Vísir - 23.11.1965, Page 4
V I S I R . Þriðjudagur 23. október 1965.
HERBERT GUÐMUNDSSON:
UM SVEIT, BÆ
„ÞJÚÐARSLYS“
Á sínum tíma kváðu skipu-
lagsfróðir menn upp þarui dóm
yfir bæjarmyndun i Kópavogi,
að afleiðingin af því hvernig
staðið hefði verið að henni væri
„þjóðarslys".
Kópavogur hefur á 20 árum
byggzt úr fáeinum grasbýlum
í annan stærsta kaupstað lands-
ins. Það er almenn skoðun að
bæjarstæðið sé fagurt og að í
upphafi hafi það gefið alla
möguleika á að þar'stæði heil-
steyptur bær. Tímabilið, sem
bærinn hefur verið byggður á,
hefði og átt að gefa möguleika
til tæknilegs undirbúnings og
varanlegra framkvæmda.
Það er hins vegar alkunnugt,
að uppbygging Kópavogsbæjar
hefur alltaf verið mjög laus í
reipunum. Byggð hefur verið
dreift yfir víðáttu án teljandi
skipulags, án tæknilegs undir-
búnings að nokkru marki og án
þess að bæjarfélagið hefði fyr-
irsjáanlega bolmagn til þess á
hverjum tíma, að byggja upp
og trvggja samhliða nauðsynleg
ustu þjónustu.
Upphaf þéttbýlis í Kópavogi
með þessu háttalagi var að
vísu ekki sú fjárstæða sem síð-
ar varð, þegar ljóst var orðið
að þar myndi rísa upp stórt
sveitarfélag með margs konar
skyldur við íbúana.
Hér verður ekki kveðið upp
úr um það, hvort „þjóðarslys"
er rétt lýsing á uppbyggingu
Kópavogsbæjar allt fram á
þennan áratug. Til þess þarf að
vega og meta mörg ólík atriði.
En það er tvímælalaust slysa
legt, að annað stærsta bæjar-
félag landsins skuli hafa risið
frá grunni í skipulagsleysi og
vanefnum, megin tímann við
hinar beztu þjóðfélagsástæður,
sem hér hafa verið. Afleiðingin
með öllum lögnum verður að
endurbyggja í nánustu framtíð,
þar sem eldri framkvæmdir
voru aðeins til bráðabirgða eða
ætlaðar langtum fámennari
bvggð. Jafnvel þær götur, sem
lagt var á „varanlegt slitlag" í
sumar sem leið, falla undir end-
urbyggingu, vegna ónógra
lagna í þær. Skólabyggingar eru
langt á eftir áætlun ög hefur
ærin verkefni í Kópavogi við
að endurnýja fyrirhyggjulitlar
framkvæmdir og að ná upp
fullri þjónustu bæjarins við þá
byggð, sem fyrir er, jafnframt
því sem vinna þarf að nýjum
verkefnum.
Uppbygging 9 þúsund manna
sjálfstæðs bæjarfélags á 20 ár-
um er á sinn hátt stórvirki. Það
megnar þó ekki að breiða yfir
þá staðrevnd að undirstöður
uppbyggingarinnar hafa ekki
fram að þessu verið nægilega
traustar. Það er hverjum bæj-
arbúa ljóst, þegar hann lítur
yfir bæinn og sér hve margt er
ógert, hve margt þarf að endur-
nýja þegar af dýrum fram-
kvæmdum, hve hægt gengur að
ná upp vanræksluhalanum og
STEFNUBREYTING
NAUÐSYNLEG
ER
í ljósi þeirrar forsögu, sem
fyrir hendi er að núverandi
Kópavogsbæ, gefur auga leið,
að áfram verður ekki haldið á
sömu braut góðu heilli. Verkefn
in sem enn eru óleyst frá fyrri
árum og óhjákvæmileg frekari
stækkun bæjarins krefjast þess,
að bæjarmálin verði tekin fast-
ari tökum en verið hefur.
