Vísir - 14.06.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 14.06.1966, Blaðsíða 8
8 V í S I R . Þriðjudaguf 14. júni 1966 VISIR Utgefandi: BlaðaQtgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aöstoðarrltstjóri: Axel Thorsteinson Próttastjóran Jónás Kristjánsson Þorstelnn ö. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiösia: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 llnur) Askriftargjaid: kr. 90,00 á mánuSi innanlands I lausasölu kr. 7,00 eintakiS Prentsmiöja Vlsis — Edda h.f. Mennt er máttur J>að hefur löngum verið skoðun okkar Islendinga að í mennt felist máttur. Um það verður ekki deilt að á dimmum öldum var það kjamgóð alþýðumenntun sem varðveitti þjóðernið, tungu og sögu, þær eigindir sem við metum með réttu mest í dag. Samtvinnuö baráttunni fyrir stjómmálalegu sjálfstæði var óskin um íslenzkan háskóla, skóla þar sem íslenzk menn- ingarerfð væri í öndvegi sett. Meir en hálf öld er nú liðin síðan sá draumur rættist og Háskóli íslands er fyrir löngu orðin sú miðstöð norrænna fræða, sem orð fer af víða um veröld. í dag búa þjóðir hins vegar við mikla umbyltingatíma í æðri menntun. Gildi for- tíðar í þeim efnum eru víða um lönd tekin til gagn- gerðrar endurskoðunar og spurt hvort nám og kennsla samræmist kröfum hins nýja tíma, kröfum 1tL£~« - jáEírö.fí.. »- anna. Þjóðartekjurnar verða ekki síður hratt auknar og velferð þegnanna efld, með því að auka og bæta háskólamenntunina, en með því að veiða meiri fisk eða rækta meira gras. Ódáinsakur hugans er þar sízt verðminna land en frjóasta gróðurmold. Það er þess vegna sem nágrannaþjóðir okkar stofna nú marga nýja háskóla. Bretar hafa byggt sex á nokkrum árum, Þjóðverjar gera ráð fyrir enn fleirum og Norð- urlöndin halda sömu brauL J>að var því heillaspor, er Alþingi samþykkti á liðnu ári víðtæka háskólaáætlun um uppbyggingu skólans, fjölgun prófessora og námsdeilda. Og sama sinnis er hin nýja ákvörðun menntamálaráðherra að skipa nefnd til þess að gera tillögur um þróun Háskólans næstu tvo áratugina. Þrátt fyrir góðan vilja hefur Há- skóli íslands verið olnbogabarn í garði löggjafarsam- kundunnar. Til hans hefur verið veitt minna en einu prósenti af tekjum ríkisins. Hann hefur því skort mjög prófessora og aukakennara, rannsóknarstofur og kennslutæki. Fyrir dyríihi stendur mikil fjölgun stú- denta, en þeir verða orðnir á þriðja þúsund eftir að- eins 10 ár. Mál er því að hefja verkið, stórfellda upp- byggingu æðstu menntastofnunar þjóðarinnar með hliðsjón af óskum og áliti rektors og alls starfsliðs. Ekki aðeins þarf fjölgun kennaraliðsins heldur einnig fjölda nýrra námsgreina, sérstofnana, rannsóknar stofa og mikils tækjakosts. Jafnframt er vissulega tímabært að innleiða meiri námsaga meðal stúdenta og nýbreytni í námsháttum. Á þann hátt verður sókn þjóðarinnar til betra lífs og bættra lífskjara í landinu tryggð. Frá aðalfundi Hagtryggingar. Arinbjöm Kolbeinss. læknir i ræðustól. Til hliðar við hann er Aml Guð- jónsson hrl. og Sigurður Sigurðsson. 800 hluthafar í Hagtryggingu Laugardaginn 4. júní var haldinn aðalfundur Hagtrygg- ingar h. f. í Sigtúni. Fundar- stjóri var Ámi Guðjónsson hrl. og fundarritari Sigurður Sig- j-urðsson hdl. y?Kýf#tHli$8Ms- .stjómar var ^gg.t frfctsstofnun félagsins og rekstri þess fyrsta starfsárið. Félagið var stofnað 15. apríl 1965 og hóf starfsemi sína með bifreiðatryggingum um mánaðamótin aprfl—maí sama ár. Stofnendur voru 543 og hlutafé rúmar 5 milljönir króna. Hlutafé er nú 6,8 millj- ónir og hluthafar um 800. Mun þetta eitt stærsta hlutafélag, sem stofnað hefur verið án til- styrks opinberra aðila. Nú eru tryggðar hjá félaginu 5.300 bif- reiðir, og er það þriðja stærsta bifreiðatryggingafélag landsins. Auk bifreiðatrygginga hafa ýmsar aðrar tryggingagreinar- verið teknar upp, svo sem heimilistryggingar, glertrygg- ingar, innbústryggingar, bruna- tryggingar, vörutryggingar smábátatryggingar, ferðaslysa- tryggingar, atvinnuleysistrygg- ingar og farmtryggingar. Hag- trygging kom með nýtt bif- ■ reiðatryggingafyrirkomulag með sérstöku flokkakerfi, á- •samt iðgjaldalækkun til alls þorra ökumanna á s. 1. ári. En . 