Vísir - 29.03.1968, Side 12
72
V1 SIR . Föstudagur 29. marz 1968.
Hún hló kaldranalega. „Þú slærö
mér gullhamra", sagði hún. „En
þú verður aö taka þaö meö í reikn-
inginn, aö liösforinginn hefur séö
mig naktari en ég er nú.“
Það var eins og hún hefði rekið
Corey löðrung. Hann leit undan og
tautaði lágt: „Að sjálfsögðu ... það
athugaði ég ekki.“
Hún brá sér aftur á bak viö hlíf-
ina. Þegar hún kom fram aftur, var
hún komin í legghá leðurstígvél
og blússu, sem féll þétt aö brjóst-
um hennar. Hún settist við drag-
kistuna og tók aö þurrka málning-
una af andlitinu.
„Hvert ertu eiginlega aö búa
þig?“ spurði hann.
„Ég kem með þér.“
„Ertu gengin af göflunum. Ég á
ekkert annað erindi við þig, en að
fá hjó þér þessar upplýsingar."
Hún yppti bogadregnum auga-
Fyrir aðeins kr. 68.500.oo getið þér fengið staðlaða
eldhúsinnréttingu I 2—4 herbergja ibúðir, meö öllu tll-
heyrandi — passa I flestar blokkarfbúðir,
Innifalið i verðinu er:
$ eldhúsimirétting, klædd vðnduöu plasti, efri
og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
isskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstað.
0uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og að auki má nota
hana til mlnniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
^ eldarvéSasamstæða með 3 heiium, tveim
ofnum, grillofni og steikar* og bökunarofni. Timer og önnur
nýtizkú hjáipartæki.
iofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu viö reyk og lykt. Enginn kanall - Vlnnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söiuskattur
innifalinn) Éf stöðluð innrétting hentar yður ékki gemrn við
yður fast verðtilboð á hlutfallslegu verði. Gerum ókeypis
verötilbóð I éldhúsinnréttingar í ný og gömul hús.
Höfum uinnlg fafaskápa. sfaðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR -
K I RKJUHVOLI
REYKJAVfK
SlMI 2 17 16
brúnunum. „Ertu leikinn landa-
bréfateiknari?" spuröi hún.
„Nei, en ég ætti aö geta rissað
eitthvað upp, þannig aö þeir yrðu
þess vísari, sem þeir þurfa að
vita.“
Hún kveikti sér í sígarettu og
saug aö sér reykinn. „Það tæki of
langan tíma“, sagöi hún, „og dvöl
þín hérna verður hættulegri meö
hverri mmútu, sem líður. Það er
okkur því báöum bezt að hverfa á
brott meðan gleðin stendur sem
hæst þarna inni.“
Eitt olli Corey þegar þungum á-
hyggjum í því sambandi. „Hvað
verður, þegar þeir komast að raun
um að þú ert strökin?"
Hún vppti öxlum. „Þeir verða
varla lengi aö nasa það uppi hver
ég er og hvað ég er.“
„Auðvitað. Og það þýðir aö dag-
ar þínir séu taldir, ef þú heldur þig
héma f eyjunni?"
„Ég gæti leynzt með innfæddu
skæruliðasveitunum hér f fjöllun-
um“ sagði hún.
„Nei, fjandinn hafi það“ hreytti
Corey út úr sér. „Þeir mundu
myröa þig óðara, ekki sfður en þeir
japönsku. Sérhver skæruliði hér f
eynni hlýtur að vita að þú ert jap-
önsk geisha. Enginn mundi leggja
trúnaö á þá sögu þína að þú værir
bandarískur njósnari.“
Hún hló við og virtist áhyggju-
laus þess vegna. „Þá verðurðu að
taka mig heim með þér, Steve",
sagði hún.
„Hvert heirn?"
„Á Langasand í Kaliforníu."
Corey hristi höfuðið. „Þú ert
gamansöm, Miya“, sagöi hann.
,,Við skulum koma héðan.“
Miya ýtti veggrammanum eilítið
til hliðar og gægðist fram, ræddi
lágt við Midori í gegnum smug-
una og gaf svo Corey merki;
„Allt f lagi... fljótur", hvíslaöi
hún.
Þegar þau komu fram á gang-
inn, ýtti hún veggramma sem
skjótast t(l hliðar, og nú kopiu.þaU
út'í garðihn, þár sém' kjarriö^var
þéttast. Hún hélt föstu taki í hönd
honum og leiddi hann um króka-
stígu milli trjáa og runna. Nætur-
loftið var þrungið sterkri angan
framandlegra blóma, en engú að
síður var sem Corey fyndi ekki
neinn ilm annan en af lfkama
Miya. Ómurinn af hlátrunum og
hljómlistinni deyfðist að sama
skapi og þau fjariægðust skála-
hverfið, þar sem dauði vörðurinn
stóð enn upp við hliðstaurinn.
„Hvernig komstu fram hjá hon-
um?“ hafði Miya spurt, þegar þau
hvíldu sig andartak undir viðar-
hiaða, fyrir lokasprettinn að hlið-
inu. „Gaztu mútað honum?“
Corey hló lágt og strauk skepti
sveðjunnar. „Já, með þessari",
svaraði hann.
