Vísir - 28.02.1968, Side 10
70
/
V1SIR . Miðvikudagur 28. febrúar 1968.
Hvattsrfundur
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
heldur skemmtifund í kvöld kl. 8.30
í -Sjálfstæðishúsinu. Þar leikur frú
Hjördís Pétursdóttir létta tónlist,
Ómar Ragnarsson stjórnar spurn-
ingakeppni milli kvenna úr Vestur-
bæ og Austurbæ, og leikinn verður
einþáttungurinn „Núliðin tíð“. Kaffi
verður borið fram milli atriða. —
Sjálfstæðiskonur og gestir þeirra
eru velkomnar meðan húsrúm
leyfir.
Skurð —
■3—> 1. síðu.
imir liggja, og í morgun unnu
starfsmenn rafveitunnar við að
bera sandpoka inn í húsiö til
styrktar og verndar strengjun-
um.
Rafstöðin missti símasam-
band við bæinn í morgun, þar
sem vatn komst í kjallarana, en
þar éru símainntökin í húsin. '
Þær fréttir bárust frá vatns-
og hitaveitu borgarinnar, að rör
in sem lágu yfir árnar frá nýju
borholunni í Blesugróf, hefðu
látið undan vatnselgnum og
leiðslan væri rofin.
Engin hætta er hins vegar
talin á því að vatnsleiðslurnar
til borgarinnar létu sig, svo
fremi sem gamla brúin neðan
við Elliðavatnstífluna héldist
uppi.
Vatnsveitan og borgarlæknir
hafa varað fólk við að drekka
Gvendarbrunnavatnið og ráðlagt
mönnum að sjóða það fyrst.
Hrossin —
-B—iy l. síðu.
beir Gunnar Eyjólfsson og Jón
":;>urbjörnsson, leikarar, en
skömínu síðar var byrjað að ferja
hestaeigendur og fleiri út í húsin.
Hrossin voru rekin í hnapp áður
en þau voru rekin yfir fljótið, en
einstaka hross slapp og lenti í
miklum villum um vatnasvæöið.
Ekki varð þó slys á hrossunum
meðan tiðindamenn Vísis voru við
staðinn í morgun.
Það ,ra!k töluvert á eftir björgunar
mönnum, að hætta var talin á að
efri stfflan í Elliðaám væri oröin
veik fyrir, jafnvel óttazt um, að
hún kynni að brestá þá og þegar,
en ef það hefði gerzt hefði allt
farið á kaf, hús, menn og hestar.
Þaö var þó ekki anað að neinu
og reynt að hafa stjórn á hross-
unum, þégar þau komu úr húsun-
um.
Samkvæmt þeim fregnum, sem
tíðindamenn Vísis fengu á staðnum
í morgun, var ekki vitað um að
nein hross hafi farizt, þó að ljótt
hafi verið sums staðar um að lit-
ast. Að vísu hafði þá ekki veriö
fariö í öll húsin, en 1 fiest, þar sem
ástandið var talið alvarlegast.
Ekki var hægt að fá nákvæma
tölu um fjölda hrossanna í hest-
húsunum, en hestaeigendur töldu
þau vera hátt í hundraö.
Fljótið hafði rénað töluvert í
morgun, miöað við það sem það
var um miðjan dag í gær, en samt
var alls ekki talið hættulaust að
ferðast um svæðið.
Það var mikill æsingur í sumum
við staðinn í gær, enda bárust alls
konar Gróusögur um svæðið. Því
var meðal annars haldið fram, aö
neðri stiflan væri farin og Elliða-
árbrýrnar með.
Öngþveitif —
16. síöu.
komið í veginn; en annars er
velfært um Hvalfjörð og bílar
úr Reykjavík komu um fjögur
í nótt í Botnsskála á leið austur.
Miklir vatnavextir eru í Norð-
urárdal hjá Dalsmynni og víða
upp um héraðið. Ár fóru úr far-
vegum sínum og flæddu framhjá
brúnum, eins og f Lundareykj-
adal og við brúna hiá Brautar-
tungu, en mikill vöxtur var í
Reykjadalsá.
í Borgarfirði flæðir Hvítá yfir
veginn beggja vegna brúarinnar
hjá Hvítárvöllum og Ferjukoti.
Grimsá flæðir yfir veginn
skammt fyrir neðan Hest í
Andakílshreppi, þar er all-
mikill jakaburöur í ánni. í
Flókadal og á Skorradalsvegi
hafa ræsi látið undan, svo aö
erfitt er þarna aö komast leiðar
sinnar.
Vatn hefur flætt yfir veginn
nálægt Fiskilæk í Leirársveit.
Þar myndaðist mikil tjörn, en
fljótlega varð aftur fært um
veginn.
Á Vestfjörðum og noröur
um land hefur geisað mikið of-
viðri. Orkoma hefur verið mjög
mikil o£ vatn hefur sums staðar
komizt' inn í kjallara húsa. í
rokinu fuku þakplötur af hús-
um, en ekki er vitaö til þess
að þær hafi valdið tilfinnanleg-
um skaöa. Víöa reyna menn að
stjórna vatrtsflaumnum og
beina honum frá húsum sínum
með því að höggva rásir í jörð-
ina.
