Vísir - 28.04.1966, Side 7
VÍSIR . Fimmtudagur 28. apríl 1966.
7
Erlendir skemmtikraftar
á HÓTEL LOFTLEIÐIR
HPveir víðfrægir amerískir
A skemmtikraftar hafa verið
ráðnir af Loftleiðum til að
koma fram að kvöldi dagsins,
sem Hótel Loftleiðir opnar,
sunnudaginn 1. maí næstk.
Söngkonan Sandi Brown og
trompetleikarinn Joe Newmann
munu dveljast hér fyrstu vik-
una, eftir að hótelið tekur tii
starfa, og skemmta á hverju
kvöldi.
„Þetta verður danslaust
músíksjó", sagði Friðrik
Theodórsson, hinn nýskipaði
sölustjóri Loftleiða á fundi með
blaðamönnum í gær. Hann
skýrði frá því, að Loftleiðir
hefðu í hyggju að fá sem flesta
skemmtikrafta, sem leið ættu
vfir Atlantshafið, til þess að
fljúga með flugvélum félagsins
og hafa hér viðkomu, og
skemmta í salarkynnum nýja
hótelsins.
Friðrik tók það fram, að
reynt yrði að hafa fjölbreytni
í vali þessara skemmtikrafta.
Fyrir nokkru var Friðrik í
Bandaríkjunum til að kynna sér
starf sötastföra hóteia. GeriB
hann þá samrring við Joe New-
mann um að koma til Islands.
Er hann væntanlegur hingað
með söngkonunni Sandi Brown
og kvartett símim aðfacanött
iaugardags og þá náttúrlega
með „vél frá okkur“. Newmann
var 14 ár einleikari í hinni
frægu hljómsveit Count Basie.
Undanfarið hefur hann komið
fram í sjónvarpsþáttum Sammy
Davies. Hann er kvæntur feg-
urðardís. Sandi Brown hefur
sungið með frægum hljómsveit-
ura, m. a. Tommy Dorsey,
Teddy Wilson og Clark Terry.
söng í söngleikjunum „Okia-
homa“ og .„Golden Boy“. Hún
syngur alit: hvort sem það er
djass — klassík — og allt upp
og niður í „Rock’n roll" eins
og Friðrik sagði.
Joe Newmann
//
Ekki snobb-böll-en fín böll engu að síður'
Viðtal við Jón Gunnlaugsson gamanleikara
um hinn nýstofnaða Hjónaklúbb
verður allt mögulegt til skemmt
unar. Þar leikur ný hljömsveit
— sextett Ólafs Gauks, og
söngvarar með hljómsveitinni
eru Svanhildur Jakobsdóttir og
Björn R. Einarsson. Róbert Arn
JJjónaklúbbur Reykja-
víkur efnir til fyrstu
skemmtunar sinnar á
þessu ári í Lido á laugar
daginn kemur. Hjóna-
klúbburinn er f élagsskap
ur, sem nokkrir áhuga-
samir menn í borginni
tóku sig nýlega saman
um að vekja til lífs, en
frumkvöðullinn er Jón
Gunnlaugsson gaman-
leikari.
Vísir ræddi stuttlega við Jón
um starfsemi klúbbsins. Greindi
hann svo frá, að fyrir nokkrum
árum hefði verið stofnaður
Unghjónaklúbbur Reykjavíkur
undir forystu hans og Jónasar
Jónassonar leikara, sem hefði
starfað með miklum blóma
nokkur ár. Var hámarksaldur í
þeim félagsskap 35 ára. Lagðist
hann niður, en nú fyrir nokkru
tóku gamlir meðlimir úr klúbbn
um og nokkrir kunningjar þeirra
höndum saman um stofnun hins
nýja hjónaklúbbs, en í honum
er fólk á öllum aldri — jafnvel
roskið fólk. Sagði Jón, að með
tilkomu Lidos á nýjan leik
hefði opnazt möguleiki til
starfseminnar, en Lido væri
eini staðurinn, sem kæmi til
greina fyrir starfsemina: „Þar
er gott svið — þar er eitt stórt
dansgólf og þar sést yfir alla“..
Hugmyndin með hjónaklúbbn
um er sú, að fólk úr öllum
stéttum geti notið góðrar
skemmtunar í geðslegu um-
hverfi, skemmt sér án þess að
Nokkrir af forvígismönnum Hjónaklúbbs Reykjavíkur. F.v.: Magnús Magnússon, Magnús Guðjóns-
son, Jón B. Gunnlaugsson, Hilmar Helgason.
farið sé yfir takmörk almenns
velsæmis, sem sagt, að fólk
komi saman í sparifötunum í
heilbrigðum og huggulegum til-
gangi. „Þetta verða ekki snobb-
böll — síður en svo“, segir Jón
Gunnlaugsson, „þetta er fyrir
fólk af öllum stéttum eins og
ég sagði áðan“.
íjað má sjá á skrifum Tímans,
Þjóðviljans og Alþýðublaðs-
ins undanfarna daga að fundir
borgarstjóra í hverfunum háfa
náð tilgangi sfnum. Þessi mætu
dagblöð ná ekki upp í nefið á
sér af bræði vegna þess að
Gelr Hallgrímsson skuli ætla sér
þá dul að ræða um borgarmálin
við íbúa Reykjavíkur og leyfa
sér að hlusta á ábendingar
þeirra og gagnrýni. Hvað ætti
svo sem borgarstjórinn að vera
að tala við borgarana um hags-
rnuna- og áhugamál þeirra?
