Vísir


Vísir - 28.02.1968, Qupperneq 2

Vísir - 28.02.1968, Qupperneq 2
2 VI S IR . Miðvikudagur 28. febrúar 1968. ÆTLAÐIAÐ KENNA BLÁSTURSAÐFERÐINA jr _ Lífgunaraðgerðir voru þarna EN NOTAÐI HANA I STAÐINN heldur um hofuð mannsins, en Hannesi tókst að blása Tíðindamenn Vísis urðu sjónnrvottar að óvenjulegri björgun í tlóðunum í gær lífi í Svein. Eiginkona Sveins horfir á. • Það er ekki á hverjum degi, að fréttamenn verða vitni að björgun manna frá dauða, sízt af öllu, ef menn lenda mjög skyndilega í lífsháska, en þetta kom fyrir tíðindamenn Vísis í gær og fleiri fréttamenn. - Það er ekki heldur á hverjum degi að fyrirmenn Slysavama- félags íslands taki sjálfir þátt í því að lífga menn úr dauðadái, þó þeir stjórni oftlega björg- unaraðgerðum. — Það kom fyrir Hannes Hafstein fulltrúa hjá Slysavarnafélaginu í gær, en segja má, að nærvera hans við svonefndan „Kardimommubæ“, hesthús við Elliðavatn hafi bjargað lífi eins hestaeigandans, Sveins Kristjánssonar, leigubílstjóra á Hreyfli, en hann lenti í straum- þungri og mikilli kvísl í Elliðaánum, sem myndaðist í vatnavöxtunum miklu, sem urðu í gær. — Það komu fleiri við sögu við björgun mannsins, m. a. tveir fréttamenn, þeir Ámi Gunn- arsson hjá Útvarpinu og Vignir Guðmundsso'n hjá Morgunblaðinu. ..."""m m " X £5 "'í' Mestan heiðurinn af björg- uninni á þó Eyvindur Hregg- viðsson, sem sýndi óvenjumikið hugrekki, þegar hann kastaöi sér út í beljandi stórfljótið og gat náð taki á Sveini eftir tvær tilraunir. Sveinn var að koma úr hest- húsi, þar sem hann geymir hross sins við Elliðavatn, þegar hann datt í árnar. — Fleiri menn höfðu verið að huga að hrossum í hesthúsum þarna, en óðum flæddi aö hesthúsunum, þar sem þau stóöu á hólma, sem hafði myndazt í miðjum vatnsbeljandanum. Tvær bifreið- ir höfðu festst í ánum og voru menn að reyna að ná þeim upp, en Sveinn hafði tafizt nokkuð í hesthúsunum og hafði ekki náð yfir ápa meðan ennþá gat tal- izt vætt. Veittu menn honum litla at- hygli, þar sem hann var aö reyna að komast yfir „fljótið", vegna þess að athyglin beindist að bifreiðunum tveimur. Skyndilega urðu menn varir að Sveinn missti fótfestuna. Hann greip þegar sundtökin og tókst að komast langleiðina að bakkanum, þar sem menn stóðu. Hann missti þá þrótt, sennilega vegna kuldans og barst svo hratt með straumn- um út meö tanga, en fyrir neð- an tangann tók við víðáttumik- ið og strfumþungt lón. Sveinn barst svo hratt með straumin- um að um tíma leit ekki út fyrir að hægt yröi að ná honum áður en hann bærist niður fyrir drag- ann, en þá hefði ekki verið viö- lit að ná honum . Eyvindur Hreggviðsson, sem var næstur, þegar Sveinn féll í ána, kom á tangann um sama leyti og Svein rak þar fram- hjá og hafði engin umsvif með það, heldur henti sér þegar út í strauminn. Hann náði taki á Sveini, en vegna straumþungans og straumhraðans missti hann af honum aftur. — Sveinn barst nú niður í lónið og var nú vægast sagt orðið tvísýnt um björgun hans, enda hefðu víst fæstir gert það sem Eyvind- ur geröi nú. — Hann hugsaði sig varla andartak um áður en hann henti sér á eftir Sveini aftur út í straumþungt lónið, en lítil von virtist vera til að hann næði landi aftur. Svo heppilega vildi til, að þar sem Eyvindur náði taki aft- ur á Sveini, voru grynningar og gat hann haidíð honum þar. Vonlaust var fyrir Eyvind að hefja blásturslífgunartilraunir, þar sem hann átti fullt í fangi með að halda honum uppi, bæði vegna straumþungans og vegna þess að Sveinn var orðinn með- vitundarlaus. Nærstaddur maður reiö nú út í lónið til aðstoðar og gátu hann og Eyvindur eitthvað komið viö blástursaögerðum úti í lóninu. Nú hafði fleiri menn drifið þarna aö og lögðu þeir Árni Gunnarsson og Hannes Hafstein á stað til mannanna þriggja og höfðu stuðning