Vísir - 29.03.1968, Qupperneq 7
7
■SRigHg
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
iii
□ Saksóknari í málinu gegn þeim,
sem ákærðir eru fyrir samsæri
gegn Nasser forseta Egyptalands
hefur sakað Badran fyrrverandi
hermálaráðherra um að bera á-
byrgð á ósigri Egypta í júnístyrj-
öldinni í fyrra. Badran er 54 ára.
Hann er og sakaöur um að hafa
tekið þátt í samsæri til að
steypa Nasser og stjóminni og
fjndr að reyna aö setja Abdel
Hakim Amer aftur í embætti
sem aðstoðaryfirmann alls her-
afla Egyptalands (Amer framdi
sjálfsmorð I september, en ýms-
ar grunsemdir hafa komið fram
um, aö honum hefði verið ráð-
inn bani).
□ Hjálparskip úr brezka flotanum,
tankskip, svipast nú eftir
snekkju Alecs Rose, „Lively
Lady“, en frá henni hafa heyrzt
mjög veik táknmerki. Nokkru
áður bárust fréttir frá henni og
sagði Rose þá, að alit væri í
lagi og náigaðist hann siglinga-
leiöir sunnan Cape Hom.
□ 13M 30.000 fleiri ferðamenn
komu tál Englands í janúar í
ár en í janúar í fyrra, eða sam-
tafe .104000. Gengisfellingin er
taBn hafa haft mikil áhrif á
ankningu straumsins. — 1967
komn 3 og hálf miiljón ferða-
manna til Bretlands og er áætl-
aður hagnaður af þeim fjölda
350 miiljónir.
□ Suharto hershöföingi, forseti
Indónesíu, fer í næsta mánuði
til Japans og ræðir aukið fram-
lag Japana til efnhagsviðreisnar
í Indónesíu. Forsetatímabil Su-
hartos hefur verið framlengt til
5 ára, en hann hefur ekki sama
vald og nú nema næstu 2 ár.
Almennum þingkosningum hef-
ur verið frestað til 1971.
□ í New York hafa 5 menn verið
dæmdir til langrar fangelsisvist-
ar fyrir samsæri til að smygla
miklu magni af eiturlyfinu hero-
in inn í landið. Tveir em Ástr-
alíumenn og fengu, annar 25
ára, hinn 12 ára fangelsi, og 3
Bandaríkjamenn fengu 10 ára
fangelsi hver um sig.
armanna í fjórum aukakos
Ihaldsflokkurinn sigraði glæsilega i öllum með allt að 2!°jo
fylgisaukningu sem tekin var eing'óngu frá kr'ótum
í gær fóru fram aukakosningar
í fjórum kjördæmum á Bretlandi
og fóm leikar svo, aö Verkamanna-
flokkurinn fór hinar herfilegustu
hrakfarir fyrir íhaldsflokknum, sem
sigraði í öllum kjördæmunum, hélt
ylsrael fær ekki
Mirage-þoturnar
Franska stjómin hefur tilkynnt
ísraelsstjóm, að ísrael fái ekki 15
Mirage-herþotur, sem samið var
um fyrir tveimur 'ámm.
Talið er, aö de Gaulle forseti
hafi sjálfur tekið ákvörðun um
þetta.
Tilkynningin vekur mikil von-
brigði í ísrael. Mirage-þotum-
ar reyndust afburða vel í júní-styrj-
öldinni og vilja rpargar þjóðir eign-
ast þær fremur en bandarfskar og
samið um kaup á þeim, Suður-Am-
eríkuþjóðir t. d., en írak og fleiri
hafa beðið um þær.
einu með mjög auknum meirihluta
og vann hin af Verkamannaflokkn-
um og var fylgisaukningin mest
21 af hundraði, öll tekin af Verka-
mannaflokknum, en að meðaltali
var hún 18 af hundraði. Frjálslyndi
flokkurinn fékk ekkert af því fylgi,
sem Verkamannaflokkurinn tapaði.
Þetta mikla fylgistap Verka-
mannaflokksins er næstum algert
einsdæmi og er stórkostlegt áfall
fyrir flokkinn, og er það viöurkennt
af leiðtogum hans, en talsmaður
flokksins sagöi I gær, að von flokks
ins væri, að þetta breyttist, er ár-
angurinn af ejriahagsráðstöfunum
stjórnarinnar færi að koma f ljós.
Talsmaöur íhaldsflokksins var sem
að líkum lætur sigurreifur og krafð-
ist nýrra almennra þingkosninga,
þar sem sýnt væri að stjórnin heföi
glataö þjóðartrausti.
Þetta voru fyrstu aukakosning-
arnar, sem fram hafa farið síðan
fjárlagafrumvarpið var lagt fram,
en áöur hafði Verkamannaflokkur-
inn glatað 6 þingsætum í auka-
kosningum, og eru þau nú oröin 9,
sem hann hefur misst frá því að al-
mennu þingkosningamar fóru fram.
og er nú meirihluti f neðri mái
stofunni yfir stjórnarandstööuflokk
ana 74.
F-111 HERÞOTA
SKOTIN NIÐUR YFIR
NORÐUR-VIETNAM
Tllkynnt var í gærkvöldi, að
saknað væri orrustu-sprengjuflug-
vélar af \ gerðinni F-lll, sem er
fullkomnasta hemaðarþota Banda-
ríkjanna og nýjasta, en þær eru
með hreyfanlegum vængjum.