Manni skilst á fyrmefndum blöð
um að honum komi þau hrelnt
ekki við og allt sé þetta hin
mesta ósvinna. Gegnir næsta
stórri furðu að ritstjórar þessara
blaöa skuli ekld sjá hinar óra
víðu gloppur í slikum málflutn
ingi.
Jglaðamenn Tímans hafa lengi
haft á sér orð fyrir sérstak-
ar gáfur og skarpleika, fyrir ut-
an það að hafa jafnan borið
djúpa ást í brjósti til höfuðborg-
arinnar. í gær komust snillingarn
ir að þeirri niðurstöðu að ekk-
ert sé að marka fundi borgar-
stjóra með íbúum borgarinnar
vegna þess að fyrirspurnirnar og
ábendingamar sem fram koma á
fundlnum séu flestar búnar til á
borgarskrifstofunum! — Rök-
rétt ályktun af þeirri fullyrðingu
er sú aö Tfminn telur þær þús-
undir Reykvíkinga, sem þegar
hafa sótt þessa fundi, gjör-
sneydda þeim uppburðum og
framtaki að bera fram fyrlr-
spurn frá eigin brjósti. Mega
Reykvíkingar vissulega gleðjast
yfir þessu sérstæða mati Tím-
ans á hæfileikum þeirra og fram
taki. Það er ekki á hverjum degi
sem íbúum höfuðborgarinnar
eru slegnir slíkir gullhamrar.
Sérlega eru þessi ummæli
líka smekkleg kveðja til þeirra
Framsóknar- og Alþýöuflokks-
manna, sem fyrirspurnir hafa
borið fram á fundunum, en þeir
eru allnokkrir. Þá vita þeir það,
að þeir eru hér með orðnir út-
sendarar borgarskrifstofanna og
þjónustullprar málpípur í einni
skyndingu.
n\
m
\ stæðan til gremju minnihluta-
flokkanna í borgarstjórn er
vitanlega sú að þeir háfa komizt
að þvf að fundir borgarstjóra
eru mikils metnir af íbúui
hverfanna — hvar í flokki, sem
þeir standa. Þar gefst öllum sem
vilja tækifæri til þess að bera
fram gagnrýni á stjórn borgar-
málanna. Slík gagnrýni á vitan-
lega fullan rétt á sér því aldrei
er hægt að stjóma svo öllum
líki, og ýmislegt má betur fara
í umfangsmiklum og erfiðum
framkvæmdamálum. Ábendingar
og gagnrýni eru borgaryfirvöld-
unum nauðsynleg og það er ein
ástæðan til þess að fundir þessir
voru hafnir. Það metur fólkið f
borginni, því það fínnur þann
vilja sem á bak við liggur.
Oorgarstjóri er ekki einungis
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
f borgarstjórninni heldur borgar
anna allra, hvar í flokki sem
þeir standa. Þess vegna mun
hann ekki spyrja minnihluta-
flokkana um leyfi til þess að
ræða iö Reykvíkinga og hlusta
á álit þeirra og ábendlngar. Á
þeim mannamótum og í þeirri
kynningu eru minnihlutaflokk-
arnir næsta óþarfir mllliliðir.
Vestri.
„Hvað eru elztu meðlimir
klúbbsins gamlir?“
„Elztu hjónin — ja, við skul-
um nú sjá — eiginmaðurinn er
eitthvað yfir 70 ára og konan
svona fertug — jú það eru líka
önnur hjón, þar sem eiginmað-
urinn er komin um sjötugt —
hann er múrari, en hinn sjötugi
er slátrari — það fer vel á því
— þetta eru góðar andstæður",
segir gamanleikarinn.
Jón hélt áfram:
„Skemmtunin á laugardags-
kvöldið kemur verður „ball
ársins" — „come back“ fyrir
Lido eftir pressuballið. Þar
finnsson og Rúiík Haraldsson
flytja gamanþátt. Guðrún Sím-
onar syngur óperusöng. Þarna
verða eftirhermur. Veizlustjóri
verður Sveinn Ásgeirsson, hag-
fræðingur.
„Er trygging fvrir því, að
þetta verði siðmenningarlegur
félagsskapur, þessi hjónaklúbb-
ur ykkar?“
„Ég skal lofa þér að heyra
eitt paragraffið úr reglunum:
„Gerist félagi á einn eða annan
hátt óæskilegur, svo sem vegna
ölvunar, ókurteisi við aðra
gesti, o.s.frv. er heimilt að víkja
Framhald á bls. 6.
Hverfaskrifstofur
fulltrúaráðsins
f .■ . .. .. j, 1 i • í, f „ ;■
STARFANDI eru á vegum Fuilitrúaráös Sjálfstæðisfelaganna
í Reykjavík eftirtaldar hverfaskrifstofur f borginni. Skrifstof-
urnar eru opnar milli kl. 2—10 e.h. alla virka daga nema laugar-
daga milll kl. 9—4.
VESTUR- OG MIÐBÆJARHVERFI
Hafnarstræti 19 — Sími: 22719
NES- OG MELAHVERFI
Tómasarhaga 31 — Sími: 24376
AUSTUR- OG NORÐURMÝRARHVERFI
Bergþórugötu 23 — Sími: 22673
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI
Mjölnisholti 12 — Sfmi: 22674
LAUGARNESHVERFI
Laugamesvegi 114 — Sími: 38517
LANGHOLTS-, VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegi 27 — Sími: 38519
SMÁlBÚÐA-, BÚSTAÐA- OG HAALEITISHVERFI
Starmýri 2 — Sími: 38518.