Vísir - 11.11.1965, Síða 7

Vísir - 11.11.1965, Síða 7
VlSIR . Fimmtudagur 11. nóvember 1965. 7 Guðlast eða ekki guðlast? Fyrsta boðorð kristins manns hljóðar: „Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig“ Annað boðorð hljóðar: „Þú skalt ekki leggja nafn drottins guðs þíns við hégóma, því að drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma“. Síra Jón Auðuns, dómprófast- un „Ég stend auðvitað við þetta allt « „Mega prestar gagn- rýna kirkjuna ?“ Círa Jón Auðuns sagði, þegar hann var inntur eftir því, hvernig hann hefði brugðizt við samþykkt Hins almenna kirkju fundar: „Ég var ekki á kirkjufundin um. Ég frétti fyrst um þetta í gær, þegar blaðamaður Þjóð- viljans talaði við mig til að grennslast um álit mitt á sam þykktinni.“ Hann kvaðst ekki einu sinni hafa lesið fréttina. Þegar dóm- prófasti var sagt, að biskupinn hefði verið varkár í ummælum, sagði hann: „Já. eins og vera ber.“ Dómprófastur var beðinn um að gera nánar grein fyrir sinni hlið málsins og hvort hann teldi sig ekki bera ábyrgð á þessum ummælum sínum um trúmái, sem hefðu haft jafn- sögulegar afleiðingar og hefði komið á daginn. Hann sagði snöggt: „Ég stend auðvitað við þetta allt eins og annað, sem ég segi og hef sagt í Morgunblaðinu" „Teljið þér ummæli yðar ó- skaðfeg kirkjunni samkvæmt þessu?“ „Ég svara engu um það á þessu stigi, en er þetta ekki fyrst og fremst spumingin um það, hvort prestar og þjónar kirkjunnar hafi leyfi til að gagn rýna kirkjuna eða ekki?“ Vísir reyndi að ná tali af herra SigurbimJ Einarssyni, biskupi, í allan gærdag, tfl þess að leita álits hans á samþykkt Hins almenna kirkjufundar, en það bar engan árangur. Sneri blaðlð sér þá til prófessors Jóhanns Hannessonar. Engin guðfræðileg nýjung Orófessor Jóhann Hannesson sagði: „Ég hef ekki rekizt á neitt nýtt, sem hefur komið frá síra Jóni Auðuns, sem hefur ekki áð ur sézt í ræðu eða riti, annað hvort í fomöld, í fomkirkjunni — eða í hinum og þessum hreyf ingum nátímans, svo að guð- fræðilega séð er ekki um neina nýjung að ræða.“ „Teljið þér ummæli hans skaða kirkjuna og trúarlífið?“ „Það hugsa ég ekki — menn eru orðnir svo vanir þessum hugsunum í gegnum ræðu og rit, að það ætti ekki að breyta í eina eða aðra átt.“ „Teljið þér ummæli hans vera guðlast?" „Hann er ekki að deila á guð sjálfan — hann er að gagnrýna kirkjulegar kenningar eða þann ig skil ég það.“ Falsspamennska! Visir sneri sér síðan til Sig- urðar Vigfússonar. Þegar hann var spurður, hvort hann tryði á heilaga þrenningu og meyfæðinguna, sagði hann óðara já. „Ég trúi á Jesús, trúi þeirri opinberun, sem gað hefur gefið f Jesús Kristí og fagnaðarerindinu sem guðsorði." „Særði þetta trúarvitund yð- ar, þegar þér lásuð þessi um- mæli dómprófastsins?“ „Mér fannst ekki hægt að gera annað en að gagnrýna þetta opinberlega — það hefur líka sýnt sig, að það er ailt of Iftið um trúvöm hér á landi." „Við, sem vfljum tfleinka okkur guðs opinberun í Jesús Kristi, viðurkennum aðeins ema bók sem við teljum heilaga bók — það er biblían. Sú fræðsla, sem opinberar okkur þekkingu á guði, er aðeins greind f biblíunni. Síra Jón Auð uns talar um 100 helgar bæktn1 í þessu tilfelli og með því dreg ur hann biblíuna niður og ger ir hana samstæða öðrum ritum, sem eiga ekki rétt á því að kall ast heilög rit. En f upphafi J6- hannesar guðsspjalls segir svo: Og orðið varð hold — og hann bjó með oss fuljpr náðar og sannleika. Það er falsspámennska að tala um spiritisma og kristin- dóm í sömu andrá og setja allt á einn disk og bera fram sem iffsins brauð eins og kemur glögglega fram hjá dómprófasti. Einar Amórsson dr. juris sem var einn sterkasti lögfræðingur landsins f kirkurétti segir f bók sinni Kirkjurétti, að menn sem afneita gmndvallarkenningum kirkjunnar, hafi ekki rétt til þjónustu í kirkjunni lögum sam- kvæmt“. „Má samkvæmt þessu draga kirkjunnar þjóna fyrir dómstóla fyrir ummæli á borð við þau, sem d^mprófastur lét birta f Morgunblaðinu?" „Já, það hefur verið rætt um það. Ríkið á samkvæmt stjóm- arskránni að verja kirkjuna gagnvart hvers kyns skaða. Þeg ar prestur tekur vígslu, skuld bindur hann sig til að þjóna kirkjunni og játar þar po$tul- legar kenningar hennar í orði og verki. Hegðan sira Jóns Auð uns ber að skoða sem ófyrir- leitni. Það er betra fyrir þessa Sigurður Vigfússon, forstöðu- maður Heimatrúboðsins: „Það er betra fyrir „þessa menn“ að segja sig frá embætti ...