Vísir - 27.07.1967, Blaðsíða 3
VlSIH . j.immtudagur 27. júlí 1967.
vy.
:f gMMm
ÍAx ■. Rgg
MYND
2. MYND
3. MYND
Inýju tækin sjónvarpsins
Mikið af nýjum tækjum hef-
ur nú verið sett Upp í Sjónvarp-
inu, og koma mörg þeirra í stað
sjónvarpsbilsins sænska.
Vísir geröi stutta heimsókn
í salarkynni Sjónvarpsins á dög-
unum, en þar var Jón Her-
mannsson að vinnu ásamt fleir-
um.
Við báðum Jón að sýna okk-
ur hin nýju tæki og útskýra í
stuttu máli þau verkefni sem
þeim er ætlað að vinna og varð
hann góðfúslega við þeirri beiðni
okkar. Við skulum nú láta mynd
irnar tala með útskýringum
Jóns.
Á fyi utu mynd 'sjáum við her-
bergið þar sem upptökuhljóö-
stjórnin hefur aðsetur, en þar
getur einn maður stjórnað öll-
um tækjum frá stjórnborði.
Hér eru segulbönd, grammófón
ar og margt fleira, sem of langt
yrði upp að telja. En hlutverk
deildarinnar er sem sagt hljóð-
stjóm við upptökur.
Á annarri mynd sjáum við upp
tökustjómklefann, en hann kem
ur m.a. í stað bílsins. Hér hef-
ur dagskrárstjórinn bækistöð
við upptöku ásamt aðstoðar-
stúl’.tu og myndveljara (mixer).
Hér er einnig upptökustjórinn
sem hefur yfirumsjón með tækni
legu hliðinni. Einnig er hér ljósa
stjórn ,en ljósum er öllum fjar-
stýrt héðan um skiptiborð.
3. mynd. Hér er aðalútsend-
ingarstjórnin til húsa og hljóð-
stjórn við útsendingu og vinna
hér 3 menn á meðan útsending
fer fram.
4. mynd. Hér sjáum viö þul-
inn fyrir framan myndatökuvél
sem er staðsett í þularklefa.
Þessi vél er fjarstýrð úr öðru
herbergi og getur hreyfzt á ýmsa
vegu. .
5. mynd. Jón Hermannsson
4. MYND
v
fyrir framan tækjasamstæðu
sem kalla mætti „heila mynda-
vélanna“, en hér fara allar mynd
ir í gegn, og er þetta fjarstýrt
eins og flest nýju tækin.
6. mynd. Hér sjáum við hinn
svokallaða „ampex“ eða mynd-
segulband en það er notað við
upptökur og útsendingar. í sama
sal er kvikmyndatökuvél af full
komnustu gerð, m.a. meö inn-
byggðri sjónvarpsklukku og vél
scm sýnir slidesmyndir og upp
úr áramótum er von á „prod-
jektör“ fyrir 35 mm filmur.
Eins og flestir vita tekur Sjón
varpið til starfa á ný um n.k.
mánaðamót, en fyrstu tíu dag-
ana eða svo verður sent út
skemmtiefni svo sem kvikmynd
ir og skemmtiefni af myndseg-
ulböndum, en engar fréttir. Þul-
ur mun kynna efniö sem endra-
nær.
1. MYND
mwmwmwM-
..■4*'*,,^ i'