Það skref þarf að stíga fyrr
en síðar.
Fyrir bæjarstjórnarkosningar
1962 var framkvæmdaáætlun
fyrir bæinn á stefnuskrá ann-
ars af þeim tveim flokkum, sem
nú mynda meirihluta bæjar-
stjórnar Kópavogs. Af hálfu
hins flokksins var því haldið
fram, að athuganir og áætlanir
læg]Ju þá þegar fyrir um þessi
efni og í stefnuskrá tekið skýrt
fram hvenær þessu og hinu
yrði lokið á núverandi kjörtíma
blii.
Af þessum málefnum hefur
lítið spurzt síðan. Engar form-
legar eða raunhæfar áætlanir
lágu fyrir og framkvæmdaáætl-
un hefur ekki verið samin. —
Handahófið hefur því ríkt á-
fram lítt áreitt.
Kópavogsbæ er nauðsyn á, að
snúið verði við blaði í stjóm
hans og af handahófinu taki við
formleg átök að þvi að leysa
vandamálin byggð á heildar-
mati á raunverulegu ástandi og
viðráðanlegum vexti bæjarins í
framtíðinni.
Útlit byggðarinnar í Kópavogi hefur veriö kallað „þjóðarslys“.
hefur þegar sagt til sín og hún . dregið sundur f þeim efnum á
verður dýrkeypt áður en yfir núvérandi kjörtfmábrii? Þar er
lýkur. því ærið verkéfni framundan.
Megnið af 50 km gatnakerfi Þannig mætti lengi telja upp
hve margháttaða þjónustu bæj
arbúar þiggja frá höfuðborg-
inni, ýmist án verulegs eða
nokkurs endurgjalds.
★
Ályktanir 15. kirkjufundarins
r' . \ 'i ■’ /. , . \.(,
Haldinn verði Dagur aldraðra
Hinn 15. almenni klrkjufundur
var haklinn í Reykjavík dagana
15.—18. október sfðastliðinn. Eft-
irfarandi ályktanir voru gerðar á
fundinum:
1) Hinn almenni kirkjufundur
beinir þakklæti til stjómarnefnda,
forstjóra og starfsfólks þeirra elli-
heimila, sem tii eru í landinu, og
telur starf þeirra mjög mikilsvert
fyrir þjóðfélag og kirkju.
2) Kirkjufundurinn beinir þeim
tilmælum til biskups og kirkju-
stjórnar, að haldinn verði hátíð-
legur dagur aldraðra einu sinni á
ári í þeim tilgangi, að fjallað verði
um málefni þeirra f ræðum og rit-
um, meðal annars til að láta í ljós
þakklæti fyrir það starf, sem aldr-
aðir hafa af hendi leyst, og til að
giæða almennan áhuga á velferð-
armálum þeirra.
3) Fundurinn beinir þeim til-
mælum til presta og safnaða í
Reykjavík og víðar um landið, að
þeir láti velferðarmál aldraðra til
sín taka, svo að aldrað fólk geti
snúið sér til forstöðumanna sinna
eigin safnaða með vandamál sfn.
Þá vill fundurinn þakka þeim söfn-
uðum og kvenfélögum safnaða,
sem þegar hafa tekið til við þjón-
ustu meðal aldraðra og unnið að
öðrum líknarmáium og mannúðar-
málum á einn eða annan veg.
4) Fundurinn tekur undir þakk-
læti Hvítabandsins til sr. Haralds
Hope, frú Hönnu Hope og Signe
Lindð fyrir stóra gjöf, sem norska
Hvítabandið hefur gefið til minn-
ingar um Ólafíu Jóhannsdóttur og
þau hafa með gjafabréfi afhent ís-
lenzka Hvítabandinu í þeim til-
gangi að styrkja íslenzkt dia-
konissustarf.