“ menn að segja sig frá embætti — það er ekki hægt að réttlæta háttalag þeirra með hugtakinu trúfrelsi". „En segið mér eitt er ekki Heimatrúboðið sértrúarfélág?" „Nei, það tilheyrir hinni evangelisku-lúthersku kirkju og þar er ekki um að ræða neitt frávik frá kenningum kirkjunn- ar. Hjá okkur er að vísu enginn söfnuður — þetta er aðeins á- hugafólkiv Sigurður skýrði blaðinu frá því, að vegna tillögu sinnar hefði komið fram breytingartil- laga, sem Páll Kolka læknir og fleiri löguðu til, meining- in hefði verið sú sama. „Við getum aldrei lifað heil brigðu kirkjulífi ef kirkjan sýnir undanlátssemi og vanvirðir sinn tilverarétt. Annað hvort lítum við á kirkjuna sem stofnun, sem hefur,rétt, eða við höfum ekkert með hana að gera. Það verður að tengja kirkjulff við eðlilegt daglegt líf. Það þýðir ekki að kenna kristindóm eins og lyga sögu ef á að vera nokkurt sam- ræmi í lífsskoðun mannsins." „Er guðlast synd númer eitt að yðar hyggju?“ „Tvíriiælalaust, smbr. fyrsta boðorðið þú skalt ekki aðra guði hafa og það næsta: og ekki leggja nafn drottins við hé góma. Hins vegar eru allar synd ir fyrirgefnar þeim manni, sem tekur á móti náð í Jesú Kristi — þetta er það, sem kirkjan grundvallast á.“ „Þér töluðuð um trúfrelsi og ennfremur vitnuðu þér í dr. juris Einar Arnórsson heitinn, það, sem hann segir f Kirkju- rétti um þá sem afneita grund vallarkenningum kirkjunnar?" „Ég skál gefa yður það orð- rétt, sem stendur í bók hans, „Játningarrit íslenzku kirkjunn ar — Studia Islandica, bls. 78 —79. Þar segir svo: í ríki. þar sem trúfrelsi er lögvarið eins og hér á landi, hafa einstakling ar auðvitað rétt á að trúa engu eða því, sem bezt á við sann færingu þeirra. Sama máli gegn ir einnig um kennimenn kirkj unnar, en sá er einungis mun- urinn, að þeir geta ekki búizt við því að halda stöðum sínum, ef þeir afneita opinberlega, í ræðu eða riti, þeim höfuðtrúar 'lærdómum sem trúarritin geyma. Afneitun á sumum trúar kenningum kirkjunnar mundi væntanlega varða kennimenn hennar tvímælalausum stöðu- missi.“ s t g r. t Það, sem gerðist á kirkjufundinum: Prófessor Jóhann Hannesson: „Síra Jón Auðuns er að gagn- rýna klrkjulegar kenningar". almennum kirkjufundi, hin- um fimmtánda f röðinni, sem haldinn var hér í Reykja- vík 15.—18. október, gerðust þau tíðindi að fundurinn sam- þykkti tillögu um vítavert fram ferði embættismanna þjóðkirkj- unnar. Tillaga þessi var borin fram og samþykkt vegna um- mæla, sem séra Jón Auðuns dómprófastur hefur viðhaft í greinum í Morgunblaðinu. Þar sem nokkur blaðaskrif hafa þeg ar spunnizt út af þessari sam- þykkt kirkjuþings telur Vísir rétt að gera hér hlutlaust grein fyrir málinu og hefur átt við ræður við þrjá aðila um þessa afstöðu kirkjuþings Á kirkjufundinum var borin fram tillaga og samþykkt, sem hljóðar á þessa leið: I „Hinn almenni kirkjufund- ur álítur það vítavert, að embættismenn þjóðkirkjunn- ar fari óvirðingarorðum f ræðu og riti um vora heil- ögu kirkju, þær kenningar hennar eða það starf henn- ar, sem er ótvírætt í sam- ræml við Guðs orð.“ Samkvæmt vitneskju, sem Vísir aflaði sér, er Sigurður Vigfússon, forstöðumaður Heimatrúboðsins (Zion) upp- ■ hafsmaður að því, að þetta mál var tekið fyrir á hinum almenna kirkjufundi. Heimatrúboðið á- samt KFUM og Kristniboðsfél aginu (Betaníu) er samfélag inn an kirkjunnar og eru jafnan tveir meðlimir frá hverju þess ara félaga fullgildir fulltrúar á kirkjufundum. Þeir hafa þar all ir sinn fulla rétt, á sama hátt og prestar. Hinn almenni kirkjufundur er haldinn jafnt fyrir leikmenn og lærða og hafa allir málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hafa aðeins ofangreindir, auk sóknarnefndarmanna og organ- ista. Eins og fyrr segir var það Sigurður Vigfússon sem tók af skarið. Hann bar fram tillögu, sem var orðuð svo: „Hinn almenni kirkufund- ur haldinn 15.—18. október 1965 harmar, að í víðlesn- asta blaði borgaririnar skuli þjóðinni hafa verið fluttur í nafni kirkjunnar boðskapur, þar sem m. a. segir svo:... Dauðinn „er ekki refsing fyrir neitt.“ Hann er „hlið og þeim mun dýrlegra hlið sem sálin er oftar búin að deyja“. Og ennfremur segir, að hægt sé „að vera krist- inn án allra kirkjukénninga.“ Boðskap þennan telur hinn almenni kirkjufundur hvort tveggja í senn, ókristilegán og ókirkjulegan og því hljóti hann að hafa mjög óholl áhrif, ekki hvað sízt á æskufólk.“ Þess; tillaga var ekki sam- þykkt, en vegna hennar samin önnur tillaga — sú sem birt var hér á undan. Samþykkti kirkjuþing hana.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.