Vísir - 14.06.1966, Qupperneq 1
GróBur- og sýningarhús rís / R. vík
Fólk hefur tekiö eftir því aö
stórvirkar vinnuvélar eru byrj
aöar að grafa langa skuröi í
r'frinni fyrir ofan Sigtún
viö hlið garðs Ásmundar
Sveinssonar, myndhöggvara.
Blaðamaður og ljósmyndari Vís
is fóru í morgun á staðinn og
hittu þar fyrir Stefán Árnason,
garöyrkjubónda á Syðri-Reykj-
um í Biskupstungum og eftir
að hafa rætt viö hann stutta
stund kom 1 ljós aö hann stend
ur á bak viö þessar framkvæmd
ir.
Stefán hefur í hyggju að
reisa þarna gróðrarstöð sem
verður um leiö sýningar- og
söluskáli. Steff.n rekur gróðrar
stöð austur í Biskupstungum
og verður þessi stöð rekin í
beinu sambandi við hana. Sum
ar plönturnar verða fluttar hing
að til Reykjavíkur hálfvaxnar
en aðrar verða látnar vaxa að
öllu leyti í nýju gróðrarstöð
inni. Þegar er hafin framræs-
ing mýrarinnar og verða skurð
imir um 1 km. að lengd. Grind
sjálfs gróöurhússins, sem verö
ur 780 ferm. að flatarmáli er
smíðuð erlendis og verður úr
stáli, en „sprossur" úr alúmíni
Er áætlað að smíði þeirra verði
lokiö í byrjun júlímánaðar og
verða þær þá fluttar hingað.
Má búast við að lokið verði við
að reisa húsið í ágústmánuði,
en þá er mikil vinna inni i
sjálfu húsinu, sem taka mun
langan tíma. Fyrir framan hús
ið verða bílastæði fvrir um 50
bifreiðir, og allt umhverfi húss
ins veróur fegraö með trjábelt
um allt í kring, og verða þau
sett niður í haust eöa snemma
í vor. Aðstaða til byggingar á
þessu svæði er öll mjög erfið,
og þarf að ræsa allt svæðið
rækilega. Þetta hefur þegar
komið sér illa og hafa beltis-
dráttaKvélar, sem ætlunin hefur
verið að nota, setið fastar í mýr
inni og leitt af sér tafir.
Stefán sagði að lokum að
hann vonaði að rík þörf væri
fyrir slíka starfsemi í ört vax-
andi borg, sem Reykjavík, þar
sem áhugi á ræktun bæði úti og
inni væri mikill.
Mfflm
56. árg.
Byrjao að græða
SÍLDARRANNSÓKNARSKIP í HÖFN
Ráðstefna fiskifræðinga lýkur í dag á Akureyri. Þarna sjást rússnesku og norsku síldarleit-
ar- og hafrannsóknarskipin hlið við hlið í Akureyrarhöfn. Fundurinn stóð yfir í gær og í
dag, en hann sitja fiski- og haffræðingar af rannsóknarskipunum, sem verið hafa við Norð-
ur og Austurland i vor.
súrín meðfram
Þegar breytingar voru síðast
gerðar á vegaiögunum var bætt
í þau ákvæöi um uppgræöslu
lands meö fram vegunum, en
um allt land eru nú ógrónar
spildur, víöa beggja vegna vega,
þar sem ýtur hafa verið notaöar
til þess að ýta upp jarðvegi til
vegagerðar. Nú hefur verið haf-
izt handa um tilraunir til þess
að græða þessi sár, og þegar
árangurinn af þeim er fyrir
hendi er f ráöi aö gera stórátak
til þessarar uppgræðslu.
Vegagerð rtkisins hefur sam-
ið við Landgræðslu ríkisins um
að anrrast þessar tilraunir og hef
ur þær með höndum Ingvi Þor-
steinsson magister. /
Vísir átti stutt viðtai við hann
í gær um þetta samstarf, en
hann er nýkominn úr slíkum til
Framh. á bls. 6.
