Vísir - 18.01.1966, Qupperneq 3
VlSIR . Þriðjuclagur 18. janúar 1966.
1
m»
■;
r £ IM IPPSPMmk / '
, „ WxtBmmBmwz&s&ái.
Tveir fyrstu stofnendur Almenna byggingafélagsins og fram-
kvæmdastjórar þess, Árni Snævarr verkfr. og Gústaf Páis-
son núverandi borgarverkfræðingur.
Hluti af starfsfólki félagsins. Jón S. Halldórsson, skrifstofustjóri félagsins, fyrir miðju.
/ afmælishófí stærsta
Hér ræðast þeir við Jónas B. Jónsson fræðslustjón, Björgvin
Sigurðsson framkvstj. Vinnuveitendasambandsins og Sveinn
Guðmundsson, alþm. ' ,
Alfreð Elíasson forstj. Loftleiða ræðir við Bjarna Jónsson
frá Galtafelli. Almenna hefur með höndum verkfræðilega
umsjón með byggingu nýja Loftleiðahótelsins.
byggiugafélagsins
\ sunnudaginn var 25 ára
afmæli Almenna bygginga-
félagsins h.f., en það er stærsta
verkfræði og verktakafélag
landsins. Var saga þess og
starfsemi rakin ítarlega í viðtali
sem birtist hér i blaðinu á
laugardaginn. Afmælisins minnt
ist Almenna byggingarfélagið á
laugardag með því að bjóða til
afmælisfagnaðar síðdegis. Var
sá fagnaður haldinn í hinu nýja
og glæsilega húsi félagslns við
Suðurlandsbraut, en þar eru
verkfræðiskrifstofur þess og
þar reikna 20 verkfræðingar og
tæknifræðingar, sem í þjónustu
þess eru, út margar stærstu
íramkvæmdir landsins. Ekkl
skulu þær aftur hér raktar en
aðeins minnt á að þær síðustu
eru íþróttahöllin i Laugardal,
Umferðamiðstöðin og undirbún-
ingur að Sundahöfn. Og svo
vitanlega tilboðið i Búrfells-
virkjun hina miklu, en enn er
ekki vltað hvaða aðili það verk
hreppir.
T afmælishófinu tók fram-
\ kvæmdastjóri félagsins Ámi
Snævarr verkfræðingur á móti
gestu:n, vásamt formanni þess
Birni Ólafssyni stórkaupmanni.
Var til fagnaðarins mættur mik-
ill fjöldi verkfræðinga og
framkvæmdamanna, og þá ekki
síður margir þeir sem Almenna
byggingafélagið hefur leyst af
hendi verkefni fyrir á undan-
fömum árum.
Myndsjáin brá sér í heim-
sókn í afmælið og birtast hér
í dag nokkrar myndir þaðan.
Bjöm Olafsson, stjómarform. Almenna ræðir við Einar ÖI.
Sveinsson prófessor. Um umræðuefnið vitum við ekki en
kannski er það væntanleg bygging Handritahússins.
Þrír aldnir framkvæmdamenn: Bjami Jónsson frá Galtafelli, Jón Árnason fyrrv. bankastjóri
og Jónas Hvannberg, stjórnarmaður Almenna byggingafélagsins.