Vísir - 28.02.1968, Page 1
Starfsmenn Rafmagnsveitunnar bera sandpoka í rafstöðvar-
húsið. íbúðarhús stöðvarstjórans í baksýn umflotið vatni.
(M: R. Lár.).
Sagt er frá flóðunum á bls.
2, 9 og 16 í blaðinu í dag
f
SKARD KOMIDISTIHUCARDINN
Vatn flæðir inn í spennistöðina
■ Skarð er komið í Árbæjarstíflugarðinn, og nú
rennur vatn úr Elliðaánum umhverfis gömlu raf-
stöðina og undir „spennana“ og hnédjúpt vatn
orðið í kjöllurum húsaþyrpingarinnar utan um
stöðina.
■ Engin hætta er þó talin á, að rafmagn fari af
bænum, nema stíflurnar (Elliðavatnsstífla og Ár-
bæjarstífla) brystu, en þá myndu „spennamir“,
sem standa við endann á gömlu rafstöðinni, vera
í hættu. Á þessu er þó talin lítil hætta, þar sem
vatnið í ánni hefur rénað í nótt, en þó hefur mynd-
azt skarð í miðri efri stíflunni.
Skarðið kom í neðri stífluna í
morgun, er vatnið ruddi úr garð
inum þar sem gerð var tilraun í
gær til þess að rjúfa garðinn
með ioftpressum og sprenging-
um af ótta við, að stíflan brysti
undan álaginu. Við þetta fælddi
vatnið kringum gömlu rafstöð-
ina og fljótlega fyllti allan
kjallara hennar og íbúð stöðvar-
manna í næstu húsum. Menn
óðu í morgun í mitti á milli húsa
og reynt var að dæla úr kjöll-
urunum. Kjallarinn hjá stöðvar-
stjóranum var einnig fullur af
vatni.
Vatnið flæddi undir „spenn-
ana“, þar sem niðurtakið úr
Sogslinunni er, en þeir gegna
þýðingarmiklu hlutverki við raf-
veituna til Reykjavíkurbúa. Úr
,,spennunum“ liggja strengir í
aðalspennistöðina og úr henni og
varastöðinni liggja jarðkaplar
undir Elliðaárnar til bæjarins.
Áin var tekin að grafa undan
þessum jarðköplum og stóð
mönnum einna mest stuggur af
því. aö það myndi valda raf-
magnstruflunum.
Vatnsaginn var jafnvel tekinn
að grafa undan sprennistöðvar-
húsinu, þaðan sem jarðstreng-
m-+ 10. síða.
Gunnar Eyjólfsson náði fyrsta hestinum yfir. Hann reið eftir veginum, upp strauminn ásamt öðrum manni og fann vað
fyrir ofan hesthúsin. Nokkrir aðrir fóru þá leiðina, þó að flestir hafi farið með hrossin niðurfyrir. (Ljósm. Vísis B.G.)
Björgunarsveit og hestaeigendur
björguðu hestunum í morgun
Hestarnir höfðu margir staðið í vatni í sólarhring í hús-
unum, en enginn þeirra var talinn hafa farizt í morgun
Það fyrsta, sem ég varö
að gera þegar ég kom í
húsin var að brynna hest-
unum, sagði Gunnar Eyj-
ólfsson leikari, einn hesta-
eigenda í Kardimommu-
bæ, en hann kom fyrstur
manna með eitt hross yfir
á þurrt land í morgun, þeg-
ar hestaeigendur, slysa-
varnadeildin Ingólfur og
umferðarlögreglan voru að
bjarga hestum úr hesthús-
um, sem var umluktur
vatni á alla vegu. Það voru
þó ekki allir, sem gátu
sagt sömu söguna, því að
flestir hestanna stóðu í
vatni og hafa staðið þann-
unum í Kardimommubæn- ig í húsunum síðan í gær-
morgun, og var farið að
óttast verulega um hest-
ana.
Björgunarmenn voru mættir kl.
S í morgun til að bjarga hestunum
úr prísundinni. Var stefnt að því
af hálfu umferðarlögreglunnar og
slysavarnadeildarinnar Ingólfs að
tryggja allt öryggi manna áöur en
byrjað var að bjarga hrossunum
með línum og gúmmíbátum, en
eins og kemur fram í frásögn á
bls. 2 munaði nær engu að maður
færist í fljótinu í gær. Þegar frá
öryggisútbúnaði hafði verið geng-
ið, riðu fyrstu menn yfir fljótiö,
10. síða.
Ölfusá flæðir inn i
mörg hús á Selfossi
metersþykkir jakar hafa
borizt upp á aðalgötur
bæjarins
Gífurleg flóö voru i Ölfusá i
morgun og var jakaruðningur i
ánni. Myndaðist klakastífla á Ár-
bæjarvikinni rétt neðan við Selfoss
og flæddi áin langt inn í bæinn.
Tryggvaskáli var umflotinn vatni.
— Áin flæddi einnig inn í kirkjuna
og allt upp að Selfossbíói.
Var óhemjuvatnsmagn í ánni og
virtist heldur fara vaxandi í morg-
un, en flóðið hefði ekki orðið svo
mikið í bænum, ef þessi klakastlfla
hefði ekki myndazt.
Samkvæmt þeim fréttum, sem
Vísir fékk seinast rétt fyrir hádeg-
ið hjá lögreglu-.ni á Selfossi hafði
áin flætt inn í mörg hús og valdið
miklum skemn dum. Var hún 1—
200 metra frá venjulegum bakka
sínum og náði til húsa við Selfoss-
veg, Þórisveg og Grænuvelli.
Stórir jakar stóðu á götunni
beggja vegna brúarinnar, allt að
metersþykkii
Vatnsborðið í ánni varð mest I
nótt um fjögur leytiö, eða á fimmta
me.tra vfir venjulegt vatnsborð og
er þaö svipað og það hefur mælzt
hæst í ánni, 1948.
Hlaupið kom i ána um fjögur-
Ieytið í nótt og olli það mestu
skemmdunum. Bílar lokuðust inni
í iakaruðning’' og var unnið að því
meö jarðýtum í morgun að bjarga
þeim. Hafa orðið á þeim einhverjar
skemmdir.
Vatnið sjatnaði eitthvað í ánni,
þegar leið á morguninn, en óx svo
aftur þegar á daginn leið. — Er
tjónið orðið gífurlegt af vatnsaga
í húsum á Selfossi og eru þar ekki
ö!> kurl komin til grafar enn, þvi
að áin virtist enn í vexti rétt fyrir
liádegi, og var því nær búin að
ná sömu hæö og í hlaupinu í nótt.