4 þegsu ári lækkaði félagiö flesta iðgjaldaflokka um 5%. Lægsti flokkur iðgjaldakerfis- ins er ennþá ónotaður, en ætl- unin er, að hann verði opnaður beztu ökumönnunum á næsta ári, sem verið hafa í tryggingu hjá félaginu í tvö ár, svo sem upprunalega var ákveðið. Fé- lagið hefur tekið upp nútíma- tækni I skrifstofurekstri, en húsnæðisþrengsli hafa hamlað þróun félagsins, en væntanlega verður bætt úr því bráðlega, er skrifstofumar flytja í rúmgott húsnæði í hinu nýja húsnæði templara á Skólavöröuholti. Félagið hefur stutt með fjár- framlögum ýmiss konar slysa- vamir og öryggismál, og gefið út umferðaralmanak með stutt- um en mikilvægum leiðbeining- um fyrir ökumenn. Niðurlag skýrslu félags- stjómar var á þessa leið: „Félagið er ungt og enn í örum vexti. Aðeins eru tveir mánuðir síöan gengið var frá endurtryggingarsamningum fyrir allmargar tegundir nýrra trygginga. Vart mun það fara á milli mála, að tilkoma Hag- tryggingar hafi valdið þeim ið- gjaldalækkunum, sem almennt komu fram á þessu ári. Ekki hef ur verið reiknað út nákvæm- lega, hve mikið fé bifreiöaeig- endur spara vegna þessara lækkana, en sjálfsagt mun það nema tugum milljóna á þessu ári. Um árabil, áður en Hag- trygging kom til sögunnar, voru bifreiöatryggingar reknar með tapi og iðgjöld þeirra hækkuðu á ári hverju. Þegar Hagtrygging hafði starfaö um skeið með nýju tryggingafyrir- komulagi og lækkuðum iögjöld- um, snýst málið við, afkoma bifreiðatrygginga veröur hag- stæð og iðgjöld lækka almennt verulega. Af þessu má að sjálf- sögðu draga ýmsar ályktanir, ekki eingöngu um trygginga- mál, heldur einnig varðandi ýmis viðskiptamál þjóðfélagsins almennt. Það mun ekki gert að þessu sinni, en aöeins bent á þá staðreynd, að hér er að verki nútíma skipulagning og frjáls samkeppni í sinni réttu rnynd." 1 fjármálaskýrslu fram- kvæmdastjóra, Valdimars J. Magnússonar, kom fram, aö heildarvelta félagsins á tímabil- inu 1. mal til 31. desember 1965 nam tæplega 16 milljónum Umsóknir Samkvæmt skipulagsskrá fyr ir Snorrasjóð, sem birt er í B- deild Stjómartíðinda 1931, nr. 99, verður allt að % ársvaxta sjóðsins, k.. 8.000.—, variö til styrktar íslenzkum náms- og fræöimönnum til lærdóms- og vísindaiðkana í Noregi. Stúdent- ar og kandidatar, sem leggja stund á norræn fræði, og fræði- króna og nettóhagnaður á þessu timabili var rúmlega 1,3 milljónir króna. Fundurinn samþykkti tillögu frá stjóm félagsinsy ám að greiöa hluthöfum 15,% ársarð fyrir árið 1965. einnijí vhT sam- þykkt að leggja 400.0P0 jjaónur af tekjuafgangi í arðjöfnunar- sjóð. Þá var frá því skýrt, að stjóm félagsins hefði heimild til þess að áiika hlutafé um tæpar 14 milljónir króna, og myndu hlutabréf vera til sölu á skrif- stofu félagsins til næstu ára- mótá. 1 stjóm félagsins voru kosnir: Arinbjöm Kolbeinsson, Gísli Hermannsson, Ragnar Ingimars son, Reykjavík, Sveinn Torfi Sveinsson, Garðahreppi, og Guöfinnur Gíslason, Keflavík. Varastjóm: Páll Jónsson, Kefla- vík, Garðar H. Gunnarsson, Selfossi og Garöar Sigurgeirs- son, Reykjavík. Endurskoðend- ur voru kosnir: Jón Helgason og Hallvarður Einvarðsson. Varaendurskoðandi: Axel Kristjánsson, Hafnarfirði. Hin nýkjöma stjóm skipti með sér verkum á fyrsta stjómarfundi, og var Arinbjöm Kolbeinsson kosinn formaöur og Gísli Her- mannsson varaformaður. Fram- kvæmdastjórar félagsins eru Valdimgr J. Magnússon, sem stjómar daglegum rekstri þess, og Erlendur Lámsson, sem ann- ast um tryggingarfraeðileg mái- efni félagsins. • Á aðalfundi mættu um 170 hluthafar, með umboð fyrir nær helming hlutafjár. um styrki menn, er hafa með höndum á- kveðin verkefni úr norrænni sögu og bókmenntum, skulu að öðru jöfnu ganga fyrir um styrkveitingar. Umsóknir um styrku úr sjóðn um, ásamt námsvottorðum og meömælum, sendist forsætis- ráðuneytinu fyrir 1. júll 1966.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.