Vísir - 21.12.1968, Side 7
JÓT ag.t afÁFAMDRÓK VÍSIS
JÓLAGJAFIR HANDA HONUM
Þá eru það jólagjafirnar handa karlmönnunum. Við höfum
reynt að velja ýmsa nytsama hluti, sem við álítum, að hœfi
vel í jólaböggulinn til eiginmannsins, bróðurins, föðurins,
frændans eða vinarins.
Ronson kveikjari er vönduð og góð
'ólagjöf handa eiginmanninum en
’iessi kveikjari kostar 745 krónur
og fæst í Sportvali á Laugavegin-
um.
Hér er góð jóiagjöf handa eigin-
manninum, japönsk flóneisnáttföt,
sem kosta aðeins 267—285 og fást
í stærðunum 4-16 og litirnir eru blá
og rauð-röndótt, en það er Ó.L. á
Laugaveginum sem selur þessi nátt-
föt.
Hér er gjöf, sem áreiðanlega verð-
ur vel þegin hjá mörgun eiginmann
inum, en það er „sjússamælir“ frá
Japan úr stáli. Verðið er 149 krón-
ur en hann fæst í K. Einarsson og
Bjömsson á Laugaveginum, og fá
um við ekkj betur séð en hann
mæli bæði „míní“ og „maxí“
sjússa.
Tónlistarunnendur hafa án efa gam-
an af að fá þessa vönduðu íslenzku
hljómplötu í jólagjöf, en þetta er
hin nýúkomna plata. „Sagan af
dátanum“, sem Fálkinn gaf út ný-
lega, en hún fæst þar í hljómplötu
deildinn; og kostar 450 krónur.
Sloppar eru mjög skemmtileg jóla
gjöf handa eiginmönnum, en þessir
fallegu morgunsloppar eru enskir
og fást í þremur litum í Herra-
deildinni í Kjörgarði. Efnið er silki
blanda, en verðið er kr. 2140. Einn
ig fást þar einfaldir sloppar í fullri
sídd frá 888 kr.
Hlýtt ullarteppi er kærkomin jóla
gjöf handa karlmönnum á öllum
aldri, en þessi teppi eru íslenzk
og fást f Gefjuni-Iðunni og kosta
465 og 565 krónur eftir stærð. Þau
eru til í sauðalitunum og öðrum
Iitum, en efnið er að sjálfsögðu ís-
Ienzk ull.
| Tafl er tómstundaiðja margra karl-
manna, og hér er þýzkt vasatafl
með segli, sem kostar aðeins 315
krónur, en það er Penninn sem
selur þetta tafl.
herra
tízkunnar
í dag
VERKSMIÐJAN FÖT H.F.
..gamsmm
sa