Vísir - 28.02.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 28.02.1968, Blaðsíða 9
VISIR . Miðvikudagur 28. febrúar 1968, 9 v ■ ■ 'i riíijiííiihii, Premenningarnir, TV/Tiklir vatnavextir urðu í ám og vötnum á Suður- og Vestur- landi í gær. Vatnselgur flóði víða um vegi og gróf skörð í þá svo að umferð tepptist víða á fjölförnum leiðum. Athygli Reykvíkinga beindist mest að Elliðaánum, sem flóöu langt upp fyrir bakka sína. Muna menn ekki eftir slíkum vexti í ám fyrr né síöar. Vatnsborð Elliðavatns hækk- aði stórum og flóði yfir stífluna að ánum. Flóöi vatn víða um- Hannes Hafstein, fulltrúi Slysa- varnafélagsins, sem staddur var þar upp frá, lífgunartilraunir á honum á leiðinni á sjúkrahúsiö. Frá þessu er nánar sagt á 2. síðu Vísis I dag. Óttazt var að stíflun.ar í ánni brystu undan vatnsþunganum. Reynt var að sprengja skarð I neðri stífluna til þess að létta á henni en sú aðgerð kom að tak- mörkuðum notum. Mórauö vatnselfan flæddi með ógnarþunga að Elliðavoginum, Jarðborinn, sem stendur í hólm- anum milli ánna var nánast á floti og veiöikofinn í hólman- um var einnig umflotinn. Lögregluvakt var viö Elliða- árbrýrnar allan seinni hluta dagsins og fram á nótt. Áin þrengdi sér með miklum gný undir brýrnar og óttuðust menn að hún myndi grafa undan stólp- um eystri brúarinnar, eöa tæta sundur veginn. Var hún að smá höggva skarð í veginn viö brúna í gær og eins vist að þessi aöalsamgönguæð út úr borginni myndi rofna, ef flóðin héldust dag til viðbótar. Margt fólk safnaöist saman upp við Elliðaárnar og myndað- ist þar hálfgerður umferöarhnút ur á tímabili. Og það var vissulega tignar- leg en óhugnanleg sjón að sjá þessa á sem stundum er ekki í hné orðna aö beljandi róti. Bifreiðir, sem voru á ferð upp með Elliðaánum sátu fastar á eyjum í miðjum flaumnum, og sums staðar stóðu einungis þök af útihýsum upp úr flóöinu. Enginn vegur en enn sem komiö er aö gera sér grein fyrir tjóni, sem flóðin í Elliöaán- um hafa valdið. hverfis sumarbústaði og önnur mannvirki, sem standa nærri árbakkanum. — Hestar, sem geymdir í húsum í svokölluö- um Kardimommubæ í Vatns- endalandi voru í mikilli hættu, seinni partinn í gær, þar eð vatnselfan flóði allt í kringum þá. — Settu menn sig í lífs- háska við að bjarga þeim. Einn hesteigandi sem reyndi að vaða elginn aö hesthúsi sínu féll i ána og var með naumindum bjargað. Hafði hann velkzt npkkra stund í ánni og var illa til reika. Var honum ekið í bif- reið sjónvarpsmanna og gerði Þama bullaði vatnið upp í vaskahúsinu. — Guðrún bendir Ijósmyndaranum á. Gamla brúin við Vatnsendaveg var oröin ófær yfirferðar og hætt við að hún léti þá og þegar undan ágangi árinnar. (Myndina tók ljósm. Vísis B. G. um fjögurleytið í gær). Vöknuðu við að flæddi inn í íbúðir — Það er allt á floti alls staðar — glumdi í eyrum manna í eina tíð, þegar brezki dægu- lagasöngvarinn, Tommy Steel, var sem vinsælastur, en þessi slagari hefði vel átt við f fyrri nótt í Reykjavík. Þá vöknuðu menn víða upp í kjöllurum við, að vatn var tekið að flæða inn á þá, og máttu standa fram undir morgun viö að ausa út úr híbýlum sinum, nema þá þeir sem voru svo heppnir að komast yfir dælur. „Ætli það hafi ekki verið um 20 til 25 cm djúpt vatn í kjall aranum í vesturenda hússins“, sagöi einn íbúðareigandanna í blokk nr. 51—55 við Kapla- skjólsveg, Sighvatur Sveinsson rafvélavirki, þegar þlaðamenn Vísis komu að honum og tveim öðrum íbúendum hússins, þar sem þeir voru að dæla úr hús- hrunninum. „Við erum búnir aö dæla síð- an fyrir kl. átta í morgun.