Vísir - 12.02.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 12.02.1968, Blaðsíða 8
gco r l : r ; V1SIR . Mánudagur 12. febrúar 1968. BWM8B——■——WBi Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands / 1 lausasölu kr. 7.00 eintakiö Prentsmiöja Vísis — Edda hf. Markmið i hagmálum Fyrir helgina var sagt í Vísi frá nýútkominni skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um efnahagsþróunina á íslandi. í skýrslunni sagði, að út- lit væri fyrir batnandi hag þjóðarinnar á þessu ári, eftir áföllin, sem hún varð fyrir í fyrra af völdum afla- brests og mikils verðfalls útflutningsafurða. Reiknar stofnunin með, að atvinna aukist aftur á þessu ári, þjóðarframleiðslan aukist að sama skapi og þá út- flutningstekjurnar einnig. En þessi bati væri algerlega háður því, að laun héldust óbreytt frá því, sem nú er, meðan atvinnulífið er að rétta við. í skýrslunni eru einnig nokkrar tillögur um stjórn efnahagsmála á þessu ári og virðast þær koma mjög vel heim við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahags- málum. Stofnunin telur, að reynsla síðustu ára hafi sannað, að þörf sé á kerfi, sem dragi úr tekjusveiflum vegna breytilegs afla og útflutningsverðlags. Verðjöfnunar- sjóður hraðfrystiiðnaðarins, sem nýlega var stofnað- ur, sé fyrsta skrefið á þessari braut. Svipað fyrirkomu- lag ætti einnig að geta orðið gagnlegt í öðrum greiiium sjávarútvegsins. Verðjöfnunarsjóðirnir starfa þannig, að í veltiárum mikilla af labragða og hækkandi útflutn- ingsverðlags taka þeir til sín hluta tekjuaukningarinn- ar og skila honum aftur á mögru árunum. Þetta á að stuðla að meira jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þá telur stofnunin, að fjármálalegar aðgerðir ríkis- valdsins víð stjórn efnahagsmála megi ekki valda röskun í verðlagi og kaupgjaldi. Mikilvægt spor í rétta átt sé hin nýja vísitala, sem tók gildi nú um áramótin. Einnig varar stofnunin við ofnotkun niðurgreiðslna- og styrkjakerfis, m. a. vegna röskunarinnar, sem það veldur á fjármálum ríkisins. Loks segir stöfnunin, að stefna stjómarvaldanna geti stuðlað að aukinni hagræðingu og framleiðni, þótt það hljóti fyrst og fremst að vera verkefni fyrir- tækjanna sjálfra og samtaka þeirra. Eins og málum sé háttað, sé líklegt, að stjórnaraðgerðir geti einkum komið að gagni við umbætur á skipulagi atvinnuveg- anna. Þar sem atvinnuvegirnir séu einkum byggðir upp af sriiáum fyrirtækjum, sé verulegt svigrúm til að ná aukinni hagkvæmni með sameiningu smárra fyrirtækja í stórfyrirtæki. Bendir stofnunin á lána- stofnanirnar sem aðila, er geti stuðlað að slíkri þróun. Og svo segir í niðurlagi skýrslunnar: „Tollar eru enn háir og gæti frekari lækkun þeirra verið mikilvægur þáttur í stefnu stjórnarvaldanna að stuðla að aukinni framleiðni.