Vísir - 18.01.1966, Side 2

Vísir - 18.01.1966, Side 2
.. jBðHnwBtnnewK^. ... Gestirnir í sundlauginni Á sundbolum \ í vetrarboði Barón Edmond de Rothschild vafði skýlunni þéttar um sig og leit yfir gestina 95 fáklædda 1 kringum upphitaða sundlaug sína og sagði: „Til þess að skemmta fólki nú á tímum verður þú að finna upp á ein- hverju nýju.“ Hinn 39 ára gamli barón — bankamaður, sem sagt er um að sé auðugastur Roths- childanna og áreiðanlega mesti bóheminn — var að halda þriggja dága boð fyrir gesti.sína í Megeve, bænum, sem er einna mest I tfzku af frönskum vetr- ardvalarstöðum og er að mestu eign barónsins. Og baróninum hafði svo sann arlega tekizt að bjóða upp á eitthvað nýtt fyrir gesti sína, sem voru rjómi hins alþjóðlega samkvæmislífs. Þarna var hægt að sjá ándstæðurnar á milli Suð urhafanna og snæviþakins um- hverfisins. Sundlaugin var að- eins skilin frá stórum snjó- skafli með einni glerrúðu, Úti fyrir var 10 stiga frost. Inni var hitinn og andrúmsloftið í ætt við sólarlöndin. Samkvæmisklæðnaðurinn í þessu boði barónsins voru rós- óttir dúkar í suðurhafseyjastíl, sem hver gestur vafði um sig eft ir því sem hugarflugið bauð hon um. Fólkið heilsaði hverju öðru með „Alloa“ kveðjunni, en það varð brátt útslitinn brandari. Nærri allir sfeyptu sér í eða var hent út f sundlaugina. Fyrsti maðurinn, sem lenti f henni var frændi Roberto Rosse lini, Gepy Mariani, sem er 24 ára gamall. Og skömmu síðar fór sömu leiðina Pia Lindström, dóttir Ingrid Bergman. Á eftir fy.lgdi óhemju æðisgangur, stól- um og glösum var hent út í. Baróninn hafði verið svo hugsunarsamur að staðsetja þarna tvo björgunarmenn f því tilfelli að einhver gestanna sykki í þriðja skiptið og kæmi ekki upp aftur, en ekkert slíkt skeði, eina óhappið varð, þegar einn gestanna skar sig á fæti á brotnu kokkteilglasi. Baróninn leit með velþóknun frá einum holdvotum gesti sfn- um til annars og sagði: „Stund- um hefur mér verið borið það á brýn að hafa skapað mesta snobbstað í Evrópu. Mér þykir, þegar þetta er sagt, allt þetta fólk er ósköp venjulegt og er að skemmta sér.“ Meðal þessa venjulega fólks var t.d. Anouchka Von Meks, er var um fimm ára skeið náin vin kona Aga Khans, en samband þeirra var miög umrætt. Nú var hún þarna með vini sínum Thierry Nicholas syni stærstæ- vínframleiðanda Frakklands f brauðsnúða- og tangerfnukasti við nokkra Itali. sem skemmtu sér yfirmáta vel. Frá Parfs kom hin myndar- lega Kiki Lagier, sem fékk verð laun fyrir andlitssnyrtingu sfna sem var f hvftu og svörtu. Barón Edmond var svo ánægð ur með hvernig. boðið tókst að hann enn f leit að nýiung fann upp á þvf að f næsta skipti ætl aði hann að bjóða gestum sín- um að fara með lest eftir leið gömlu Austurlandalestarinnar til Istanbul. I lestinnj á svo að sjá gestunum fyrir öllum þæg- indum upphugsanlegum og skemmtiatriðum, svo sem dansi sýningum og f lestinni verður næturklúbbur bar, og veitinga- staður. X T.h. Pia Lindström og Gepy Mariani Kári skrifar: Kennir misskilnings þarflegt var það, að 11. jan. minntist Kári á bókbandið íslenzka í þvf skyni að hvetja til umbóta á þvf. Bókagerð okk ar mundi á hærra stigi ef blöð- in hefðu að jafnaði staðið á verði um hana. Hún var um skeið komin svo langt niður að fullkomin þjóðarháðung mátti kallast. Nú síðustu árin hefir aftur þokað f rétta átt, en bet- ur má ef duga skal. Aðfinnsl- urnar þurfa að sjálfsögðu að byggjast á rökum og vera skyn samlegar. En þar höggur sá er hlífa skyldi er Kári hallmælir rexíni til bókbands, því það er alveg fortakslaust bæði bezta og fegursta efnið sem við eigum kost á til almenns bókbands. Helzt er að sjá að hann viti f rauninni ekki hvað rexfn er, og líka að hann 'ialdi aö það sé alltaf svart á lit, þó að hitt sé sannleikurinn að það er fáan legt í hverjum þeim lit sem menn kunna í að óska, og allir eru þeir Iitir ekta, fölna ekki þó að sól skíni á þá að staðaldri. En dagsatt er það, og orð f tíma talað, að hér er nú svart ur litur notaður langt um of á oókakili. Rexín-band Um styrkleika rexfns er það nær sanni, að á því vinni ekk- ert nema eldur. Vatn og raki hafa engin áhrif á það. Um feg- urðina má segja hitt, að sjái Kári tvo bókarkili úr höndum góðs bókbindara og sé annar úr rexíni, en hinn úr því leðri, sem bókbindarar hér nefna sja- grín, og geti hann þá verkfæra laust skorið úr því, hvor sé úr hvoru, þá er hann gleggri á slfka hluti en ég get stært mig af að vera — gleggri en þorri manna mundi segja. Mér er næst að halda að Kári sé einn þeirra mörgu, sem látið hafa blekkjast af gálausu orð færi manna. Þetta er honum vorkunn, ef hann er ekki fag- maður f bókagerð. Það hefur illu heilli komizt f venju að nefna hverskonar bókbandsdúk rexín, jafnvel argasta hroða. Ekki er þetta þó áhættulaust fyrir forleggjara, bókbindara eða bóksala, því nafnið er lög- skráð og lögvemdað. Misnotk un þess varðar við lög. Höggvið á hnútinn Þegar útgáfa íslenzku biblí- unnar fluttist aftur inn í landið, fyrir frumkvæði Ásmundar biskups Guðmundssonar velti stjórn Biblíufélagsins vöngum yfir því, í hvað bókin skyldi bundin. Menn þessir voru óef- að lærðir í guðfræði, en mið- ur svo í bókagerð. Hpfuðin voru mörg og sjónarmiðin líka. Loks hjó forseti félagsins (Dr. Ás- mundur) á Gordionsknútinn og sagði að Biblían yrði bundin í rexín, ekta rexín. Þetta orðalag sýndi að eitthvað veður hafði hann af þvf, að ekki mundi það allt rexín er svo vár nefnt. Alveg er það vafalaust, að á þeim átta árum, sem liðin er síðan þetta gerðist, er þjóðin búin að hagnast um tugþúsund ir á þessum úrskurði biskups. Og fyrir hann er bókin líka svo falleg sem raun ber vitni um. Biblfan er prentuð og bundin í prentsmiðjunni Odda. Væri ó- maksins vert fyrir Kára að fara þangað, sjá hana, og heyra um leið hvaða Oddaverjar hinir nýju hafa um þetta efni að segja. Annars eru nú ýmsar hinna vönduðustu bóka bundnar f rex ín, t.d. að sögn hin nýja útgáfa af Bólu-Hjálmari. En til þessa er litaval óþarflega fábreytt. Bóki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.