Vísir


Vísir - 14.09.1967, Qupperneq 4

Vísir - 14.09.1967, Qupperneq 4
Vegna þess að afgreiðslumaður í smávöruverzlun greiddi einu sinni Horace nokkrum Burrows „hálfkrónu“-pening til baka (a half crown = 35 cent), þá er hann nú rúmum tveim milljónum króna ríkari. Peningur þessi er afar sjaldgæfur, alger safngripur, því hann var í rauninni aldrei gefinn út. Hann var sleginn 1952, eða réttara sagt nokkrir pening- ar voru slegnir til reynslu með mynd af George VI, en ,hann dó þetta ár. Peningarnir voru þó bræddir aftur, en nokkrir virðast þó hafa komizt í umferð. Burrows seldi peninginn á uppboði í Chelsea á $4,760. Það munaði minnstu, að Frakk land yrði einum dægurlagasöngv- aranum fátækara um daginn, þeg- ar ítalskur sportbíll rann til á veginum frá Biaritz til Bayonne á 120 mílna hraða. Billinn lenti á trjástofni og stöðvaðist þar, algjörlega ónýtur, en Johnny Hailyday og þrír farþegar stigu út úr bílnum ómeiddir svo til. Þeir höfðu aðeins fengið nokkrar meinlausar smáskrámur. SÆNSK LEIKKONA í ÁREKSTRI Sænsk leikkona, Christina Sch ollin ,sem að undanförnu hefur leikið í nýrri kvikmynd með Dirch Passer lenti nýlega i bílslysi. Á- reksturinn varð mjög harður, en hún ók sjálf sportbíl sínum þegar slysið varð. Áreksturinn varð nú stuttu eftir að breytt var yfir í hægri akst- urinn í S'víþjóð, en hinn bíllinn ók á vinstri vegarbrún. Skullu þeir saman á mikilli ferð, en Christina slapp þó furðanlega vel. Hún fékk heljarmikla kúlu á ennið og sneri á sér hnéð. Samt sem áður kom hún fram á leiksviði um kvöldið ,en hún leikur í Vasa-leikhúsinu í leik- ritinu Kaktusblómið. Hún fékk þó taugaáfall á slysstað, því hún er ófrísk og komin 5 mánuði á leið. Hélt hún að fóstriö hefði beðið einhvern skaða af árekstrinum, en læknisskoðun leiddi í ljós að svo var ekki. Það vildi henni til happs, að Þannig leit sportbíll sænsku leikkonunnar út eftir áreksturinn. hún haföi ekki þorað, barnsins inu, en það hefði þrengt að henni tilvonandi vegna, að spenna á um kviðinn og skorizt að, ef hún sig öryggisbeltið í ökumannssæt- hefði haft það yfir um sig. Fjölskyldur í Ab- erfan fá 5000 pund Christina Schollin fékk stóra kúlu á ennið og sneri á sér hnéö, en gat þó leikið um kvöidið. Jrn hundrað fjölskyldur, sem misstu ættingja í Aberfan-slysinu í október sl. munu fá 5000 sterl- ingspundum úthlutað úr sjóðnum, ;em skotið var saman þeim til líknar. Nefndin, sem kosin var til þess að annast stjórn sjóðs- ins, ákvað þetta um síðustu helgi. Slys.ið hryllilega vakti mikla athygli í fyrrahaust, þegar stór gjallhaugur, sem safnazt hafði saman utan í fjalli, þar sem þorpið Aberfan stendur, — hrundi yfir barn'askóia þorpsbúa og grófust undir honum hundruð bárna ög fullörðinrfa. Hundrað'óg sextán' born og túttugu og átta fullorðnir fórust í slysinu. Þetta var mikill missir 1 svo litlu og mannfáu þorpi sem Ab- erfan og mátti heita að, hver eft- irlifandi þorpsbúi hefði átt ætt- ingja, sem fórust i gjallskriðunni. Fólk fann líka sárt til með Aber- fanbúum og var hafizt handa og skotið saman fé, fólki þessu til hjálpar. Mikið fé safnaðist eða 1,800.000 sterlingspund. í fyrstu hafði það ekki verið ákveðið með hvaða hætti þessum peningum yrði bezt ráðstafað, svo þeir kæmu að sem mestu gagni. Það hefur nú verið ákveðið ,að hverri fiölskyldu sem missti barn í slysinu, skyldi úthlutað úr sjóðn um 5000 pundum og auk þéss verða 100.000 pund sett f sjóð til styrktar þeim börnum ,sem slös uðust. Þá munu nánustu ættingj- ar þeirra fullorðnu, sem létust í slysinu, fá sömu úthlutun úr sjóðn um og þeir sem misstu börn sín. Eftir eru þá um 800.000 sterlings pund, sem ekki hefur enn verið ráðstafað. Aðsent bréf. Eftirfarandi bréf hefur borizt undir fvrirsögninni: 30 milljónir til vegabóta? „Það er margra mál, að vega mál og búnaðarmál séu þau vandamál okkar íslendinga, sem örðugast sé að fá viðunandi lausnir á i dag. Það er því ekk- ert undarlegt þótt hafnar séu rökræður milli fulltrúa landbún- aðarins og fulltrúa vegfarenda (bifreiðaeigenda )um það, hvern- ig Alþingi v.er skattfé okkar til að leysa þessi mál bæði til að kosta bráðabirgðalausnir á stór um og smáum vanda. svo sem vegholum 1 dag, kjarna- og kal- skemmdum í túnum á morgun, og til að kosta varaniegar iausn ir á grundvallaratriðum og í stefnumálum, svo sem annars vegar lagningu Keflavíkurvegar og að koma varanlegu slitlagi á fjölförnustu leiðir, og hins vegar offramleiðsluvandamál landbúnaðarins og orsök búvöru verðlagsins hér í dýrtíðinni, sem er sá bölvaldurinn, sem verst leikur sjávarútveg og iðnað og krefst allt að.