Vísir - 28.04.1966, Page 11

Vísir - 28.04.1966, Page 11
/ VlSIR . Fimmtudagur 28. apríl 1966. h RITSTJÓRI: JON BIRGIR PETURSSON SIGURINN TEKÍNN AF KEFLA VlKURSTÚLKUM? Kærumálið vegna úrslitanna i 2. deild kvenna hefur að vonum vakið talsverða athygli, enda virðist um einstæða yfirsjón að ræða hjá dómara, þegar hann framlengir leik um „einu sinni eina og hálfa mínútu“ og úrskurðar Keflavík sigurvegara. Ágúst Matthíasson frá Kefla- vík, sem er mikill áhugamaður um íþróttir og þá ekki sízt sinna manna, hringdl f mig í gærkvöldi og sagði mér aðra hlið á þessu máli, sem ég við- urkenni að ég hafði ekki athug- að og sýnir hún okkur hvað skammt getur verið milli. gleði og sorgar í íþróttunum. Keflavíkurstúlkumar höfðu fagnáð þessum sæta sigri sín- um innilega og voru alveg grandalausar. Það voru því ill tíðindi, þegar þær fréttu f gær af kærunni, því vera má að þær þurfi enn einu sinni að lenda f hörðum leik við KR og þá er ekki víst að þær sigri. Ágúst kvað stúlkumar hafa sýnt mikla ástundun við æf- ingar f vetur, en leikjafæðin f 2. deild hefði háð þeim og framfarimar af þeim sökum e. t. v. minni en skyldi. Þá væri það og mjög „krít- iskt“ að dómarar og lfnuverðir virtust ekki starfa sínum vaxn- ir. Þannig hefði hann sjálfur séð að tvö af mörkum KR hefðu verið skoruð iiinan línu, annað þannig að stúlkan var með fótinn allan fyrir innan, en hið síðara þannig að hún stóð inn á línuna. Lfnvörður- inn, unglingspiltur sá ekkert athugavert við þetta, enda ekki vfst hvort hann þekkti reglum- ar, því áhorfendur á Háloga- landi virðast engan frið fá fyrir dómurum sem eru í línuvarða- leit, og þegar þeir eru í þeim ham sleppur enginn, jafnvel þó hann sé að koma f fyrsta sinn á ævinni nálægt íþróttlnni. Þetta var hlið Ágústs á mál- inu og við verðum að segja, að hann hefur mikið til síns máls, það þarf að sjá svo um að hæfir dómarar dæmi úrslita- leiki og að línuverðlr þeim til aðstoðar séu vandanum vaxnir. Sé það rétt að hinn ungi dóm- ari hafi farið að ráðum al- þjóðadómara, þegar hann sleit leiknum, þá er það hreint hneyksli, en ekki seljum við þá sögu dýrari en við keyptum hana. — jbp — Körfuknattleiksmótið: ÍR-KR LEIKA í KVÖLD KR hefur unnið mótið, en búust mó við hörðum leik Siðustu leikir mótsins fara fram að Hálogalandi f kvöld (28. apríl) og hefst keppnin kl. 7.15. Fyrst leika ÍR og KR í mfl. kvenna. Það er eini Ieikurinn í þessum flokki og er því jafnframt úrslitaleikur. Síðan leika ÍKF og KFR i 1. deild. KFR hefur tvö stig en ÍKF ekkert, svo ÍKF verður að vinna þennán leik, vifji það haldast í 1. delld. Siðasti leikur mótsins verður milli hinna gömlu keppinauta ÍR og KR í fyrstu delld. Þessi leikur hefur reyndar ekkert að segja um úrslitin, þvf KR hefur þegar tryggt sér örugga forystu f mótinu. Það má samt búast við skemmtilegri keppni nú sem fyrr. Mótinu mun siðan verða slitið á skemmtun, sem haldin verður í Lídó þetta kvöld. Þar mun fara fram verðlaunaafhending o. fl., en húsið verður opnað kl. 9. Athygli skal vakin á því, að keppnin hefsf kl. 7.15 en ekki Þaö var barizt hart í leik KR og Keflavíkur, eins og sjá má af þessari ágætu mynd, sem Bjarnleifur Bjamleifsson tók fyrir Vísi. 8.15 eins og verið hefur. — K.K.Í. Olympíuleikar 1972 í Múnchen og Sapporo Alþjóðaolympíunefndin ákvað í fyrrakvöld á fundi sínum, að sumarleikarnir 1972 skyldu haldnir f Miinchen, en undan- fama daga hefur verið talsverð keppni milli Miinchen og Madrid um að fá Olympíuleikana til sín, en næstu Ieikar fara hins vegar fram árið 1968 i Mexikóborg. Á fundinum var og ákveðið að taka boði Japana um að halda vetrarleikana í Sapporo, en þar er aðstaða til vetrar- iþrótta einstaklega góð. Lausar stööur hjá Rafmagnsveitunni Staða bókhaldara Staða aðstoðarmanns í söludeild Staða aðstoðarmanns í gjaldskrárdeild Uppl. hjá fjármálafulltrúanum, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Ekki svarað í síma. Rafmagnsveita Reykjavíkur Hjónakeppni á skiíum Um næstu helgi hyggjast forráðamenn Skíðaskálans I Hveradölum gangast fyrir nýstárlegri keppni, keppni hjóna og eldri áhugamanna og kvenna. Gat Stefán Kristjánsson, formaður Skíðasambandsins þess í ræðu þegar hann afhenti verðlaun fyrir Skálamót Skíða- skálans í Hveradölum eftir áramótin síðustu, og á sunnudaginn kl. 14 stendur til að gera þessa tilraun. Oft hefur verið kvartað yflr þvi, og það réttilega, að íþróttir eru um of mlðaðar við afreksfólk, en ekki fólk, sem iðkar iþróttir aðeins sér til dægrastyttingar, heilsubótar og ánægju. Nú er gott tækifæri og eflaust verða margir til þess að spreyta sig, enda hafa Reykvík- ingar og aðrlr á SV-Iandi notað sér dyggilega hið góða skíðafæri, sem Framh ð bls 6. Lótið vefju stýrishjól bifreiður yður með plustefni Heitt á vetrum, svalt á sumrum. Svitar ekki hendur. Mjög fallegt og endingarpott. Mikið litaúrval. 10 ára ábyrgð. Spyrjið viðskiptavini okkar. Uppl. í síma 34554 (Allan daginn). Er á vinnustað i Hæðargarði 20 ERNST ZIEBERT.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.