Vísir - 28.04.1966, Page 6

Vísir - 28.04.1966, Page 6
6 52E2S5 Hjónaklúbbur — Framh. af bls. 7 honum úr klúbbnum. Þetta ætti að nægja til að tryggja siðmenninguna". „Hve margar skemmtanir verða haldnar á vegum klúbbs- ins?“ „Ráðgert er að þær verði 3—4, bamaball fyrir krakkana, þorrablót, grímudansleikur og svo eitt „fínt ball“. Á þessari fyrstu skemmtun okkar má bú- ast við þvl, að allir meðlimir geti ekki mætt vegna forfalla, ferminga o. s. frv. og eru enn 20—30 skírteini ósótt, en alls eru gefin út 150 skfrteini. Verð- ur sala á ósóttum skírteinum næstu daga í Lídó eftir kl. 16“. „Hvemig verður nú matur- inn í Lídó?“ „Ég vil taka það fram, að Ib Westmann í Naustinu sér um hann £ þetta sinn“. íþróttir Framh. af bls. 11 ' hefur verið lengst af og er enn. Keppnin verður í þessum flokk- 1 um: I flokki karla 35—50 ára og flokki 50 ára og eldri. í flokki kvenna 30—10 ára og 40 ára og eldri og loks í hjónaflokki, en þar ræður samanlagður tími hjóna, og mega þátttakendur í þessum flokki vera hjón á öllum aldri. 1 keppninni (nema hjóna- keppni) mega þó ekki vera þeir, sem hafa tekið þátt í mótum skíða- ráða eða skíðaféiaga undanfama tvo vetur, innanféiagsmót undan- skilin. Gert er ráð fyrir að hjón leggi samtimls af stað frá sama starti, fari hvort sína brautina en endi í sama marki. Eflaust verða margir til að taka þátt I þessu skemmtilega tiltæki þeirra í skíðaskálanum og ástæða tll að hvetjállfólk til að vera með og láta skrá sig á mótsstað hjá veitingamanninum í Hveradölum. Fundur — Framhald ai bls. 1. þau svæði, sem hann var að ræða um. Var hinni ýtarlegu ræðu borg- arstjóra mjög vel tekið af fundar- mönnum. ' Því næst tók Gísli Halldórsson, borgarfulltrúi, til máls og er ræða . hans birt á öðrum stað í blaðinu i dag. FYRIRSPURNIR. Eins og á fyrri fundum sínum svaraði borgarstjóri fvrlrspurnum i fundarlok og var það óspart not- að af áheyrendum. Svaraði borg- arstjóri spurningum eftir því sem þær bárust utan úr salnum, og einnig gátu fundarmenn borið fram fyrirspurnir sínar munnlega. Freymóður Jóhannsson spurði, 1) hvort ekki mætti treysta því, að engar framkvæmdirtyrðu hafn- ar við Tjörnina á komandi kjör-1 tímabili þannig að fuglalífi og1 fegurð hennar yrði ekki spillt með því að hola þar niður ráðhúsi? Borgarstjóri svaraði, að ef til þess kæmi að framkvæmdir hæfust j á næsta kjörtímabili við byggingu j ráðhúss við Tjörnina mundi verða séð til þess að ekki mundi spillast fuglalíf við þennan augastein borg arbúa, sem Tjömin væri né mundi það spilla fegurð hennar. Þvert á móti sagðist borgarstjóri þess fullviss, að ef hafizt yrði handa um að reisa ráðhús við Tjömina á næstu árum, mundi það auka enn á fegurð hennar. 2) Sagði Frevmóður að Mynd- listaskálinn við Kirkjustræti væri nú orðinn svo hrörlegur, að ekki væri bjóðandi neinum manni inn í hann. Þvi næst kvaðst hann vilja spyrja, hvort ekki mætti treysta því, að borgarstjóm og borgarstjóri mundu beita sér fyrir byggingu listamannahúss á Miklatúni, (sem ég vil frekar kalla Miklagarð, sagði Freymóður), og ef svo væri, hvort það hús yrði ekki opið öllum listamönnum, í hvaða listafélagi sem þeir væru? Borgarstjóri svaraði því til, að borgarstjóm mundi beita sér fyrir slíkri byggingu, sem spurt væri um. Staður hefði verið valinn undir húsið á Miklatúni og yrðu þær framkvæmdir helgaðar einum mesta snillingi okkar, Jóhannesi Kjarval. Borgarstjóm hefði veitt til þessarar byggingar á þessu ári um 4.5 