5) Fundurinn fagnar þvi, að ung
íslenzk stúlka, Unnur Halldórs-
dóttir, hefur lokið díakonissu-
menntun og er fús til að leysa af
hendi starf díakonissu í kirkju
vorri, og biður fundurinn henni
allrar blessunar í þessu framtíðar-
starfi.
6) Hinn almenni kirkjufundur
leyfir sér að benda þjóðinni á hina
knýjandi nauðsyn þess, að þjóð-
kirkja íslands öðlist aukið fjár-
hagslegt sjálfstæði, svo að hún
geti beitt sér fyrir ýmsum þeim
framkvæmdum sem hún álítur að-
kallandi í sínum verkahring á hverj
um tíma. Skorar fundurinn á hátt-
virt Alþingi að samþykkja nú þeg-
ar frumvarpið um Kristnisjóð.
7) Hinn almenni kirkjufundur
telur, að auka þurfi aðstoð við
aldrað fólk, fyrst og fremst á eftir-
farandi hátt:
1) Með safnaðarhjálp til þess
aldraða fólks, sem býr í heima-
húsum, einkum einstæðinga.
2) Með byggingu hentugra smá-
íbúða fyrir aldrað fólk, þar sem
hægt er að 1' • í té sameiginlega
þjónustu.
3) Með byggingu eða eflingu
sérstakra dvalarheimila fyrir
aldrað fólk, sjálfstæðra eða f sam-
bandi við almenn sjúkrahús.
4) Með sérdeildum fvrir aldrað j
fólk (geríatriskum deilum) við j
stræstu sjúkrahús landsins fyrir i
þá, sem þurfa sjúkrahúsvist.
5) Með sérstökum hjúkrunar-
deildum fyrir aldrað fólk, sem er
vanheilt á geði.
8) Hinn almenni kirkjufunáur á-
lítur það vítavert, að embættis-
menn þjóðkirkjunnar fari óvirðing
arorðum í ræðu og riti um vora
BRAUÐHXJSIÐ
SNACK BAR
SMURBR A UÐSTOFAN
Laugavegi 126 . S.24631
Lyftubíllinn
heilögu kirkju, þær kenningar henn
ar eða það starf hennar, sem er ó-
tvírætt í samræmi við Guðs orð.
9) Hinn almenni kirkjufundur
mælist eindregið til þess, að allir
landsmenn, sem láta kristindóms-
mál sig nokkru skipta, leggist
á eitt um að styrkja starf Hins ís-
lenzka Biblíufélags að því:
1) Að ljúka sem fyrst þýðingu
og endurskoðun Biblíunnar og
Nýja testamentisins,
2) Eignast bækistöð í Reykjavfk.
3) Taka f eigin hendur sölu og
dreifingu Biblíunnar,
4) Ráða framkvæmdastjóra.
5) Eignast bókasafn samboðið
félaginu.
10) Hinn almenni kirkjufundur
tjáir sig í aðalatriðum samþykkan
tillögum Jóns H. Þorbergssonar,
sem fram komu á kirkjufundi haust
ið 1963 um könnun á kristnihaldi
þjóðarinnar og trúarlífi lands-
manna, og vænti þess, að góð sam
vinna um þetta efni takist með
væntanlegri undirbúningsnefnd
næsta fundar og nefnd þeirri, er
síðasta Kirkjuþing kaus til könn-
unar á þessu sviði.
Sími 35643
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Jóns Arasonar hdl. fer fram
nauðungaruppboð á eftirtöldum bifreiðum,
sem allar eru af gerðinni Ford Taunus 12M.:
E 601, E602, E 603, E 604, E 605, E 606, Ö 1006,
Ö 1007, Ö 1008, Ö 1009, Ö 1010, Ö 1011,
Ö 1012, Ö 1013, og Ö 1014.
Bifreiðir þessar verða seldar í vesturenda
hússins nr. 2 við Suðurlandsbraut, hér í borg
fimmtudaginn 2. desember 1965, kl. 1,30
síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Bílstjóri óskast
Uppl. í verzluninni Víði. Starmýri 2.