Á Kirkjubóli í Skutulsfirði
fauk þak í heilu lagi af fjósi.
Nokkuð var um skriðuföll og
vegir víða erfiðir yfirferðar af
þeirra völdum. í Vatnsskarði í
Skagafirði fauk stór vöruflutn-
ingabifreið út af veginum, en
lenti á hjólunum, svo aö innan
skamms var hægt að draga hana
upp á veginn aftur.
Á Akureyri var mjög hvasst,
en ekki hafa borizt þaðan nein-
ar fréttir af skemmdum af
völdum veðurs. Þaðan var fært
til Húsavíkur og Öxnadalsheiði
var einnig fær.
Á Snæfellsnesi uröu víða mikl
ar vegaskemmdir. Ár flæddu yf-
ir vegi og grófu þá í sundur
sums staðar. Vegurinn um nesið
var þó fær í morgun að því er
Hjörleifur Sigurðsson, vega-
vinnuverkstjóri í Hnífsdal tjáði
blaðinu í morgun.
Mestar skemmdir uröu i Öl-
afsvíkurenni, en þar féllu marg
ar smáskriður á veginn og var
hann allsófær yfirferðar í gær.
Linnti þar ekki grjótkasti úr
fjallinu og aurruðningi, svo að
stórhættulegt var að fara þar
um á tímabili. Byrjað var að
gera við veginn í dag og búizt
við að hann yrði fljótlega fær
aftur, en hætt hafði að rigna í Ó1
afsvík x morgun og tekiö að
snjóa, þegar á daginn leið.
Nokkrar skemmdir urðu á
húsum við Ólafsvíkurbraut, þar
sem vatn flóði inn í kjallara.
Vegurinn til Grundarfjarðar
lokaðist um tíma í Fróðárhreppi
í gær, en viögerð var lokið í
gærkvöldi. Hins vegar var veg-
urinn utan í Búlandshöfða
hættulegur yfirferðar í gær,
vegna skriðuhættu.
Laxá f Miklaholtshreppi fór
yfir veginn hjá Stóru Þúfu og
var mikill jakaburður í ánni í
gærkvöldi og alldjúpt vatn á
veginum. Talpverð flóð voru
einnig hjá Gerðubergi og hjá
Syjálg í Kolbeinsstaöahreppi, en
þar flóði lítill lækur yfir veginn
á kafla.
Vfða voru slörk í veginum og
minniháttar tálmar eftir úrkom-
una og vatnávextina.
Gunnarshólmi —
16. síðu.
vatnið hefur ekki náð að fljóta
inn.
*
Fer á bát út í skepnu-
húsin.
Ár á Suðurlandsundirlendi
voru gífurlegum vexti í gær. Var
gífurlegt vatnsvagn í Hvítá, þar
sem Tungná, Stóra-Laxá og
Litla Laxá koma í ána en þessi
fljót voru öll í miklum vexti.
Brúará flóði einnig langt út yfir
Aðalfundur
Kaupmannasamtaka
Islands ')
verður haldinn fimmtudaginn 29. febr. 1968
að Hótel Sögu og hefst kl. 10. f.h.
FRAMKVÆMDASTJÓRN K. í.
ORÐSENDING
frá Coca-Cofa
verksmiðjunni
Samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar er
smásöluverð á Coca-Cola nú svo sem hér
segir: !
j . '■ |V ■ ;: / ~
Coca-Cola, minni flaskan kr. 5.25
„ „ stærri flaskan kr. 7.00
|
Verksmiðjan Vífilfell hf.
bakka sína og muna menn ekki
annað eins flóö í þessum ám
síðan 1930. Vísir náði í morgun
sambandi við Auðsholt í Bisk-
upstungum, en þar breiddi
Hvítá úr sér yfir stórt svæði
öfan við Iðu.
Bærinn var umflotinn vatni
og sagöi húsfreyjan, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, að bóndinn
hefði orðið að fara á báti yfir
í skepnuhúsin til gegninga, en
djúpt vatn er á milli íbúðar-
hússins og útihúsa, sem standa
á sitt hvorri
hæðinni. Sagði
frúin að þetta væri mjög áþekkt
flóðunum í fyrra, sem voru ó-
venjumikil.
Skemmdir hafa orðið á girð-
ingum, en það er nú orðið svo
alvanalegt, saeði Ragnheiður, að
þær sópist í burtu.
Einar Tómasson bóndi henn-
ar sagðist vera að leggja af
stað á kænu með mjólkina upp
að Bjargi, sem er 3já km. leið
og liggur djúpt vatn yfir öllu
því svæði. Gizkaði Eínar á að
yfirborð árinnar væri minnsta
kosti 2—3 metrum hærra en
venjulega.
Sagði Einar að áin breiddi úr
sér þarna yfir mikið svæði ofan
við Iðu, en bar mvndast nokk-
ur þröng við brúna og rennur
hún [ beljandi streng undir
hana.