millj. kr., og á móti kæmu framlög listafélaga. Kvaðst borgar- stjóri vona, að húsið risi sem fyrst af grunni til framgangs íslenzkra lista og umhverfi þess til fegurðar. Þá kvað borgarstjóri sér finnast það eðlilegt, að um stjóm hússins ríkti frjálsræði og víðsýni og það mundi opið öllum borgurum til sýningar í því. 3) Hvort vænta mætti þess, að borgarstjóri og borgarráð mundu beita sér fyrir því að hætt yrði við veitingu áfengra drykkja I boðum ög samkvæmum þeim, sem borgin efndi til? Borgarstjóri svaraði því, að mjög ýktar væru sögur þær, sem sagðar væru um veitingu áfengra drykkja í boðum sem hann og borgarstjórn efndu til. í flestum tilfellum væri ekki um slíkar veitingar að ræða. Oft væri því þó þannig farið, að hann væri að endurgjalda móttök- ur, sem hann og aðrir fulltrúar borgarinnar hefðu fengið erlendis og honum fyndist það réttast að gjalda þær á sama veg og þeir hefðu fengið. Bezt væri að hóf væri á flestum hlutum. STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR. Ólafur Jónsson spurði hvenær; mætti vænta þess, að betra vrði að komast milli hverfa borgarinnar, með strætisvögnum. Borgarstjóri svaraði, að einmitt nú væri allt leiðakerfi SVR tekið til mikillar endurskoðunar og hefði slíkt verið alveg nauðsynlegt Skrifstofuhúsnæöi Ca. 60 ferm. húsnæði fyrir skrifstofu eða álíka starfsemi til leigu í nýju húsi á bezta stað í borginni. Uppl. í síma 12644. Ástkær dóttir okkar og systir SIGRÍÐUR KOLBRÚN RAGNARSDÓTTIR Stórholti 12 verður jarðsungin á morgun, föstudaginn 29. april, kl. 1.30 frá Fossvogskirkju. Blóm afbeðin. Ef einhver vildi minnast hinnar látnu þá vinsamlegast látið Slysavarnafélagið njóta þess. Björg Þorkelsdóttir, Ragnar Agnarsson og systkini. vegna nýju gatnagerðaráætlunar- innar og skipulagsins. HITAVEITAN. Þorkeli Sigurðsson spurði, hve- nær upphitunarstöð Hitaveitunnar £ Ártúnshöfða yrði tekin i notkun? Borgarstjórí svaraði, að hitun- arstöð þessi yrði tekin i notkun á þessu ári. Þá spurði Þorkell einnig, hvenær hitavatnsgeymamir nýju á Öskju- hlíð yrðu teknir. i notkun? Borgarstjóri svaraði, að áformað væri að taka þá i notkun í lok þessa árs. Sveinn Þorgrímsson spurði, hvemig framkvæmdir við nýju byggingu Menntaskólans við i Hamrahlíð gengju og hvort þar yrðu hafðar sérdeildir eða öllu blandað saman eins og i Mennta- skólanum við Lækjargötu. Borgarstjóri svaraði, að bygging þessi væri á vegum ríkisins, en hann kvaðst hafa frétt, að fyrsti áfangi byggingarinnar yrði tekinn í notkun næsta haust, og þar yrði bæði máladeild og stærðfræði- deild. örn Hjaltalín spurði hvort á- formað væri að leyfa sölu matvara um helgar og á kvöldin, eftir að sölubúðum hefði verið lokað. Borgarstjóri sagði, að við byggj- um nú við þær reglur að það væri háð sérstöku leyfi að selja matvör- ur á öðrum tímum en hinum venjulega opnunartíma sölubúða. Þó kvað hann vera uppi nú ein- hverjar ráðagerðir um að rýmka eitthvað þessar heimildir og það yrði auðvitað allt saman gert í samráði við launþega og kaup- menn. Valgarður Kristjánsson spurði hvort úthlutað yrði þeim lóðum, sem lofað hefði verið að gera á þessu ári. Borgarstjóri sagði að það yrði gert á þessu ári, en vegna fjölda umsókna hefði orðið að grípa til þess sérstaka úrræðis að setja sér- stakar úthlutunarreglur, og væri nú verið að vinna úr umsóknum. Sigurdís Eiríksdóttir spurði um það hvaða áform væru um fyrir- komulag starfsfræðslu á vegum borgarinnar? Borgarstjóri sagði, að