því tvöfalds vinnu- dags af launþegum. Ég get ekki orða bundizt nú, er ég nú f hádeglsfréttum fékk að heyra þá tilkynningu frá Framleiðsluráði landbúnaðarins, að ríkissjóður eigi í framtíðinni að greiða kr. 6.00 í uppbætur (niðurgreiðslur) af hverju kart- öfiukilói (b. e. kr. 6000 á tonn- ið), bændur skuli fá kr. 10.00 i sinn hlut, en rieytendur skuli greiða 8—9 krónur fyrir hvert kíló (útsöluverð). Ég greip viðskiptatíðindi við hentiHn. en það er hverfum manni auðvelt að kynna sér styrkja eða niðurgreiðslna. Þess skal getið að siðan í árslok 1964 hefur verð á dönskum kartöflum oft verið lægra en þetta, t. d. í febrúar 1965 var verðið 21 eyr- ir danskur á kg. og meðalverð alls ársins 1964 var 21,4 eyrir danskur á kg., en bað sýnir að á þessu 5 ára tímabili hafa kart- öflur verið lækkandi i verði á Evrópu-markaði. 1. Er íslenzk kartöflurækt þessa virði? 2. Hver biöur fremur um blaut- ar íslenzkar kartöflur, oft skemmdar úr hófi fram eða smælki, en um mjölmiklar erlendar? 3. Er ástæða til að vemda svona gífurlega islenzka kart öfluframleiöslu ? 4. Er ekki betra að veita IlmVfli Göai heimsmarkaðsverð og aðstæður hvers konar, og gera samanburð við okkar mál. Dæmið, sem biasir við mér, litur þannig út: Meðalverð á neyzlukartöflum á Sjálandi í Danmörku fyrir ár- in 1960-1964, þ.e. „noteraö“ verð á járnbrautarafgreiðslu eða í skipaafgreiðslu í höfn var ís- lenzkar kr. 1,67 á hvert kg. eða tæpa 26 aura danska á hvert kp. af dönskum gæöakartöfl- um. Vafalaust mætti því selja hér danskar kartöfiur í útsölu á um bað bil kr. 4.00 á k«. sem meðalverö yfir árið, án nokkurra Nú er mér sagt að sala á ís- lenzkum kartöflum sé nærri þvi að vera um 5000 tonn árlega, en þetta er ágizkun sem eingöngu stafar af þvi, að þrátt fyrir mik- ið lesmál í Árbók iandbúnaðar- ins 1966 get ég hvergi fundið neinar tölur um selt magn af íslenzkum kartöflum en það kann að vera af misgáningi min- um.En þcssa tölu má nota i dæmi mínu. Ef rikið greiðir nið ur kr. 6000 —sex búsund krónur á hvert tonn, þá fara í þessa hít um það bil 30 MILLJÓNIR KRÓNA. Nú spyr ég: frjálsan innflutning á kart- öflum ? — afnema einka- söluaðstöðu Grænmetisverzl- unarinnar ? — selia kartöflur tollalaust með heimsm.verði ? — lækka verð þeirra í útsölu um c.a. helming, úr rúmum 8.00 kr. í 4.00 kr.? - spara 30 milljónir króna í kart- öfluuppbótum — og nota þær tll varanlegra bóta á þjóðvegum? Vegna deilna um nafngiftir á fjármálaráðstöfunum, þ.e. upp bætur eða niðurgreiðslur. vil ég mönnum til leiðbeiningar benda á einfalda leið til að skera úr um hvort um er að ræða af þessu tvennu í hverju tilviki: a. Sé vara sem er framleidd á samkeppnisfæru heimsmark- aðsveröi, greidd niður af al- mannafé til að halda dýrtið I skefjum, þá er um niöur- greiðslur að ræða. b. Ef opinberir sjóðir hins veg- ar greiða hluta af framleiðslu verði einhverrar vöru, sem ekki stenzt samkeppnl á ná- lægum markaði, þá er um uppbætur að ræða. Sem sagt: Þegar ósamkeppnis fært verðlag er verndað meö framlagi af almannafé, þá eru það uppbætur. Þannlg er það með ailar greiðslur af almanna- fé til ísienzka búvörumarkaðs- ins, hvort sem bær fara til að haida uppi verði á útfluttum bús afurðum eða þær fara til aö halda útsöluverðl í skefium: — neytendum til vemdar, — sjávarútvegi og iðnaði til verndar — eða fjármálakerfinu til vernd ar. Vandamálin skýrast bezt, ef rétt orð era höfö á hverjum hlut“. „Vegfarandi á brotnum bíl“. Þakkir fyrir bréfið. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.