Þetta er mjög gott lyf, og þó
að það vinni ekki á mörgum
sjúkdómum, þá hugsar maður sig
að minnsta kosti tvisvar um eftir
að hafa tekið þaö inn, áður en
maður verður veikur aftur.
Varð að bera frúna á
bakinu að næsta bæ.
Vísir náði einnig tali af Einari
Hallgrímssyni, Garði f Grafar-
hverfi, Hrunamannahreppi, en
bærinn stendur við Litlu-Laxá.
Sagöi Einar að bærinn væri um-
flotinn og vantaði aðeins fáeinar
tommur til þess að vatnið flyti
inn á stofugólfið. — Hænsná-
kofinn er á floti, sagði Einar og
urðu hænurnar að bjarga sér
upp á prikin. Ég er hér með
gróðurhús og vatnið flóði einnig
inn í það. en ég var ekki búinn
að setja neitt niður þar seip
betur fór. — Ég hef orðið að
taka konuna á bakið og bera
hana hérna á næsta bæ. —
Vatnið er að vísu ekki mjög
djúpt hérna, en maður veður
það ekki nema f klofstígvélum.
Kve.ifélag Hallgrímskirkju
heldur fyrsta fund sinn f hinu
nýja félagsheimili í norður-
álmu kirkjunnar fimmtudaginn
29. febrúar kl. 8.30 e.h. Öldruðu
fólki f söfnuðinum sérstaklega
boðið Strengjasveit úr Tónlist-
leikur. Svava
arskólanum
.TakobsdóltiV rifhöfundiir flytur
frásöguþátt.. Báðir sóknarprest-
arnir flytia ávarp. Kaffi CGeng-
ið um norðnrdvr) Stjórnin.
Samkvæmt upplýsingum
bændanna virðist Hvítá ennþá
vera að vaxa og engin von til
þess að vegurinn að bæjunum,
sem þarna eru umflotnir komi
upp úr næstu dagana. Bærinn
Reykjanes í‘ Grímsnesi sem
Húsnæöi. — Herbergi með rúm
um og næturgisting fæst á Lauga
vegi 51.
Vísir 28. febrúar 1918.
stendur vestanvert við Brúará
er einnig umflotinn vatni og
fiæðir Brúará bar vfir stórt
landsvæði. — Víðar flæða ár um
hlaðvarpa bæjanna á þessum
slóðum.
Gífurleg úrkomo
fyrir austan fjall
í nótt
Vatnsflaumur —
3—> 2. sfðu.
sagði: Við geymdum hérna
bókasafn heimilisins, allt á
gólfinu, en við höfum ekki enn-
þá komið því fyrir á sínum fyr-
irhugaða stað. Margar bókanna
skemmdust og meðal þeirra al-
fræðisafnið Britannica sem er
mjög verðmætt. Margt fleyra
mætti upp telja, en þetta verður
láfið nægja. Frúin kvaðst vilja
taka það fram að lokum, að
þau hjónin hefðu ekki haft inn-
búið vátryggt, og vildi hún mega
óska þess að aðrir létu sér það
að kenningu verða, því ..engínn
veit á hverju hann á von“.
Þegar við gengum út um kiall-
aradyrnar blasti við okkur ófög-
ur sión. Þar hafði verið snotur
grasblettur en nú var hann
aö mestu hulinn grjóti með
moldarleðju og um leið og við
tökum mynd af þessari ófögru
sjón verður okkur hugsað- til
orða frúarinnar: ,,Ætli maður
láti ekki kartöflur niður í lóðina
í vor“. '... .. .
« Ekki er að vænta að vatnsagi-
• minnki í ám fyrir austan Hellis-
• heiði í dag, bgr sem gífurleg rign-
J ing var þar í nótt. Mest var á
• Hveravöllum, 80 mm frá bví kl. 17
J í gær til morguns, sem er með því
• allra mesta sem mælzt hefur þar
2 um Iangan tíma. Hvöss sunnanátt
2 og rlgi.'ng víðast hvar á landinu
• í nótt en hafði snúizt í vestlæga
2 átt í morgun hér í nágrenni Reykja
• vík og farið heldur kólnandi.
• Á Vestfjörðum var komin snjó-
2 koma og lítilsháttar frost. *
• Samkvæmt upplýsingum sem
■ blaðið fékk hjá Jónasi Jakobssyni
2 á Veðurstofunni í morgun var niti
• víða 7—10 stig á Norður og Aust-
2 urlandi í nótt og allhvasst víða um
2 land, mest 10 vindstig í Vestmanna
• eyjum. Mikil rigning var fyrir aust
2 an i morgun og hafði úrkoman
• mælzt 68 mm í Rornafirði í nótt 41
• mm í Hrennum, en hér í Revkin-
2 vík mældist úrkoman 12 mm. —
• Sagðj Jónas að líklega mvndi ekki
2 siatna \ ám fyrir austan fjall í dao
2 eftir bessa miklu rigningu. en cnnð
• er skúrum oh kólnandi veðri hér
2 við Faxaflóann með kvöldinu.