Vísir - 25.07.1967, Blaðsíða 2
V í SIR . Þriðjudagur 25. júlí 1967.
Meistaramótið i frjálsum iþróttum:
Langhlaupari / 400 metra grinda-
og varí íslandsmeistari!
KR vann í gærkvöldi 7 meistarastig fyrsta
kvöld meistaramóts íslands í frjálsum íþrótt-
um, eða rúman helming þeirra titla, sem keppt
var um. — Keppni var í nokkrum greinum
skemmtileg og spennandi, eu úrslit urðu nokk-
uð á þann veg, sem búast mátti við.
Beztu afrek: GuÖmundur með 4 köst yfir 17
metra í kúluvarpi, bezt 17.69 metra — Val-
björn 22.4 í 200 metra hlaupi — Þorsteinn Þor-
steinsson 1.55.3 í 800 metra hlaupi.
Þriðji varð Sigmundur Her-
mannsson með 53.04.
Þórarinn Arnórsson, ÍR, vakti
athygli í 800 metra hlaupinu,
hélt vel í við Þorstein Þorsteins
son, KR. Þorsteinn vann örugg-
Alls eru 118 keppendur skráð
ir til leiks á M.í. í frjálsum
íþróttum, sem er nú haldið í
41. skipti. Einhver misbrestur
er þó á að fólk mæti til leiks
eins og gengur, en f sumum
greinum virðast þó margir mætt
ir, sem ekki eiga beint heima
á meistaramótum, enda hlýtur
það f framtíðinni að vera svo
að „rjóminn“ verður veiddur of-
an af, áður en haldið er til
sjálfs Meistaramóts Islands, og
þar keppi þá eingöngu valdir
menn, en ekki hver, sem það
kann að detta í hug.
En snúum okkur að keppninni
í gær. Sennilega er Halldór Guð
björnsson, sá glaðlyndi skóari
einhver furðulegasti íþróttamaö
urinn okkar í dag. Halidór hef-
ur löngum eytt kröftum sfnum
sem hinn „einmana langhlaup-
ari“, sjaldan hlaupið 5 km. í
kompanfi með fleirum en einum
eða tveim öörum. Nú venti hann
sínu kvæði í kross og hljóp 400
metra grindahlaup öðru sinni og
náði tímanum 56.1. Greinilegt
er, að þesi nýi íslandsmeist-
ari í greininni á að geta náð
metinu innan skamms, því
mörgu er ábótavant við stíl
hans yfir grindunum ennþá.
Guðmundur Hermannsson
varpaði fjórum sinnum í gær
yfir 17 metrana, — og það langt
yfir þaö strik. Tvö kasta hans
voru ógild. Lengst hjá honum
var 17.69, en Erlendur Valdi-
marsson varð annar með, 15,30,
aðeins 9 cm. styttra en Guð-
mundur kastaði á M.l. í fyrra.
Arnar Guömundsson átti bezt
15.07. Guðmundur bætti meist
aramótsmetið um 1.66 m en það
átti Gunnar Huseby.
1 langstökki náðist ekki nema
miðlungs árangur og varla það.
Skagfirðingurinn Gestur Stefáns
son varði þar meistaratign sfna
frá í fyrra, stökk 6.82 metra,
en Jón Þ. Ólafsson stökk 6.70
métra og Guðmundur Jónsson,
Skarphéðni, 6.64. Ólafur Unn-
steinsson vann sannarlega af-
rek, þó hann lenti ekki á verð-
launapalli, — hann var í úr-
slitum í 10. sinn í röö.
Valbjörn Þorláksson sýndi að
hann er um þessar mundir í
góöu „formi“, vann Þorstein
Þorsteinsson örugglega á enda-
sprettinum í 200 metra hlaup-
inu og fékk ágætan tíma 22.4
sek, en Þorsteinn fékk 22.6 sek,
Reynir Hjartarson, Akureyri,
.23.5 sek.
Jón Þ. virðist staðráðinn í að
. stökkva ekki hátt í hástökki
í Laugardal, enda verður það
aö viðurkennast að uppstökkið
er ekki upp á marga fiska.
Hann varð íslandsmeistari á 1,85
metrum, en annar var Snæfell
ingurinn Halldór Jónasson með
1.80, og þriðji Halldór Matthías
son, Akureyri með 1.70 m, —
sem sagt „afrek" á borð við
Olympíuleika í kvennaflokki!
1 5 km. var Halldór Guð-
björnsson hinn öruggi sigurveg
ari og varö þvf tvöfaldur Is-
landsmeistari í gær. Hann hljóp
á 16.07.7 en Gunnar Snorrason
úr Kópavogi hljóp á 16.37.3
Spjótkast vann Valbjöm Þor-
láksson á 56.22, en afrek Finn-
bjarnar Finnbjörnssonar, 53.85
er mjög gott og lofar góöu.
Ótæmandi möguleikar i 1. deild:
Fjögur lii gætu oriið jöfn!
Hinlr fjölmörgu knattspymu-
áhugamenn brjóta nú heilann
um það, hvemig 1. deild fari
í ár. Fjöldinn allur af „kenn-
ingum“ er á lofti eins og geng-
ur og enda þótt Valsmenn séu
taldir með pálmann í höndun-
um er þó engan veginn víst aö
lslandsblkarinn gisti öðm sinni
í röö á Hlfðarenda í félagsheim-
ili þeirra.
