Vísir - 21.12.1968, Page 1
58. árg. - Laugardagur 21. desember 1968.
Jólagjafahamlbók Visis
Síðara blao
Jólagjafir handa henni bls. 3 — Jólagjafir handa honum bls. 7
Jólagjafir, sem kosta 100 krónur og minna bls. 11
„Allir fá þá eitthvað fallegt...
fyrra blaði okkar af Jólagjafa-
handbók sýndum við ykkur ýms-
ar gjafir handa bömum og ungl-
ingum, en í dag fjöllum við um
gjafir handa konum og karlmönn
um á öllum aldri, og einnig
helgum við ódýrum jólagjöfum
sérstakt rými.
Það hefur orðið mörgum eig-
inmanninum erfiöur höfuðverk-
ur að velja jólagjöf handa eig-
inkonunni, og endirinn oft orð-
ið sá, að konunni eru fengnir
peningar og henni sagt að kaupa
sér eitthvaö fyrir þá. Óneitan-
lega er nú samt skemmtilegra,
ef eiginmanninum tekst sjálfum
að velja gjöf handa konunni
sinni, og ætlum við að gefa
nokkur ráð í því sambandi.
Að vísu er allstór hópur karl-
manna svo lánsamur, að geta
áreynslulaust valið gjöf handa
hvaða konu sem er og verið
viss um að gjöfin henti vel, en
því miður eru þessir smekklegu
karlmenn samt í minni hluta.
Hinir eru miklu fleiri, sem verða
gjörsamlega ósjálfbjarga, þegar
þeir eiga að kaupa gjöf handa
kvenmanni, hvort heldur það er
systir, eiginkona, móðir eða unn-
usta.
Eiginmenn geta að vísu í flest-
um tilfellum komizt fyrir um
það með lagni, hvað eiginkon-
una vantar helzt, og fengið ein-
hverja vinkonu hennar til hjálp-
ar við valið. En þaö getur líka
verið gaman að gefa eiginkon-
unni eitthvað, sem hún hefur
ekki hugmynd um, og þá eitt-
hvað, sem hún myndi sjálf tæp-
lega kaupa sér. Þannig gjafir
hafa konur alltaf mjög gaman
af að fá en til þeirra heyra
t. d. ilmvötn. fallegir gjafakass-
ar með baðsalti, baðpúðri hand-
áburði o. fl. Fallegir skartgrip-
ir, t. d. hringir, hálsmen eða
eyrnalckkar, eru líka tilvaldir
til að gefa eiginkonunum eða
unnustunum, að ógleymdum
fallegum undirfötum og nátt-
kjólum.
Sumir eiginmenn hafa það
fyrir sið að gefa konum sínum
búsáhöld í jólagjöf, svo sem
glasasamstæður, hrærivél, hnífa-
pör, ryksugu og því um líkt, og
það er auðvitað ekkert nema
gott um það að segja. En við
getum ekki stillt okkur um að
Litið i verzlanir í borginni og skoðaðar
jólagjafir tyrir karla og konur og gjafir,
sem kosta 100 krónur og minna
minna eiginmennina á það, að
þessar vörur tilheyra heimilinu,
en ekki eiginkonunni sérstak-
lega, og örlítil persónuleg gjöf
handa eiginkonunni mætti
gjarna fylgja þessum „heimilis-
gjöfum“.
En hvernig gengur eiginkon-
unum svo að velja gjafir handa
eiginmönnunum? Jú, þeim geng-
ur oftast mun betur en
eiginmönnunum, bækur skipa
þar oftast heiðurssessinn, enda
þótt konurnar njóti oftast góðs
af þeim, á sama hátt og eigin-
mennirnir, af „heimilisgjöfun-
um“. Inniskór, pípa, trefill,
sloppur eða peysa er líklega
hvað algengast í jólabögglum til
eiginmannanna, en þeir, sem
hafa „hobbí“ fá gjarna gjafir til-
heyrandi því.
Það er ekki óalgengt, að hjón,
sem vanhagar um einhvem á-
kveöinn hlut í heimilið, t. d. hús-
gagn eða heimilistæki, „gefi“
hvoru öðru slíkt í jólagjöf, og
eru víst ófá hjón, sem hafa tek-
ið þaö ráð nú á þessum síðustu
og verstu tímum, ekki sizt ung
hjón.
Við látum þetta nægja um gjaf
ir handa henni og honum, en
ætlum nú að spjalla dálítið um
gjafir, sem kosta innan við 100
krónur. Margir gefa fjöildamarg-
ar slíkar gjafir fjarskyldum ætt-
ingjum og kunningjum, ekki sízt
börnum, og oft getur reynzt erf-
itt að finna slíkar ódýrar gjafir,
sem ekki eru ósmekklegar og
lítilf jörlegar.
Ein bezta leiðin til að gefa
fallega, en ódýra gjöf, er að út-
búa sjálfur einhvers konar jóla-
skreytingu, en þær hafa allir
gaman af að fá, ungir og gamlir.
Flestar blómaverzlanir borgar-
innar selja ýmiss konar skraut,
greinar, mosa, kerti og það sem
til þarf í slfkar skreytingar, og
hægt er að útbúa mjög fallega
borðskreytingu með kerti fyrir
50—100 krónur. En allt tekur
þetta sinn tíma, og nú eru víst
flestir tímalitlir þessa síðustu
daga fyrir jól, og vissulega er
minni fyrirhöfn að kaupa lítinn
hlut, svo sem öskubakka, vasa,
kertastjaka eða lítið leikfang, ef
barn á að fá gjöfina.
Það er vissulega hægt aö fá
marga fallega hluti fyrir innan
við eitt hundrað krónur, litlir
erlendir listmunir fást í fjöl-
breyttu úrvali, og við mælum
frekar með slíkum gjöfum en
einhverju fyrirferðarmeiru, sem
oftast er þá óvandaðra. Jóladúk-
ar eða jólamunnþurrkur, kerti,
blóm eða aðrar jólavörur eru
einnig mjög skemmtilegar til
jólagjafa. Við getum ekki stillt
okkur um að minna fólk á, að
það er oft bjarnargreiði að gefa
mjög dýrar og miklrtr jólagjafir,
einkum ef það er eínhver ekki
mjög nákominn, sem gjöfina
fær, því að fólki finnst það þá
stundum vera tilngytt til að gefa
á móti jafnmikla og dýra gjöf,
og þegar til lengdar iætur verður
þetta eins og hvert annað kapp-
hlaup um dýrustu og mestu gjöf-
ina. Slíkt er alltaf mjög hvim-
leitt, og fjarri þeim hlýja hugs-
unarhætti, sem á að vera á bak
við þegar gjafir eru gefnar,
hvort heldur það eru jól eða
ekki.