Vísir - 28.02.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 28.02.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Miðvikudagur 28. febrúar 1968. morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd Nýju innflYtjendalögin hrezku tíl annarrar umræðu Callaghan slakaði til — féllst á áfrýjunarrétt þeirra, sem neitað er um landvistarleyfi Brezka stjórnin féllst f gær á þá breytingu á nýju innflytjendalögun- um, að þeir sem hafa brezkan borgararétt og vilja flytja frá sam- veldislöndunum til Bretlands, skuli njóta áfrýjunarréttar, hafi þeim ver ið neitað um landvistarleyfi. Það var James Callaghan, sem tilkynnti þetta við aðra umræðu frumvarpsins í neöri málstofunni. Megintilgangurinn með frumvarp- inu, er að stemma stigu við afleiö- ingum of mikils aðstreymis Ind- verja og Pakistana frá Kenya, sem hafa brezk borgararéttindi, sem þeir kusu sér, er Kenya fékk sjálf- ' en stjórnarvöldin þar vilja við þetta fólk og eru farin að gera því erfitt fyrir. Fyrr í gær neitaði Callaghan að taka við sendinefnd frá Kenya, en hún var skipuð fuiltrúum manna af Asiustofni, er neitað hafði veriö um landvistarleyfi á Bretlandi. Lagafrumvarpið sætir mótspyrnu frá Frjálslynda flokknum og all- mörgum þingmönnum Verkalýðs- flokksins, en stjórn íhaldsflokks- ins styður lagafrumvarpið, en legg- ur hins vegar engar hömlur á þing- menn flokksins við atkvæða- greiðslu og er búizt við, að margir þingmenn flokksins greiði frum- varpinu atkvæði. Callaghan kvað lagafrumvarpið hafa verið mjöig gagnrýnt, vegna Johnson kom til Dullus í gær víðfækar öryggisráðstafanir gerðar þess að ákvæði um áfrýjunarrétt vantaði, en einkum ákvæöiö sem takmarkar innflutning fólks, sem ekki er brezkt, en hefur brezkan borgararétt. Þennan innflutning á að takmarka svo að innflutnings- ieyfi fái aðeins 1500, en þar sem þeim er það fá mega taka fjölskyld- ur sínar með, er áætlaö að hann nemi 6—7000 manns árlega. Alls eru í Kenya 200.000 manns í þess- ^im flokki og yfir milljón manna í óðrum löndum heims (samveldis- löndum aðallega). Nýju innflytjendalögin á Bret- landi voru samþykkt f neöri mál- stofunni í gær í lok annarrar um- ræðu í gærkvöldi meö miklum meiri hluta atkvæða, þrátt fyrir að marg- ir þingmenn úr báðum aðalflokk- unum sætu sjá, alls 118, þar af 35 úr Verkalýðsflokknum en eng- um agareglum verður beitt gegn þingmönnum, sem sátu hjá eða greiddu ekki atkvæði. Fimmtán þingmenn úr íhaldsflokknum greiddu atkvæði gegn frumvarp- inu og 10 þingmenn Frjálslynda flokksins, en 100 þingmenn úr íhaldsflokknum greiddu frumvarp- inu atkvæði. Það var samþykkt til 3. umræðu með 372 atkvæðum gegn 62. Við umræðuna neitaði Callagh- an innanríkisráöherra, að um nokkra kynþáttamismunun væri að ræða, en það væru takmörk fyrir því hve mörgum innflytjendum Bretland gæti veitt móttöku á hverj um tíma. — U Thant hafnaði í gær afskiptum af málinu, — kvað það brezkt innanríkismái. vv. s-.-. ví James Callaghan. J0HNS0N á fundi með helztu rúðunautum sínum Skýrsla Wheelers hershöfðingja liggur fyrir fundinum Johnson forseti kom í gær til DaQas f Texas í fyrsta sinn síðan er hann var þar með Kennedy for- seta, er hann var myrtur 22/11 1963. Johnson kom flugleiðis frá bú- garöi sínum í Texas og þaö var ekki fyrr en háifri klukkustundu áður en flugvélin lagði af stað frá Berg- ström-flugvelli, sem er 112 km frá búgaröinum, sem kunnugt varð, að forsetinn ætlaöi til Dallas, en þáng- að fór hann til s þess. að flVt’ja á- varp a fundi Landssambands raf- orkuvera í sveitahéruðum lands- j ins, en þau starfa á samvinnu- | grundvelli. 