Einn möguleikinn, sumum
í fkinst hann e.t. v. langsóttur,
var í gser talinn sá, að fjögur
lið verði jöfn og veröi aö leika
sín á milli, alls 6 leiki, um sig-
urinn. Sagt var af gárungunum
að það hafi verið KR-ingar, sem
hafi sótt þennan möguleika til
tölvu Háskólans, en ekki skal
neitt fullyrt um sannleiksgildi
þess.
En til gamans skulum við
renna augunum yfir þennan
möguleika, minusar þýöa töp,
plúsar sigra:
Valur 12 stig 4- IBK + Keflavik
= 12 stig.
KR 6 stig +Fram + Fram +ÍBA
= 12 stig.
Fram 8 stig + KR + KR+ ÍA
= 10 stig.
Keflavík 8 stig + ÍA + Valur
= 12 stig.
Akrancs 2 stig 4- I'ram-4-Keflav.
= 2 stig.
IBA 10 stig + KR + Valur
= 12 stig.
Kristín byrjaöi ekki fyrir alvöru
að æfa fyrr en í vor og er sann
arlega efnileg. 1 hástökkinu varð
Sigrún Sæmundsdóttir HSÞ
hlutskörpust, stökk 1.45 metra,
Þuriður Jónsdóttir, HSK, varð
önnur meö 1.35 metra og átta
stúlkur í næstu sætum, jafnar
með 1.25 metra. Varð því tals
verð þröng við verðlaunaafhend
inguna eins og geta má nærri.
Stafaði þetta af þvf að hækkað
var um 10 cm. í einu til að flýta
keppninni. 1 kúluvarpi varð
Emelía Baldursdóttir úr Eyja-
firði íslandsmeistari og varpaði
9.75 metra. Önnur eyfirzk stúlka
Sigurlína Hreiðarsdóttir, varpaði
líka 9.75 metra, en átti lakara
næst bezta kast og féll sigur
inn því f hlut stöllu hennar að
þessu sinni.
1 kvöld kl. 20 heldur meist-
aramótið áfram á Laugardals
velli. Keppt verður í 110 metra
grindahlaupi, þrístökki, sleggju
kasti, stangarstökki, kringlu-
kasti kvenna, 80 metra grinda-
hlaupi kvenna, 400 metra hlaupi
□ SVAVAR MARKÚSSON —
önnum kafinn þulur að störfum.
100 metra hlaupi, kringlukasti,
1500 metra hlaupi, 4x100 metra
boðhlaupi kvenna og 4x400
metra boðhlaupi karla.
— jbp —
□ HÖRKUKEPPNI um sæti f
800 metrunum.
lega á 1.55.3, en Þórarinn fékk
sinn bezta tíma, 1.56.7 og Gunn
ar Kristinsson, HSÞ, 1.59.2, en
flestallir hlaupararnir náðu sín
um bezta árangri í hlaupinu.
Hefði verið gaman að fá Hall-
dór Guðbjörnsson með í þessa
grein.
Þá vann KR 4x100 metra boð
hlaup á 44:4 sek, HSK á 45:7
og ÍR 46:8 sek.
Fimmtán ára gömul stúlka úr
Kópavogi, Kristín Jónsdóttir
varð íslandsmeistari í 100 metra
hlaupinu á 13.4 sek, en náði
betri tíma í undanrásum eöa 13.0
Golfmót Reykja-
víkur í kvöld
1 kvöld kl. 18 hefst golfmót ( veröa allir beztu kylfingar Reykja-
Reykjavíkur. Eru menn beðnir aö vikur meðal þátttakenda.
athuga breyttan tíma. Mótið fer fram á hinum glæsi-
Leiknar verða 18 holur í dag og lega velli Golfklúbbs Reykjavík-
i ur vlö Grafarholt.
fþróttir á
hótíðinni í Eyjum
Þjóðhátíðin i Vestmannaeyjumlj
verður haldin 4. og 5. ágúst n.k.Jj
"óg sér Knattspymufélagiö Týr um ]
hátfðina að þessu sinni. Eins ogjj
endranær verður mikið um íþróttirjl
á hátíðinni og vill Týr sérstaklegajj
hvetja alla íþróttamenn, sem verða
munu í Eyjum um þjóðhátíöina aö j
taka þátt f þeim. Þeim sem hafa
áhuga á að koma til keppni, ;i
mun verða séð fyrir ókeypis hús-
næði og fæði ef þeir láta vita nógu i
tímanlega.
Vilji einhverjir íþróttaflokkar koma
á hátíðina mun að sjálfsögðu verða
tekið á móti þeim á sama hátt,
komi þeir fram í keppni eða sýn-
ingu.
Þeir sem áhuga hafa á því að
heimsækja Eyjar í þessu skyni um
þjóðhátíðina hafi samband við
Reyni Guösteinsson á skrifstofu
félagsins sími 98-1080 milli kl. 16
og 19 alla virka daga nema laug-
ardaga.
Valsstúlkurnar
sigruðu í 2. flokki
Valsstúlkurnar báru sigur úr být
um í Islandsmóti 2. flokks, sem
fram fór í Vestmannaeyjum um
síðustu helgi. Mikil þátttaka var í
keppninni og unnu Valsstúlkurnar
verðskuldaðan sigur, áttu greini-
lega bezta flokkinn af þeim níu
félögum, sem þarna mættu til leiks.
Víi r vonn
4:2
Víkingur vann i gærkvöldi Hauka
meö 4:2 í 2. deild í knattspymu.
Eykur þessi sigur möguleika Vík-
inga á aö komast í úrslit í deild-
inni, en Vestmannaeyingar og Vík
ingar eiga einir möguleika á að
sigra í riðlinum.
5
i