starfs- fræðsla væri nú kennd í skólum borgarinnar og sérstök deild inn- an stofnana borgarinnar færi með þessi mál. Fleiri fyrirspurnir bárust einnig og svaraði borgarstjóri þeim vel og skilmerkilega. Síðan mælti borgarstjóri nokkur orð, þakkaði fundarmönnum frábæra fundar- sókn og fundarstjóra góða fundar- stjóm og vonaði að borgarbúar ættu sem flestir eftir að vinna að því að gera borgina okkar enn fallegri. Að síðustu ávarpaði fund- arstjóri, Guðmundur H. Garðars- i son, fundarmenn, þakkaði þeim i góða fundarsókn og góða t’undar- setu og sagði síðan fundi slitið. Húsbyggingar — r irihakl af öls. i. og iðnaðarmanna hafi á sl. ári aukizt um það bil 10% frá ár- inu áður. Ráðsiöfunartekjur þessara stétta eftir álagningu beinna skatta og greiöslu fjöl- skyldubóta hafi þó aukizt enn meira eða um næríellt 12% hjá fjölskyldufólki í þessum stétt- um. í ræðu sinni gat fjármálaráö- herra einnig um fleiri þætti þjóðarbúskaparins, m. a sagði hann, að íbúðabyggingar hefðu fariö talsvert fram úr þvi, sem gert heföi verið ráð fyrir í á- ætlunum, og sagði ráðherra, að gert væri ráð fyrir að byggja um 1600 íbúðir á þessu ári. Húsbyggingar hefðu aukizt um þaö bil 47% frá árinu 1962 —1965, og hefðu íbúðabygging ar aukizt enn meira en aðrar húsbyggingar. STÚLKA vön saumaskap óskast. Uppl. í síma 14415. Hæö eðo einbýlishús í Laugarási Höfum verið beðnir að útvega 5—6 eða 7 herb. hæð eða einbýlishús af sömu stærð sunn an megin í Laugarásnum. Þarf að vera mjög gott útsýni. Umræddur kaupandi getur borg- að íbúðina út á árinu. TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR Austurstræti 10 a, 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsími 37272 Blaðadreifing Blaðburðarbörn óskast 1. maí í eftirtalin hverfi: Skúlagötu — Skerjafjörð — Álfheima — Laufásveg. DAGBLAÐIÐ VÍSIR Túngötu 7. Sími 11660. Rafsuðumenn óskast strax. RUNTAL-OFNAR Síðumúla 17, sími 35555 Stúlkur Nokkrar duglegar og reglusamar stúlkur ekki yngri en 17 ára geta fengið atvinnu. KEXVERKSMIÐJAN FRÓN H.F. Skúlagötu 28. -----------j.------------------ Skrifstofustúlka óskast Stúlka óskast strax til skrifstofustarfa í sum- ar við skrifstofu félagsins í Reykjavík. Lág- marksaldur 18 ára. Vélritunarkunnátta nauð- synleg. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstofum vorum, sé skilað til Starfsmanna- halds í Bændahöllinni. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN HÖFUM TIL SÖLU: 3ja og 4ra herb. íbúðir tilb undir. tréverk og máln- ingu. Verð 3ja herb. 630 þús. kr. Verð 4ra herb. 730 þús. 2ja og 3ja herb. íbúöir í tvíbýlishúsi í Austurbænum. Verð beggja 850 þús. 2ja herb. íbúö i Vesturbæ. Glæsileg íbúð. 2ja herb. íbúö í gamlá bænum. Verö 450 þús. 3ja herb. íbúð í gamla bænum .Verð 500 þús. 3ja herb. ibúö í Ljósheimum. Mjög falleg íbúð. 4ra herb. ris v/Flókagötu 4ra herb. ris v/Mávahlíð. 4ra herb. jaröhæö i Austurbæ. Mjög falleg íbúó. 5 herb. íbúð í Vesturbæ. Ibúðin er 2 stofur og 3 svefnherb. 5 herb. íbúð og bílskúr í Hlíðunum. 5 herb. íbúð í Austurbæ verð kr. 850 þús. Tvíbýlishús í Austurbænum. í húsinu er 4ra herb. íbúð mjög falleg stór 2ja herb. íbúð í kjallara. Ræktuð og girt lóð. Húsið selst í einu lagi eða hvor íbúð úi af fyrir sig. Einbýlis-, tvíbýlis og raðhús í smíðum Iðnaðarpláss frá 250-1000 ferm. með góðri innkeyrslu FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12 Símar 14120, 20424 og kvöldsimi 10974.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.