Vísir - 05.11.1965, Page 16
VERKNAMSSKOUNN AÐ FL YTJA
'fz
Föstudagur 5. nóvémber 1965.
VINNUSTOFUR SINARIARMULA
mm
Aðalbygging nýja skólans
boðin út á næstunni
Myndin var tekin i morgun i einni af hinum nýju og glæsilegu smíðastofum i Gagnfræðaskóla verk
náms. Voru tveir kennarar, þeir Sigurður Úlfarssoit (t. v.) og Marteinn Sívertssen að undlrbúa
kennslu. (Ljósm. Vísis — B. G.).
1 borgarstjóm Reykjavíkur
urðu i gær umræður um málefnS
Verknámsskólans. Þar skýrði
borgarstjóri, Geir Hallgrímsson,
frá þvi, að nú væri að Ijúka 1.
áfanganum við byggingu nýs
verknámsskóla við Ármúla. Er
búið að ljúka efri hæð hússins,
þar sem trésmiðavinnustofur
verða og líefst kennsla í þeim nú
um helgina. EftSr 10 daga verður
svo neðri hæðinni skilað ,en þar
á kennsla i málmsmíði ýmiss kon
ar að fara fram.
Þá upplýsti borgarstjóri til
viðbótar þessu, að nú væri ver
ið að ganga frá vinnuteikning-
um og útboðsskjölum að 2. og 3.
áfanga skólans og ætti að bjóða
verkið út upp úr áramótum. Þar
værj um að ræða aðalbyggingu
skólans, þar sem yrðu 14 bók-
legar kennslustofur, bókasafn,
kennarastofa og skrifstofa skóla
stjóra.
Tilefni þessara umræðna var
að borgarfulltrúi kommúnista,
Guðmundur Vigfússon, hafði bor
ið fram tillögu um að „harma
það ófremdarástand" sem væri
ríkjandi í húsnæðismálum Gagn
fræðask. verknáms o. s. frv.
Flutti Guðmundur harða ræðn
þar sem hann sagði að
skólamál Verknámsskólans væri
hneyksli. Taldi hann að bæði
væri óviðunandi, að nú, þegar
hluti skólastarfsins flyttist inn
í Ármúla, þyrfti hluti nemenda
að ganga þangað um stundar-
fjórðungsleið og ennfremur
væri húsnæði það sem skólinn
hefði á leigu í Brautarholti alger
lega óviðunandi. Lýsti ræðu-
maður því, svo, að það væri
iðnaðarhúsnæði sem stíað hefði
verið í sundur með trétexi og
hefðu svo verið brotin göt á
þetta trétex hér og þar. Einnig
kvartaði hann um að byggingar-
starfsemi og bílaumferð í Braut
arholti hefði svo alvarleg áhrif
Framhald á bls. 6.
FEIKNA SPJÖLL Á VEGUM 0G BRÚM
í VEÐRINUUM GERVALLT VESTURLAND
í morgun bárust fréttir um
miklar vegaskemmdir upp úr
Vatnsfirði. Þar verður ófært öil
um bifreiðum fram yfir helgi,
sagði Snæbjöm Jónasson yfir-
verkfræðingur, er blaðið leitaði
nánari frétta hjá honum i morg
un um vega- og brúarspjöll af
völdum vatnavaxta og aur-
skriða í veðrinu. Þá kvað hann
ófært á Klettshálsi og Ódrjúgs-
hálsi á Vestfjarðaleið og i fjörð
unum sjáifum á aliri Barða-
ströndlnni hefðu orðið vegar-
spjöll og rifið frá brúm.
I fyrstu fréttum blaðsins i
gær af þessum spjöllum var
sagt frá skriðum er féllu i Dýra
firði. Önundarfirði og á Bolung-
arvikurveg og víðar. Auk þess
sem 30 metra breið skriða féll
yfir þjóðveginn í Dýrafirði urðu
skriðuföil á vegina í Súganda-
firði og Patreksfirði og skriða
féll á veginn fyrir ofan Flateyri.
Frá Vatneyri var sambandslaust
við flugvöllinn á Sandeyri. Fyrir
botni Önundarfjarðar voru ár í
vext og flæddu yfir stórt svæði.
Frá ísafirði bárust fréttir um
spjöll á þjóðveginum beggja
vegna við ísafjörð og var ekki
vegarsamband við Hnífsdal.
Á Barðaströnd gróf talsvert
frá brúm og ein brú, þar sem
gróf undan stöpli, kann
Sjö fluttir til
læknisaSgerða
Næsta mikil brögð voru að ýmiss
konar slysum og óhöppum á fólki
í Reykjavík í gær og nótt. Urðu
sjúkrabíiar og lögreglubílar að
fiytja sjö manns til læknisaðgerða
í Slysavarðstofuna á þessum tíma.
Fyrsta slysið varð fyrir utan
prentsmiðjuna Eddu fyrir hádegið
í gær og var þá skýrt frá þvi laus
lega i Vísi.
