Vísir - 23.11.1965, Page 2
2
/
V í S IR . Þriðjudagur 23. október 1965.
Vann keppnina í nótt með
yfirburðum - Vann allar
loturnar nema eina - Rot-
högg í 12. lotu
Cassius Clay er enn
heimsmeistari í þunga-
vigt í hnefaleikum. Og
líklega er enginn vafi á
því, að hann „er sá mesti
og bezti“ af öllum hnefa
leikurum í heiminum í
dag. Sennilega verður
þess langt að bíða, að
hans jafnoki fyrirfinnist
í þessari íþróttagrein.
Floyd Patterson, 30 ára,
og það er gamall hnefa-
leikari, sá eftir keppn-
ina fram á endalok ferils
síns, eftir þennan 106.
bardaga um heimsmeist
aratignina, en Floyd var
hréinlega bjargað frá
frekari blóðsúthelling-
um eftir 2 mín og 18 sek.
í 12. lotu í nótt.
Floyd varð mjög ungur til
þess að vinna heimsmeistaratit-
ilinn í hnefaleik, eða rúmlega
tvítugur og hefur enginn yngri
maður náð þessu marki. Hann
afsannaði líka kenninguna um
að „they never come back“, því
hann varð heimsmeistari aftur,
eftir að hann hafði tapað titl-
inum og hafði það aldrei gerzt
fyrr.
Hnefaieikaköppunum var tek
ið misjafnlega, þegar þeir birt
ust á hnefaleikapallinum { Las
Vegas, spilaborginni frægu.
Floyd var tekið með geysileg
um fagnaðarlátum, en þegar
heimsmeistarinn gjörvilegl birt-
ist í hvítum silkislopp merktum
Black Muslims, kvað við ó-
ánægjublístur og háðsyrðum
rigndl yfir Casslus Clay.
Frá upphafi Var greinilegt að
Clay var betri hnefaleikarinn,
14 ÁRA - SETUR
2 ÍSLANDSMET
Eftlr harða keppni við Matt
hildi Guðmundsdóttur i innan-
félagsmótl í Sundhöll Reykja-
víkur s. 1. föstudagskvöld, setti
Hrafnhlldur Kristjánsdóttir Ár-
manni met í 1000 m. og 1500 m
skriðsundi, eru þetta jafnframt
stúlknamet og teipnamet þar
sem Hrafnhlldur er aðelns 14
ára. Timar Hrafnhildar voru í
1000 m 15:03,9 og í 1500 m
22:22,9, Matthildur syntl á 15:
: ' ...............................
05,4 og 22:24,9. Gamla metlð í
1000 m átti Ágústa Þorsteinsd.
Á. en 1500 m höfðu ekki verið
syntir hér áður.
Ennfremur var keppt í 1000
m. bringusundi karla. Urðu úr
sllt þau að jafnir voru dæmdir
þeir Guðmundur Þ. Harðarson
Æ. og Reynir Guðmundsscn A.
á 16 mín. og 30,4 sek. Óiafur
Einarsson Æ. var þriðji á 17:09,
09 en Ólafur er aðelns 13 ára.
CASSIUS CLAY — sigur í öllum lotum nema einni — rothögg í 12. lotu.
enda bjuggust langflestir við
sigri hans og að það mundi
verða „knock out“-sigur i 76.
sinn i heimsmeistarakeppni í
þungavigt. Sjálfur hafði Clay
spáð því að hann mundl vinna
í 4. lotu eða jafnvel þelrri
fimmtu. Clay naut stærðarmun
ar, mikils slagkrafts og arm-
lengdar, en öll mál hans eru
tröllaukln f samanburði við
Floyd Patterson.
Högg Pattersons á Clay virt
ust lítilvæg og bar Clay þau
mjög vel, kallaði jafnvel upp að
það væri varla hægt að gefa
stig fyrir bau, því hann fyndi
ekki fyrir þeim. Clay sótti mjög
með hröðum vlnstrihandar
„krókum“ og þessi högg áttu
eftir að pína óg kvelja Patter-
son í gegnum 11 lotur, en að
aukl tóku sig upp gömul meiðsli
í bakl, sem gerðu honum líka
erfitt fyrir. Eftir keppnina sagði
Floyd að þessi meiðsli væru orð
in 11 ára gömul.
Keppnl þessari hefði i raun
réttri átt að ljúka fyrr en hún
gerði. En Clay fann ekki rétta
höggið, og þrautselgja Floyd
Patterson var furðuleg gegn
þessum yfirburðaandstæðir.g. I
6. lotu fór Patterson í gólfið
en tókst þó að komast hjá taln
Sngu. Eftir 11. lotu var hann
orðinn skaddaður í andliti eftir
si-endurtekin högg undir augu
og skoðaði læknir hann, en taldi
í lagi að hann héldi áfram.
Eftir sjöttu lotu hafði Floyd
verið mjög máttvana og raunar
furðulegt hvað hann þoldi af
höggum.
Loks i 12. lotu eftlr 2 mín.
18 sek. fór Patterson í gólfið og
lá kyrr. Clay neitaði að fara
út í homið sitt og hófst talning
ekki eins snemma af þeim
sökum. Þess þarf ekki að geta
að Clay fíafði unnið allar, nema
fyrstu lotuna, en þá kom ekkert
högg frá Clay. Hinar lotumar
vann Clay með yfirburðum.
Þannig lauk þessari viðureign,
sem var einna líkust því að við
ættust fullorðinn maður og Iítill
drengur, — ójafn og leiðinleg-
ur leikur.
mrnei
Þær keppa saman í kvöld á Haustmóti SRR I Sundhöll Reykjavíkur í 100 metra skriðsundi og nú er spurn-
ingin sú hvort ungu stúlkunum tekst að ógna Hrafnhildi? Á myndinni: Hrafnhildur K., Hrafnhildur G. og
Matthlldur.
Dómarar bera sam-
an bækurnar
Annað kvöld heldur Dómaranefnd HSÍ fund með félögum sínum
í félagsheimili Vals og Hefst hann kl. 20.30. Á fundinum mun Hann-
es Þ. Sigurðsson skýra breytingar á handknattleiksreglunum, sem
þegar hafa tekið gildi. Er hér um mjög merkileg atriði að ræða
og nauðsyn að allir handknattleiksdómarar mæti og beri saman
bækur sínar.
Undanfarin ár hefur mjög verið fundið að því að dómarar mættu
ekki á fundi sem þessa og hefur þetta orðið til þess að mjög mikið
ósamræmi hefur verið í dómum manna.
Meðal þess sem nú er búið að afnema er óþarfa flaut í leikjum
og má leikmaður nú senda boltann án þess að dómari gefi merki,
af réttum stað þó eins og gefur að skilja. Þá er reglan um skref
mjög brpytt og. mun hún skýrð á fundinum.
I