Vísir - 28.02.1968, Síða 8

Vísir - 28.02.1968, Síða 8
8 V í SIR . Miðvikudagur 28. febrúar 1968. VÍSIR - UtgeíancU: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson / rtOsr.ooarritstjóri: Axel Thorsteinsson » Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands 1 lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiöja Vísis — Edda hf. Dýrt valdastríð JTramámenn Alþýðubandalagsins hafa háð í nokkur ár hatramma baráttu hver við annan. Ágreiningurinn í bandalaginu verður sífellt djúpstæðari. Þjóðviljinn í Reykjavík og Verkamaðurinn á Akureyri eyða oft meira rúmi í innbyrðis deilur en í almenn stjómmál. Er nú svo komið, að sumir þingmenn Alþýðubanda- lagsins neita að sitja þingflokksfundi þess. Þetta valdastríð endurspeglast í verkalýðsfélögun- um og Alþýðusambandi íslands. Greinilegt er, að þar ríkir ósamlyndi meðal höfðingjanna. Þeir hafa líka ólíkar skoðanir á því, hvernig kjarabótum verði bezt náð. Undanfarin ár hefur þar verið ofan á sú stefna að fara varleg'a, og hefur sú stefna örugglega verið launþegum til hagsbóta, eins og lífskjör undanfarinna ára sanna. Margir foringjar í verkalýðsfélögunum hafa hins vegar ekki verið ánægðir með þessa stefnu. Þá hefur dreymt um að fá aftur gömlu verkföllin, æsinginn, verkfallsstríðið og upplausnina. Þeir hafa notað hvert tækifæri til að grafa undan áhrifum hinna skynsam- ari leiðtoga. Þessar verkfallshetjur hafa náð töluverðum árangri undanfarna mánuði. Starf þeirra hefur leitt til þess, að aðrir verkalýðsforingjar hafa séð sitt óvænna og tekið upp harðari stefnu til þess að tryggja áhrif sín. Er núna komið upp gamalkunnugt ástand, — yfirboð. Verkalýðsleiðtogarnir keppast hver við annan um efsta sætið í kröfuhörkunni. Skynsamlegum sjónar- miðum er rutt til hliðar og sá er mestur, sem mest heimtar. Nýja harkan hefur leitt töluverðan hluta verkalýðs- hreyfingarinnar út í verkfallastríð. Verkalýðsforingj- arnir hafa notað stóryrðin svo mjög, að varla verður aftur snúið, án þess að þeir telji sig vera að missa andlitið. Afleiðingin er sú, að ekkert samkomulag um kjörin er í augsýn. Málin eru komin í hnút og horfur eru á löngu verkfalli. Skynsamlegt hefði verið að viðurkenna erfiðleika atvinnuveganna og samþykkja að fresta vísitölu- hækkunum um skeið, meðan atvinnuvegirnir eru að jafna sig og áhrif gengislækkunarinnar að koma fram. Þá hefði framleiðslan getað aukizt á ný — leitt til atvinnuöryggis og myndað grundvöll að raunveruleg- um kjarabótum. En valdastríð Alþýðubandalags- manna í verkalýðshreyfingunni hindrar þetta. Þeir þurfa ekki sjálfir að borga brúsann. Það er fólkið í landinu, sem gerir það; fyrst með tekjutapi vegna verkfallsins; síðan með atvinnumissi vegna samdráttarins, sem fylgir í kjölfar verkfallsins; svp ? verðhækkunum, sem atvinnuvegirnir verða að efna til, svo að þeir fái staðizt; og loks í almennum verð- bólguspíral og jafnvel nýrri gengislækkun. Þsð er þjóðinni dýrt spaug að verða að borga inn- byrðis valdastríð Alþýðubandalagsforingjanna. Uppdráttur, sem sýnir legu ALBORAN, en eyjan er miðja vegu milli suðurstrandar Spánar og Norður-Afríku-strandar. NJÓSNASKIPog NJÓSNAEYJAR ■ Njósnaskip hafa veriö mjög fréttaefni að undanfömu — og oft áður — en nú um tíma einkum vegna Pueblomálsins, og svo er atburðurinn á Tonkin- flóa kominn mjög á dagskrá. Það var blásið upp að noröur- kóresk herskip hefðu ráðizt á tvo bandaríska tundurspilla, og varð það upphaf loftárásanna á Noröur-Vietnam, en nú er deilt um þaö vestra hvort tund- urspillirinn hafi veriö þarna tii njósna og hvort Norður-Kóreu- mönnum hafi verið ögrað tii að’gera árás á þá til þess að fá átyllu til loftárásanna. En um það verður ekki rætt hér, heldur um „njósnaeyju", en eyjan er komin í fréttirnar vegna væntanlegra samkomu- lagsumhytana Bandaríkjamanna og Spánverja um herstöövar hinna fyrrnefndu á Spáni. Og um njósnaeyjuna er mikiö rætt um þessar mundir í spönskum blööum og eftir þeim hafa blöö annarra landa birt sitthvað um málið. í einni frétt um þetta segír: Lftil, gleymd eyja, sem enginn hirti um, er