Um klukkan hálffjögur eftir há-
degið féll kona á húsatröppum í
Karfavogi 24 og meiddist á fæti. (
Hálfri stundu síðar fékk kona að-
svif f verzluninni Síld og fiskur á
Bergstaðastræti og datt á gólfið.
Klukkan tæplega hálf fimm féll
maður f stiga í Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufunesi og meiddist eitt
hvað.
Annar maður féll í stiga i Hátúni
6 klukkan tæplega tvö í nótt.
Þá urðu tveir menn fvrir bifreið-
um. Annar þeirra vestur á Melhaga
um fimmleytið e.h. í gær, en hinn
hafði orðið fyrir bifreið í Hafnar-
stræti rétt eftir miðnættið. Komst
hann af sjálfsdáðum inn i lögreglu
stöðina, skýrði þar frá málsatvik-
um og kvaðst vera meiddur.
Ekki taldi lögreglan að hér væri
yfirleitt um veruleg meiðsli að
ræða á fólki Hins vegar er þetta
með mesta móti sem lögregian er
ónáðuð út af slysum á einum og
sama sólarhring — a.m.k. í miðri
viku.
að reynast ónýt. Laxá í Reyk-
hólasveit var í miklum vexti.
Enn er beðið nánari frétta af
spjöllum allviða.
Mikiil vöxtur er i ám á öllu
Vesturlandi, m. a. hefir Hörðu-
dalsá fiætt yfir veginn á Skógar
ströndinni, og mikill vöxtur
hijóp í ár í Borgarfirði, Norð-
urá, Hvítá og fleiri.
Síðari fréttir herma, að sums
staðar sé vatn þegar tekið að
sjatna allmikið.
Hvítá í Borgarfirði flæddi yf-
ir bakka sína og yfir þjóðveginn
hjá Hvitárvöllum og vestan við
Síkisbrýrnar. í gærkvöldi lenti
bíll þar i vandræðum vegna
flóðsins, en honum var náð-opp
seint í gærkvöldi. í nótt sjatnaði
svo í ánni að nú er vegurinn svo
til þurr og fær öllum bílum.
FLUGVEÐUR
Vísir átti tal við Flugþjón-
ustuna h.f. um kl. 10,30. Hafði
Framh. á bls. 6
Skemmdir vegna éveðurs
í Reykjavík og Hahurfirði
Talsvert bar á foki lausra muna,
jámplatna og loftneta í Reykjavík
i hvassviðrinu í gær og nótt.
Strax fyrir hádegið í gær var beð
ið um lögregluaðstoð vegna þess
að járn væri t.kið að losna af þök
um nokkurra húsa, þ.á.m. Grundar
stíg 11, Bergþórugötu 2 og á húsi
inni í Hólmgarði.
Síðdegis í gær urðu einhverjar
skemmdir á bifreið vestur á Ný-
lendugötu vegna þess að þakgluggi
hafði fokið á bifreiðina. Þá fauk
ennfremur eitthvað af þakskífum af
þaki þýzku sendiráðsbyggingarinn-
ar við Túngötu
I' nótt bárust. lögreglunni tilkynn
ingar og kvartanir víðs vegar að
vegna alls konar hluta sem voru
á foki eftir götunum og milli húsa,
ennfremur voru þakplötur að fjúka
og útvarps- og sjónvarpsloftnet að
fjúka niður. Mest brögð voru að
þessu ' jrgþórugötu, Kleppsvegi
Túngötu, Grensásvep' og Breiða-
gerði.
í Hafnarfjarðarhöfn sleit upp lít-
inn bát, sem rak upp f fjöru fram
undan Ráðhúsinu. Þar var og kvart
að undan plötufoki á einum stað.
Ölvaður ökumaðnr eltur
Um hádegið í gær þegar umferð
var hvað mest á götum borgarlnn-
ar, var Volvo fólksbifreið ofan úr
Borgarfirði ekið aftan á bifreið frá
þýzka sendiráðinu á suðurhluta
Melatorgs.
Eftir áreksturinn ók ökumaður
Volvobifreiðarinnar aftur á bak en
lenti við þar á næsta bíl fyrir aft
ian sem var af Moskvitchgerð.
Skemmdust báðir bílarnir nokkuð.
Við þessar ófarir ók Volvo-bil-
stjórinn út úr bílaröðinni, en varð
að nema staðar vegna umferðar
hnú'ts, sem myndazt hafði.
Lögregluþjónn var, þegar þetta
gerðist, staðsettur á Melatorgi tij
að stjórna umferðinni. Fór hann tii
ökumanns 'olvo-bifreiðarinnar og
bóttist sjá þess merki að hann
mvndi vera undir áfengisáhrifum.
En vegna þess að sjálfur þurfti lög-
regluþjónninn að sinna umferðinni
hafði hann samband gegnum talstöð
við lögreglustöðina og bað um menn
þaðan til að taka árekstursmálið að
sér.
En á meðan greip ökumaður
Volvo-bifreiðarinnar tækifærið og
Frh. á bls. 6.