“ Klukkan var langt gengin í eitt og brunnurinn var enn stútfull- ur. Þeir þremenningarnir, Sig- hvatur, Einar Einarsson og Valtýr Sigurðsson, stud. jur. sögðust hafa verið vaktir kl. 4 í fyrrinótt.... ,,... en það var gamla konan hérna niðri I kjallaranum, sem I varð fyrst vör við þetta“... og þá var vatn á gólfinu í kjallar- anum. „Það kom upp um niöurföllin í kjallaranum. Sprautaöist þar alveg upp. Bara allra laglegasti gosbrunnur." Sagði Sighvatur og glotti við. Félagar hans brostu með honum, eins og þeir gera, sem léttir við að komið er yfir erfiöasta hjallann. „Já, já, það er búið að þurrka allt upp núna en líklega er stífl að hér úti I götunni. Við ætlum að tæma brunninn og sjá til.“ Leiðslumar frá dælunum lágu út yfir gangstéttina og út á og bílar sem óku framhjá skvettu upp á gangstéttina aftur og á gangandi vegfarendur, sem gutu illu auga til þremenning- annna og tautuöu ljótt fyrir munni sér á eftir bílunum, en þeir þrír skeyttu því engu. „Þið hefðuð átt að koma hér í morgun þá hefðuð þið fengið að sjá sjón. Hérna við vestur- gaflinn á húsinu var heilmikil tjörn. Sko, hún náði hingaö upp á húsvegginn . ..“ og Sighvatur sýndi með tánni hvar vatns- borðiö hafði sett merki í lim 20 cm hæð á veggnum ... „ ... og hún náði hér yfir allt!“ og hann sveiflaöi hend- inni í stórum boga. Þar var nú allt orðið þurrt aftur. „Já. Það voru allir ræstir út í blokkinni og við hringdum í lögregluna, sem vísaði okkur á Rörverk ... (fyrirtæki, sem sá okkur fyrir dælunum). Síöan höfum við staðið við.“ götu. Þar myndaðist stór tjöm jVTiðri í kjallaranum hitti blaða- maðurinn konuna, „sem fyrst hafði orðið vör við þetta". Hún sagðist heita Guðrún Jó- hannesdóttir., „Ja héma!“ sagði Hún og skellti sér á lær, þegar hún heyrði hverra erinda blaðamað- urinn kæmi. „Er ég nú komin í blöðin." „Já, þetta var nú meira flóð ið. Ég varö vör viö vatnið, þegar ég steig í það um leið og ég fór framúr í nótt. Ha? .. Nei, ég veit ekki, hvað vakti mig. Ætli það hafi ekki veriö undirmeö- vitundin. Ég vakti hitt fólkið, en það var ekkL svo mikiö vatn þá. Þeg- ar ég jps því fram (með fægi- skúffunni minni), þá komst það ekki innfyrir þröskuldinn aftur. En það var vatn héma á gólf inu á öllum ganginum frammi., en svo komu þeir blessaðir og jusu því upp. Annars sögðu þeir Valtýr, Sighvatur og Einar, gættu mennirnir, sem komu með dæl- umar, að við hefðum aldrei klár- aö ausa því með höndunum, nei nei. Konurnar hér uppi hjálpuðu mér svo að þurrka upp, en við vorum ekki búin fyrr en.. já, ætli hún hafi ekki verið orðin hálf ellefu". Frú Guörún sýndi blaðamann inum hvar vatnið hefði flætt inn og hvernig „mennirnir uppi“ hefðu neglt spýtu ofan áþrösk uldinn við þvottahúsiö, en... „Vatnið kom nefnilega hérna upp um niöurfallið í vaskahús inu og til þess, að það færi ekki meira fram á ganginn, settu þeir spýtuna fyrir.“ Guðrúc kvað ekkert hafa spillzt hjá sér, sem komið væri í ljós. „Ég veit ekki með gólfdúk- ana. Hvort vatn hefur komizt undir þá. En þaö kemur þá 1 ljós.“ að dælunum. Ottazt ii m s f

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.