1 Dallas var' gripið til víðtækra öryggisráðstafana og var m. a. öll- um hliðargötum lokað við aöalveg- inn, sem ekið var frá flugvellinum að fundarstað. Sovézkir sérfræðingar í stað brezkra í Suður-Yemen? Landvarnaráðherra Suður-Ye- men vék í gær frá öllum brezkum sérfræðingum, sem starfa í her, flugher og sjóliði Iandsins. Hann skýröi frá þessu í útvarps- ræðu, en sagði ekkert um hverjum yrði falið að taka við þessum störf- Uiíi. Landvarnaráðherrann Ali Sal- em al Beedh er nýkominn heim frá Moskvu, en þangað fór hann til þess að leita stuðnings handa her og öryggissveitum Suöur-Ye- men. Bretamir, sem vikið var frá, voru ráðnir til starfa af Suður- Arabíu-sambandsstjórninni, en henni var steypt, og þegar Suður- Arabíu-sambandsríkið fékk sjálf- stæði, var tekið upp nafnið Suður- Yemen. 1 landhemum em 3 brezk- ir sérfræðingar, í sjóhernum 7 og flughernum 18. McNamara og Johnson forseti. Johnson Bandaríkjaforseti heldur fund síðdegis í dag með helztu ráðunautum sínum og leggur fyrir fundinn skýrslu Wheelers hers- ■ höfðingja um ferð hans til Viet- nams, og situr hann fundinn og auk hans Robert McNamara land- varnaráðherra, sem lætur af em- bætti ,nú um mánaðamótin, og sá er viö tekur Clark Clífford, Dean Rusk utanríkisráðherra, Maxwell Taylor hershöfðingi og fleiri. Það eru fyrst og fremst hinar alvarlegu horfur í Vietnam og hvemig snúa megi þar við taflinu. sem rætt veröur á fundinum, en það er augljóst af ummælum John- sons forseta, er hann talaði í gær í Texas, að stefna verður áfram aö markinu, og bregðast ekki her- mönnunum í Vietnam, heldur herða sóknina til að ná aftur frumkvæð- ínu. Hann kvaö tilganginum ekki hafa verið náð með sókn kommún- ista, en þar fyrir er styrkur þeirra sem er meiri en búizt var við. Tals- maöur utanríkisráðuneytisins við- urkenndi í gær, að sókn Norður- Vietnama og Pathet-Laos í Laos væri mikið áhyggjuefni. Tökum upp í dag glæsilegt úrval af táningakjólum frá Mary Quant. Ennfremur mikið úrval síðdegiskjóla í öllum stærðum og litum. Einnig nýkomnar regnkápur og ullartauskápur í fjölbreyttu úr- úrvali. ■ Munið hina hagstæðu greiðsluskilmála. KJÓLABÚÐIN MÆR Lækjargötu 2 Hætta kommúnistar í Yietnam skæruhernaði? — Þeir nota / vaxandi mæli skriðdreka og vélknúin hergógn og flutningatæki í NTB-frétt frá Saigon í gær segir, að Vietcong og Norður-Viet- namar noti í vaxandi mæli skrið- dreka og vélknúin flutningatæki og telji menn það auka líkumar fyrir að þeir muni breyta til og fara að beita venjuiegum hernaðaraö- ferðum og draga úr skæruhern- aöi. Þá segir í fréttinni að þrátt fyrir auknar sprengjuárásir á flutninga- leiðir frá Norður- til Suður-Viet- nam, takist greiniiega að koma til Vietcong-hermanna vopnum, skot- færum og öðrum birgöum, er þeir þurfa. Nefnt er sem dæmi, að þrjú brynvarjn flutningatæki hafi verið eyöilögö og flutningabíll f bardaga aðeins 17—18 kílómetr- um norövestur af Saigon og 1—2 km frá landamærum Kambódíu og hefir slíkra hertækja Vietcong ekki orðið vart fyrr svo sunnarlega. Fyrr ( mánuöinum beittu Norður- Vietnamar 9 skriödrekum, er þeir hertóku Lang Vei nálægt Khe Sanh. Iðulega hefir sézt til skriðdreka í grennd við afvopnuðu spilduna og landgönguliðsmenn í Khe Sanh hafa heyrt til skriödreka að nætur lagi. Bardagarnir í Laos. Héraöahöfuðstaöirnir Saravane og Attopeu í suðurhluta Laos eru enn umkringdir norður-vietnömskr liði og Pathet Laos liði. Stjórnarflokkar hafa átt í bar dögum viö þetta liö í útjöðrum borgarinnar, en nánari upplýsing ar eru ekki fyrir hendi. Komœun istar munu hafa mikiö lið í grennri við Attopeu og hald manna er. að þar sé mikil orrusta í aðsigi. — Pathes Laos lið hefir náð á vald sitt tveimur fjallasköröum fyrir austan Vientiane.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.