“ í skýrslunni leggur OECD áherzlu á, að reynt sé að efla sem mest skilning allra aðila á nauðsyn sem mestrar festu kaupgjalds og annarra tekna. Velgengni þjóðarinnar á þessu ári sé að mjög miklu leyti komin undir samstarfsvilja op. ábyrgri afstöðu launþega og atvinnurekenda. • Vökull tekur yffir umboð fyrir Firestone Fyrir nokkru tók Vökull h.f. að sér enn eitt þekkt umboð í bíldiðnaðinum, umboðiö fyrir Firestone Tire and Rubber Company í Akron, Ohio. Fire- stone þekkja íslenzkir ökumenn gegnum árin, enda eru dekkin frá því fyrirtæki að heita má jafngömul uppfinningu bílsins. Fulltrúi Firestone, C. F. Mason talaöi við blaöamenn fyrir nokkru og sagði frá fyrirtækinu. Hann sagöi að Firestone legði nú eins og áöur aöaláherzlu á Þarna eru forstjóramir i Vokli, Jóhann Scheiter og Jón H. Magn- vöruvöndun og að verksmiðjur ússon> en fyrirtæki þeirra hefur urnboð fyrir Chrysler-bifreiðir Firestonp væru þær fullkomn- °g hefur nú bætt við sig umboði fyrir Firestone-hjólbaröa. ustu í heiminum og hvert fram- leiðslustig væri undir ákaflega ströngu eftirliti. . „. _. Japanir hafa undanfarin ár féla§lnu J'fr,Line ráðið mestu á hjólbaröamarkaö- «lun„ hun t^ka 160 farþega. Fé- inum hér og þá ekki sízt Brid- aS'ð á nu 4 velar>, sem ýjf1/® gestone-dekkin, enda hefur farþega og 5 vélar . af DC-6B verölag þeirra veriö talsvert ferð> sem faka hfer um SIS,85 lægra en á öðrum dekkjum. Á farÞega, . Aljs tekur flugvéla- hinum Noröurlöndunum hefur hostur Loftleiöa þvi 1341 far- Firestone komiö sér vel fyrir ^ega . • sæti., Nýja flugvélm og er það ætlunin að leggja nú verður innrfttuö á Formósu nokkra áherzlu á íslenzka mark- / aiPei’ en F Jinf Tlger rað afðl aðinn og verö þegar orðið sam- Loftleiöum að skipta við fyrir- keppnishæ-ft frá verksmiðjum tækl har veSna Sóðrar Firestone í Hamborg, Sviss, sem þeir höföu fengiö þar. Vélin London, Svíþjóð og Noregi. kostar 2.5 milljómr dollara, eða Byrjað er að selja dekkin og fást 14^ mdljómr fsl. krona. Engin þau í Hjólbarðanum h.f. á ríkisábyrgð eða aðrar opinberar á Laugavegi 178 og Aöalstööinni fkuldbindmgar hvila á þessum í Keflavík kaupum, en Loftleiöir segjast hafa notið góðrar fyrirgreiðslu ---------- íslenzkra stjórnvalda í sarpbandi við kaupin. • Loftleiðir með 1341 sæti í vélum sínum Loftleiðir hafa enn aukiö flug- vélakost sinn, — fimmta vélin af Canadair CL44 gerö hefur verið keypt frá bandaríska flug- # Tryggingca- miðstöðin opnnr bíladeild Fyrir nokkru byrjaði Trygg- ingamiðstööin h.f. nýja þjón- ustu fyrir viðskiptavini sína, — bílatryggingar. Hefur skrifstofa veriö sett á lagg- irnar í Hátúni 4 A, sem er sama hús og verzlunin Nóatún er í. Var flutt inn um miðjan desembermánuö og síðan hefur veriö lífleg i hinni nýju deild, að sögn Garðars Jóhannssonar, hins unga útibússtjóra, sem hafði áðu/ starfað í 4 ár á aðalskrif- stofunni f Aðalstræti 6. Ástæð- una fyrir því aö bifreiðadeildin er sett upp utan viö miðbæinn sjálfan segir Garöar vera þá, aö erfitt sé að bjóöa bíleigendum að skrifstofunni nema góð bíla- stæði séu fyrir hendi, og þau fáist vart í miöborginni. Tryggingamiöstöðin var stófn- uð 1956 f desember og fyrsta starfsáriö voru heildariðgjalda- tekjur aðeins 4.747.000 krónur, en 1966 voru þær meira en 75 millj. króna. Eflaust hefur síð- asta ár, enn hækkað þessar töl- ur. í útibúinu við Hátún mun Tryggingamiðstööin veita alla tryggingaþjónustu, sem fyrir- tækiö býöur, og þurfa menn því ekki aö leita langt yfir skammt til aö fá tryggingaþjónustu, en fyrirtækiö veitir alla slíka þjón- ustu, nema líftryggingar. Starfsfólkið i hinni nýju bifreiðadeild Tryggingamiöstöðvarinnar í Hátúni 4A, Garðar Jóhannsson, útibússtjórj og Helga Runólfsdóttir. rrr/ Tl i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.