Allt að 40 t'ima sigling á sildveiðisvæðið við Jan Mayen
Veiði var sæmileg i gær og
í nótt á miðunum norður við
Jan Mayen, þar sem síldveiði-
flotinn er mest allur ennþá á
veiðum. 24 skip fengu samtals
4158 tonn, þar af fékk aðeins
einn bátur afla á miðunum út
af Austfjörðum 90 tonn, 130
míiur A af N frá Dalatanga.
Veiðin hefur yfirleitt gengið
treglega yfir helgina. Á laug-
ardag höfðu 14 skip fengið 2110
lestir og á sunnudag fengu 18
skip 2259 lestir. Skipin voru á
tímabili komin aila leið norður
undir Jan Mayen. Veður var
heldur óhagstætt á sunnudaginn
og í gær en hefur nú farið batn-
Gufunesstöðin truflaðist
Tveir símostrengir slitnuðu
Á föstudaginn, þegar skurö-
grafa var aö verki uppi í Breið-
holti sleit hún í sundur tvo síma
strengi, sem þar liggja. Annar
er 8 lfnn strengur, sem liggur
í Rafstööina hitt var 32 línu
strengur sem liggur um Breiö-
holt ’ Gufunes. Stöðin í Gufu-
nesl mun hafa orðið fyrir tals-
veröum truflnnum af þessum
sökum svo og fjarskiptasam-
bandiö viö fluglð, sém er i i
Guftmesi. Ekki mun sambandið
þó hafa rofnað alveg þvf að
fleiri strengir liggja aö stöö-
Inni. Viögerö fór að sjálfsögðu
fram samdægurs.
Þetta er i annað skipti að
simastrengir era slitnir i ná-
grenni borgarinnar, en slikt get-
ur skfljanlega haft afdrifarikar
afleiðingar, einkum ef fjar-
skiptasambandið rofnar alveg.
Strengimir eiga að vera það
greinilega merktir bæði á landi
og á korti, að slikt ætti ekki að
geta komið fyrir.
andi. Flotinn hefur einnig færzt
sunnar á eftir síldinni og er nú
um 250 mílur NA frá Rauf-
arhöfn.
Síldarflutningaskipin Síldin og
Dagstjarnan fóm af miðunum á
sunnudaginn með fullfermi. Og
Sirion flutningaskip Krossanes-
verksmiðjunnar hefur verið á
miðunum í gær og í dag, og biða
skip eftir að landa í það. Flutn-
ingaskipin taka mikinn krók af
veiðiskipunum, sem ella yrðu
að sigla alla leiðina til lands
með aflann, en það mun hafa
farið upp í 4 Otíma stím, þegar
lengst var sótt, en nú em nokk-
ur skip á leið til hafna með
afla.
Síldin, sem veiðist við Jan
Mayen er af norska stofninum,
eins og yfirleitt síldin sem veið-
ist fyrir austan. Hún er blönduð
og talsvert í henni af átu.
Þessi skip tilkynntu um afla
síðasta sólarhring:
Til Raufarhafnar: Helga RE
110 tonn, Jörundur III RE 175,
Guðrún GK 220, Ögri RE 160,
Vigri GK 170, Ásbjöm RE 180,
Elliði GK 230 (tvær landanir),
Snæfell EA 255 (tvær Jandanir)
Loftur Baldvinsson EA 210,
Stígandi OF 180, Gullberg NS
110, Búðarklettur GK 160, Sól-
fari AK 110, Höfrungur II AK
200, Siglfirðingur SI 130, Ámi
Magnússon GK 130, Guðbjartur
Kristján IS 100, Þorsteinn 220.
Til Dalatanga: Bjartur NK
210, Barði NK 220, Lómur KE
200, Heimir SU 170, Hamravík
KE 100, Krossanes SU 208.
Stefán Ámason á byggingarsvæðinu i morgun. Á milli skurðanna, sem sjást á myndinni á aðalbyggingin að rísa
BLAÐIÐ i DAG
BJs. S Myndsjá af mál-
verkasýnlngu og
stofnfundi Krwanis
kidbbs
— 9 Sjávarútvegurinn
1965.