Flugvélin var í leiðangri frá
bækistöð í Suðaustur-Asíu og var
ekki nánara frá þessu sagt í til-
kynningunni, en Washington-
fréttaritari brezka útvarpsins seg-
ir, að talið sé aö hún hafi farizt
eða verið skotin niður í sprengju-
árás á Norður-Vietnam. Kunnugt
aö 6 herþotur af þessari gerð komu
nýlega til flugvallar í Thailandi.
Fyrir nokkru var dregiö úr
framleiðslu á þessari flugvélar-
tegund af sparnaðarástæðum og
sagt er, aö þær hafi reynzt of
þungar og erfiðar í meðförum til
þess að þær geti haft bækistöðvar
á flugvélaskipum.
Framleiðslukostnaður flugvélar
af þessari gerð er 5 milljónir doll-
ara.
Hafnað tillögum Ihaldsflokksins um að reyna enn samkomulagsumleitanir
Það var komizt svo að orði í
fréttum frá London um umræð-
una í neðri málstofu þingsins
um Rhodesíu, að það hafi vakið
mesta athygli, er Sir Alec Doglas
Home fyrrverandi forsætisráð-
herra sagði, að hann og Ian
Smith hefðu „fundið formúlu,
sem myndi hafa dugað til að
koma á samkomulagi".
Og Sir Alec bætti þvf við, að
um það væri hann sannfærður, að
samkomulag hefði náðst í ferð
hans, ef brezkur ráöherra hefði
verið með honum. Hann bauö enn
stjórninni alla aðstoö sína til aö
leysa, máliö.
En því boöi hafnaði Thompson
samveldismálaráöherra á þeim
grundvelli, að „það mundi tæta
sundur samveldið“, ef farið væri aö
semja nú, en áður hafði Wilson
sagt, að það væri ekki hægt að
treysta Ian Smith og þvf yrði ekki
frekara viö hann talað. Og Wilson
lýsti yfir , að brezka stjórnin myndi
fallast á algert viðskiptabann Sam-
einuðu þjóðanna á Rhodesíu, en
hann kvaðst ekki fallast á vald-
beitingu, eöa neitt sem leitt gæti
til beins áreksturs við Suöur-
Afrfku.
Maudling, talsmaður Ihaldsflokks
ins um efnahagsmál, kvað Bretland
þegar hafa tapað viðskiptum svo
Stúdentar í Róm í kröfugöngu með 30 m langan rauöan fána.
næmi 200 milljónum punda, vegna
takmarkaðs viðskiptabanns á
Rhodesfu, en ekki hefði það náö
tilgangi sínum, og tjónið myndi
verða miklu, miklu meira, vegna
hins nýja víðtæka viðskiptabanns,
sem um væri rætt, en þaö mundi
ekki heldur ná tilgangi sínum.
Breytingartillaga íhaldsflokksins
um samkomulagsumleitanir var
felld, en Edward Heath talaði fyrst-
ur manna fyrir henni, og svo var
tillaga Wilsons samþykkt með 98
atkvæöa mun.
Thompson samveldismálaráð-
■herra lýsti yfir, að Caradon lávarð-
ur, aðalsamningamaður Breta hjá
Sameinuðu þjóðunum, ætti nú viö-
ræöur um málið við fulltrúa ým-
issa Afríku- og Asíuþjóða milli
funda í Öryggisráði. Rætt er um
sameiginlega ályktun og geta um-
ræður staðið nokkra daga enn
En það er þegar búiö að skrafa
allmikið á fundum Öryggisráðs að
undanfömu um þetta mál — og
milli funda, en það var þ. 12. þ.
m., sem 36 Afrfkulönd fóru fram
á, að Öryggisráðiö yröi kvatt til
funda um Rhodesíu, því að mikið
lægi við, og var sérstaklega tekið
fram í fundarbeiðninni: .......til
þess að ræða valdbeitingu, ef hún
þætti nauðsynlfeg, gegn Rhodesíu“.
En nú hefir Wilson sem sé enn
tekiö af skariö, að brezka stjómin
ætlar ekki að beita hervaldi. Ous-
mane Soce Diop, Senegal, er nú
forseti ráðsins, og í fundarbeiðn-
inni sem var stíluð til hans, var
sagt, aö horfurnar í Rhodesfu væru
slíkar, að þær „ógnuðu alþjóöafriði
:6%yöryggi“. Skírskotað var til 17.
greinar sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, sem heimilar efnahagslegar
Ian Smith.
refsiaðgeröir til þess aö binda endi
á rof á friði eða ógnum um rof á
friði, en þar er ennfremur tekið
fram, að ef Öryggisráðiö telji slíkar
ráðstafanir ekki nægjanlegar, megi'-
þaö grípa til aðgerða f lofti, á
landi og á sjó til þess að varðveita
alþjóöafrið eöa koma honum á á
ný hafi hann veríð rofinn“.
I Zambíu hefir gagnrýnin á stjórn
Wilsons verið hörðust og þar hafa
ráðherrar gengið fram fyrir skjöldu
Hafa þeir farið háðulegum orðum
um hana og brígzlað henni um
heigulsskap, en Wilson og félagar
hafa ekki látið haggast vegna
brigzlanna.