af hrossi, sem Vignir Guömundsson sat. — Tókst þeim að koma Sveini upp á hest Vignis og ferja hann þannig í land. Þeir sem fylgdust með þess-x um björgunaraðgerðum datt ekki annað í hug, en að Sveinn væri þegar látinn, en Hannes Hafstein hóf þegar blásturs- björgunaraðferðir á manninum. Hann var þá orðinn mjög kaldur en sýndi fljótt lífsmark. Nær- staddir nudduöu útliti mannsins til þess að örva blóðrásina og munu víst margir hafa fengið aukinn skilning á mikilvægi blástursaðferðarinnar við þetta. Eftir þetta var maðurinn fluttur til Reykjavíkur, fyrst með jeppa sjönvarpsins út á Suðurlandsveginn, en þar tók sjúkrabifreið viö honum og flutti hann á Slysavarðstofuna. Á leiöinni voru gerðar lífgunar- aðgeröir sem nauðsynlegar voru. Það var eiginlega af rælni, sem ég fór þarna uppeftir, sagði Hannes, þegar Vísir ræddi við hann eftir björgunina. — Ég ætlaði í gær austur að Hvols- velli, þar sem ég ætlaði mér að leiðbeina fólki með blásturs- aðferðiná og aðrar lífgunarað- gerðir úr dauðadái. Ófært var að Hvolsvelli, þr.nnig að þeg- ar hestaeigendur hringdu til þess að spyrja hvort hægt væri að fá aðstoð við að komast til hrossanna, fannst mér ég alveg eins geta gert það, þar sem ekk- ert annað lá ^érstaklega fyrir. Þetta er í annað skipti sem Hannes hefur lífgað mann úr dauðadái. Hitt skipið var í New York, en þá var Hannes stýri- maður á íslenzku skipi. Hann notaði þá gamla aðferð við Iffgunina. VATNSFLAUMURINN RUDDIST Á MOTI FOLKINU Eins og fram kom í fréttum blaðsins í gær, var ástandið slæmt í Hafnarfirði, en þar flæddi vatns- og aurelgur inn i kjallara húsa, götur grófust í sundur og varð aö loka nokkr- um þeirra. Einnig fuku járnþlöt ur af húsi í bænum og ýmsar fleiri skemmdir á mannvirkjum munu hafa orðið í Hafnarfirði, Til vinstri sést hvernig lóðin aö skemmdir á götum Hafnarfjarðar. Ölduslóð 16 var útleikin eftir flóðið, en til hægri sést dæmi um . (Ljósm. R. Lár.). en þær voru ekki fullkannaðar þegar þetta er skrifaö. Blaðamaður Vísis hélt til Hafnarfjarðar um miðjan dag í gær, til að kynna sér ástandið og var þar vægast sagt ófag- urt um að litast hvað ástand gatna snertir. Hjá neðri brúnni við Lækjargötu hafði vegurinn grafizt sundur og var gatan því lokuð. Viðgerðarmenn frá bæn- um unnu að lagfæringu götunn ar bg fylltu í skarðið. Við neðri brúna hafði veriö komið fyrir plönkum til að vatnsyfirborð tjarnarinnar héldist \í hæfi- legri hæð, en nú uröu plank- arnir til þess, að brúin hafði ekki undan að flytja það vatns magn, sem í tjörninni myndað- ist, Eftir talsverða umhugsun var ákveðið að taka plankana burtu en óttazt var að við það mundi lækurinn ekki hafa und- án að heldur og vatn flæða i kjallara þe'rra húsa sem næst honum standa, en sú varð sem betur fór ekki raunin á. Næst lagði blaðamaðurinn leið sína að svonefndri Illubrekku, en hún er ■ sundurgrafin á kafla og rennur myndarlegur lækur eftir henni. Gatan var lokuð þegar blaðamanninn bar að, en þó létu sumir sér það í létu rúmi liggja og óku götuna með því að þræða kantinn. í myndarlegu húsi að Öldu- slóð 16 hafði mikið tjón orðið í kjallara vegna þess að vatnið náði að flæða í hann í fyrrinótt. Vísir hitti húsmóðurina að máli og veitti hún góðfúslegt leyfi sitt til að hann mætti skoða verksummerki. I kjallaranum er herbergi tveggja sona frúar- innar og sagöi hún að þeim hefði brugðið í brún þegar þeir hefðu opnað dyrnar á herberg- inu sínu í morgun. Þá komst vatn flaumurinn á móti þeim, en þeim tókst að loka dyrunum aft- ur, og fóru síðan út um glugga. Miklar skemmdir urðu í kjall- aranum. Gólfteppi skemmdust mikið, húsgögn og innbyggðir skánar létu á sjá. Frúin sýndi blaðamanninum inn í eina geymsluna sem nú stóð auð og m-y 10. síða.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.