Vísir - 31.07.1968, Síða 7
VÍSIR . Miðvikudagur 31. júlí 1968,
7
morgun
. ' ... . ■*, .V'
aitlönd í mörgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
LOKAFUNDUR TÉKKNESKRA OG
SOVÉZKRA LEIÐTOGA í DAG
— í Moskvu eru menn viðbúnir hverju sem fyrir kunn
uð komu — einnig hernuðurlegum ufskipfum
Leiðtogar Sovétríkjanna
og Tékkóslóvakíu halda
viðræðum sínum í
Myndin er af Dubcek, tékkneskí. kommúnistaleiðtoganura, er
hann flutti sjónvarpsræðu sína á dögunum og lýsti yfir, að ekki
yrði hvikað frá frjálsræðisstefnunni.
I gær stóðu þær fram eftir
kvöldi. Áframhald er á heræfing-
um Sovétríkjanna í grennd við
landamæri Slóvakíu, þar sem við-
ræðurnar fara fram, og taka pólskar
og austur-þýzkar hersveitir þátt í
þeim. I Prag og um alla Tékkó-
slóvakíu halda menn áfram að
votta Dubcek og stjórn landsins
samúð og hollustu, bæði með und-
irskriftum og fundahöldum, og í
útvarpsþáttum. Prag-fréttaritari
brezka útvarpsins segir, að þar séu
menn rólegir, en Moskvu-fréttarit-
ari þess segir, að hinn almenni
biaðaiesandi í Moskvu sé viöbúinn
Umsóknir nm
aðildir að EBE
Utanríkisráðherrar EBE landana
komu saman á fund í gær og
ræddu umsókn um aðild Breta að
bandalaginu.
Ákveðið var að fresta málinu. Þá
vjrða einnig — að öllum líkindum
— teknar á dagskrá umsóknir
Noregs, Danmerkur og írlands.
hverju, sem gcrast kann, einnig að
til hernaðarlegra afskipta komi.
I Washington sagöi Dean Rusk
utanríkisráðherra á fundi með
fréttamönnum, er hann var spurð-
ur um afstöðu Bandaríkjanna, að
ekki væri hyggilegt að lýsa neinu
yfir á þessu stigi, og í London
endurtók Stewart utanríkisráðherra
þá skoöun, að hvorki Bretar eða
aðrir ættu að skipta sér af innan-
ríkismálum Tékkósióvakíu.
Loftvarnaæfingum lokið.
Hernaðarmálgagniö Rauða stjarn
an í Moskvu segir í morgun, að
hinum vfðtæku loftvarnaæfingum,
sem nefndar voru „Himinskjöldur-
inn“, og áttu sér stað á víðáttu-
miklu svæði í Sovétríkjunum, sé
lokið. Blaðið birtir um þetta frétt
frá Tass-fréttastofunni, en þar seg-
ir og, aö æfingum í birgðaflutning-
um verði haldiö áfram, en þær fara
fram í héruðunum næst Tékkóslóv-
akíu. Um loftvarnaæfingarnar var
fyrst birt tilkynning 25. júlí.
■ Sjö manns, 4 konur og 3 böru,
komu til Sviss í fyrradag, frá Al-
sír, en fólk þetta var meðal far-
þega í ísraelsku flugvélinni, sem
rænt var. Einnig þrjár flugþernur
Fólk þetta segist hafa sætt góðri
meðferð, og eftir einni flugfreyj-
unni er haft, að flugmönnunum og
öðrum farþegum, sem enn eru í Al-
sír, verði skilað í þessari viku.
Átta biðu bana í gær en
yfh 40 særðust af völdum
hryðjuverks Vietcongliða
Viku sfúdeufa-
óeirð í Mexíkó
Mexíkó-borg: í gær kom til alvar
legra stúdentaóeirða sjötta daginn
í röð.
Um 4000 stúdentar hlóðu sér
götuvirki og vörpuðu flöskum
fullum í bensíni á lögregluflokka.
Lögreglan sló hring um forsetahöll
ina, en hörð átök voru í aðeins
hálfs kílómeters fjarlægö frá henni.
Borgarstjörinn Corona Delcosco
kvað allmarga stúdenta hafa
meiðzt,
Saigon: Átta menn biðu bana en
yfir 40 særöust, þegar Vietcong
hryðjuverkamenn vörpuðu þremur
handsprengjum að hópi fólks í
þorpi um 20 km frá Saigon.
Nítjá'n Bandaríkjamenn féllu og
30 særðust í hörðum bardaga, er
bandarískur herflokkur rakst ó-
vænt á stærri herflokk frá Norður
Víetnam um 10 km frá Hué.
Bandarískir hernaðarsérfræðing-
ar eru nú komnir á þá skoöun að
ekki verði af stórsókn kommúnista
fy.r en í ágústlok eða september,
en lengi vel var búizt við henni í
júlí eöa ágúst. Telja sérfræðingarn
ir, að orsökin sé, að mjög hafi verið
þjarmað að komúnistum í seinni
tíð.
Hin fræga London Bridge yfir Thames, var sem
er verið að reisa nýja brú í London
var þessi mynd tekin, er byrjað var
Tító forseti frestaði heimsókn
sinni til Prag í gærkvöldi, að
því er fréttir hermdu í gær-
kvöldi, vegna þess hve leiðtoga-
fundurinn i Slóvakíu hefir dreg-
kunnugt er rifin og seld til Bandaríkjanna og izt á langinn: Fyrri fregnir, frá
í hennar stað. Nú er gamla brúin komin vestur um haf og því árdegis í gær, voru:
áð setja hana saman I Lake Havasu City, Arizona. j Prag: Haft er eftir áreiðanlegum
London Bridge endurreist — / Arizona
heimildum aö Tító forseti Júgóslav
íu sé væntanlegur í dag til Prag,
Hann verður að líkindum í Prag
þar til á föstudag.
Stuttu áður en Titó heldur heim
leiðis aftur kemur Nicolas Ceausc-
e j forsætisráöherra Rúmenfu og
flokksleiðtogi til Varsjár.