aftur á allra vörum og ekki um annað meira rætt en hana í spönskum blööum. Nafn eyjarinnar hefur arab- iskan blæ og hreim, en hún nefnist Alboran og hún er um það bil miöja vegu milli suður- strandar Spánar og strandar Norður-Afríku, um 200 km vega lengd frá Gíbraltar. I blöðunum segir, að þegar til samkomulagsumleitana komi á næstunni um herstöðvar Banda- ríkjanna á Spáni muni samninga nefndir þeirra óska eftir, að Bandaríkin fái eyjuna til um- ráða til þess að koma þar upp eftirlitsstöð með elektróniskum tækjum og tilgangurinn sé, aö geta fylgzt meö sovézkum her- skipum og flugvélum, en Sovét- ríkin hafa stööugt verið að treysta aðstööu sína sjó- og lofthernaöarlega í seinni tíð á Miðjarðarhafi einkum á austur- hlutanum. En nú herma fregnir, að þeir muni ekki láta sér nægja sterka hernaðarlega aöstöðu að- eins þar, — þeir sovétmenn óski jafnsterkrar aðstöðu viö vestan- vert Miöjaröarhaf, og sagc er aö þeir eigi að fá miklar herstööv- ar hjá vinum sínum í Alsír, m. a. í Mers-el-Kebir, sem var mikil frönsk herstöö, en hún var af- hent Alsir ekki alls fyrir löngu, — fyrr en þurft hefði fyrri samninga vegna. Stjórnin í Washington minn- ist ekki einu orði á Alboran, en — ef trúa má spönsku blööun- um, vilja Bandarfkin fá eyna fyrir njósnastöö. Þar er nú aðeins vitavöröur og fjölskylda hans. Um eyjuna liggur sæsími frá Suður-Spáni til Meliila í Noröur-Afríku, sem lýtur spönskum yfirráðúm. Heföu Bandaríkjamenn þessa stöö á sínu valdi gætu sovézk herskip eöa flugvélar blátt á- fram ekki hreyft sig án þess menn vissu allt um það í Albor- an og gætu fylgzt með öllu. Nú verður ekkert sagt um það á þessu stigi málsins hvern- ig á því stendur, að nafn þess- arar eyju skýtur allt I einu upp kollinum, en getgátur hafa kom- iö fram um, að það sé að undir- lagi spönsku stjórnarinnar, þetta sé forleikur af hennar hálfu að samkomulagsumleitun- um. Hún hafi „spilað út“, áður en rnenn væru búnir að taka sér sæti við spilaboröiö. En margt gæti bent til að samkomulags- umleitanir yrðu erfiðar. Bandaríkjamenn og Spánverj- ar gerðu fyrst sarnkomuiag um bandarískar herstöðvar á Spáni 1953. Samkvæmt þeim samnin^- um fengu Bandaríkjamenn yfir- ráð flotastöövarinnar Rota, ekki langt frá Cadiz, þar sem kaf- bátar, sem hafa meöferðis kjarn- orku-tundurskeyti (Polaris- skeyti) hafa aöalstöð, og loks flugvelli nálægt Madrid, Se- villa og Zaragossa, olíuleiðslu þvert yfir Spán (750 km langa) og viss herstöövarrétt- indi á Mallorca. Fyrst var samið til 10 ára og svo var hægt að endumýja samningana til tveggja 5 ára tímabila, eins og það var orðað, í stað 10 ára, en milli 5 ára tímabilanna mætti taka samning ana til endurskoðunar og það er það, sem nú verður gert. Og þær era byrjaðar eða að byrja með haustinu, en raimar má segja, að' undirbúningur undir þær sé hafinn. Líklega verða Spánverjar dýr- seldir á forréttindin. „Það er allt svo dýrt núna,“ sagði spánskur embættismaður fyrir skömmu, „verðið á öllu er hækkandi, líka á réttindum til herstöðva." Af ýmsum ástæðum er margt í vafa, svo sem sterkari aðstoð Rússa, sem Spánverjum er ekki um, en þó eru þeir að auka sam- vinnuna við Sovétríkin og við- skiptin, og Bandaríkjamenn era ekki sérlega vinsælir á Spáni — m. a. vegna þess að þar er litið á þá sem vini og stuðnings- menn Breta í deilunni um Gibr- altar. i Wilson svarar fyr irspurnum um r r sprengjuarasirnar ■Harold Wilson svaraði fyrir- spumum í gær í neðri málstofu brezka þingsins og sagði, aö Bandaríkjastjórn myndi þegar i stað stöðva sprengjuárásimar á Norður-Vietnam, ef ömgg vitn- eskja fengist um þaö, að stjóm- in f Hanoi viídi samkomulags- umleitanir um frið. Hann kvað Bandaríkjastjórn óska samkomulagsumleitana í allri einlægni. Hann vitnaði f viðræður þær, sem U Thant átti viö hann f London á dögunum, og heföi U Thant ekki sagt neitt, sem varpaði ljósi á tilgang stjóm ar N.-V. — Wilson kvað stjóm sína ekki mundu falla frá stuðn- ingi við Vietnamstefnu Banda- rikjastjómar. Harold Wilson forsætisráðherra.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.