Hún starði á hann stórum aug-
um. „Er hann dauöur?'1
„Steindauður. Ég batt hann við
staurinn einungis til þess að minna
bæri á því. Nú skulum við halda
áfram.“ I
Þau hlupu sem hraðast þau
máttu út um hliðið og inn í frum-
skóginn. Þar námu þau ekki staðar
fyrr en þétt kjarr skýldi þeim. '
„Ég bjóst við að fá kúlu f bakiö ^
þá og þegar", hvíslaði Corey.
Miyu varö litið til japönsku búð-
anna. „Það er ekki nein hætta á
slíku strax", sagði hún. „Nú skul-
um við halda áfram til mots við
menn þína og koma orðsending-
unni áleiðis eins fljótt og unnt reyn
ist.“
Leiðangursmennimir uppi í ásn-
um sáu til ferða Coreys, þegar
hann kom út úr hliðinu, sér til
mikils fagnaðar.
„Það lftur út fyrir að náunginn
þama, þessi Miyazaki, hafi sleg-
izt í för með honum,“ sagði Ross
og klappaði rifflinum. „Það eru
víst litlar líkur á þvf, að maður fái
tækifæri til að sýna snilli sína f
þetta skiptið, karl minn“.
„Vertu ekki of viss um þaö“,
heyrðist sagt úti í myrkrinu, bak
við þá. Maccone, sem farið hafði í
könnunarferð meðfram götuslóðan
um fyrir neðan ásinn, birtist allt
í einu og kom varla upp orði fyrir
mæði. „Það er japönsk njósnasveit
á ferð hérna niðri í ásnum, á leið
inn í þorpið", sagöi hann. „Senni-
lega fimmtán saman ...“
Wartell brá ekki ró sinni. Við
eigum ekkert á hættu ef við sitj-
um grafkyrrir og þegjum“, sagði
hann. „Nema að svo illa takist til..
Hann iauk ekki setningunni.
„Nema Corey hlaupi beint f flas
ið á þeim“, botnaði'Maccone setn
inguna.
Wartell^ reis á fætur og skotbjó
hríðskotariffil sinn. „Maccone og
Ross, þið komið meö mér“, sagði
hann. „Við förum niður ásinn og
verjum slóöina, ef með þarf. Greni
er... þú verður hér kyrr og bíður
eftir Corey. Víkur ekki héðan, hvað
sem á gengur ... skilurðuu þaö?“
„Hvers vegna fer ég ekki til
móts við Corey og vara hann við?“
spurði Grenier.
Wartell benti honum niður í skóg
arkjarrið í ásnum. „Þú mundir ekki
finna hann fremur en saumnál f
hevstakki, og þú gætir ekki gefið
honum neins konar viðvörunar-
merki, án þess að þeir japönsku
tækju lfka eftir því. Nei, þú verö
ur kyrr ....“
„En ...” maldaði Grenier í mó-
inn.
„Ekkert en, herra minn. Þetta |
er skipun. Þú liggur hér kyrr og
gælir við senditækið ...“
Grenier horfði á eftir þeim þrem,
er þeir hurfu í nætursortann.
Wartell staðnæmdist þar, sem
beygja kom á götúslóðann. „Viö
skjótum ekki nema ýtrustu nauð
syn beri ti'l“, sagði hann. „Hafi
Corey heppnina með sér, er alls
ekki víst að hann rekist á þá
japönsku“.
Hratt fótatak nálgaðist. Wartell
hélt hríðskotarifflinum lágt í miði.
Ross spýtti á frammiðið á riffli
sínum. Maccone hélt rifflinum i
annarri hendi, en hinni um hand-
fangið á vfrnum, sem hékk við
belti hans. Hann hafði jafnvel meiri
TÉKUR alls konar klæðningar
FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA
. ÚRVAt AF ÁKLÆÐ'JM
LAUGAVEG 62 - SlMI 10825 HEIMASlMI 83634
SW
n BOLSTRUN
RAUOARARSTlG 31 SfMI 0303>Q
iiiiiiiíiiiiiii^ii nj m. iiaarrM.Mjiœiii
^Qallett
LEIKFIMI
JAZZ-BALLETT
Frá DANSKIN
Búningar
Sokkabuxur
Netbuxur
Dansbeltí
Margir IHlr
■^- Allar stærðir
Frá GAMBA
Æfingaskór
Svartir, bleikir, hvitir
Táskór
Ballet-töskor
^2*allettbúðin
,UERZLUHIH
SÍMI 1-30-76
iMiMiiin 11111111111111111 m 11
ÚHEF
I I i ÓÉf
€HEF
' Burrouchs
TH£ Af’E-MAV B-ANP TH£ -
0ATTL£S TO P£OT£CT ■ J(JN(5L£ /£
MS 0£LOVE£ W/££... ■ £JP££P ANP
,-er —a i ■ SHPEPPED BY
l "* ■ THE AWESOME
l STEUúGLE!
EAGE TURNS TNE
SAEATAPE/NTO AN
/NSANE. MURPEKOUS
mUTE- w
TARMANGAN/ MU
TERáASH/BUNPOLO
TAJZZAN! TERGASH
WIU. KIU.TAKZAN FOK
THE GOLPEN HAIK SHE!
„Tergash drepur Tarzan fyrir gullin-
hærðu konuna.“- „Tergash skal deyja.“
Æfur af reiði ræðst hinn voldugi api
að Tarzan... en apamaðurinn berst af
öllum mætti til að verja eiginkonu sína.
Það brestur og brakar í greinunum
bardaginn er háður.
I