að sunnanverðu er 25 ferm.
pallur og verður áreiðanlega vin
sæll af þeim, sem vilja fá
sér gott sólbað. í skálanum
verður stór stofa með arnl, svefn
salur fyrir 50 manns, eldhús og
snyrtiherbergi með sturtubaði.
Stutt frá rennur tær og fallegur
lækur og heitt vatn mun vera
víða í jörðu á þessum slóðum,
þannig að heitt og kalt vatn ætti
ekki að skorta í framtíðlnni.
....... ..............I
Körfuknattleiks-
mót Reykjavíkur
hefst á morgun
\
\
Á morgun hefst á Hálogalandi Körfuknattleiksmót Reykjavíkur.
Fyrstu leikimir eru þessir:
2. f 1. karla KR - KFR
1. fl. karla KR - ÍR
Mfl. karla ÍR - KFR
Á sunnudag heldur mótið áfram og fara þessir leikir fram:
3. fl. karla ÍR-a — Ármann
2. fl. karla ÍR-b — Ármann
Mfl. karla ÍR - KFR
Þarna er skálinn eins og hann lítur út ofan úr hrikalegu klettabeltinu. Pilarnir eru að vinna að því að
klæða þakið.
HEILBRIGÐIR FÆTUR
eru undirstaða vellíðunar. Látið þýzku BIRK-
ENSTOCKS skóinnleggin lækna fætui yðar
Móttökutimi föstudaga og laugarcaga kl. 2—7
e. h. — Aðra daga eftir umtali Símí 2015b
SKÓ-INNLEGGSSTOFAN Kaplaskjóli 5
Knuttsg)yrnuin®nn
B
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Breiðabliks í Kópavogi verður haid
inn i kvöld kl. 20 30 i Sjálfstæðis-
húsinu í Kópavogi. Eru allir félag-
ar deildarinnar hvattir til að mæta
á fundinn og nýir félagar eru vel-
komnir.
Raðhús v/ð Sæviðarsund
Höfum til sölu 145 ferm. raðhús ásamt 25
ferm. bílskúr. Selst fokhelt.
Allt á sömu hæð, 5—6 herb. ásamt þvotta-
húsi og geymslu.
Teikningar liggja frammi á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10, 5. hæð Sími 24850. Kvöldsími 37272