Vísir - 23.12.1968, Page 3

Vísir - 23.12.1968, Page 3
V1SIR . Mánudagur 23. desember 1968. .HRIKALEGT — segir Pétur Guðmundssön, flugvallarstjóri, sem var boðið utan til að horfa á eldflaugarskotið ■ Meðal þúsund heiðurs- gesta í stúkunni við skot- staðinn á Kennedy-höfða á laugardagsmorguninn var Pét ur Guðmundsson, flugvallar- stjóri á Keflavíkurflugvelli. Geimferðastofnun Bandaríkj- anna hafð' boðið honum að vera viðstöddum. „Þetta var alveg stórkostlegt, — hrika- legt,“ sagði Pétur í símann á laugardaginn, þegar við náð- um í hann á hóteli hans á Cocoa-strönd f Flórida. Pétur kvaöst hafa séð marga mektarmenn í hópi áhorfenda, m. a. þá Ted Kennedy og flug- kappann Charles Lindberg, fjöl marga þingmenn, og íslenzka sendiherrann og nafna sinn Pét- ur Thorsteinsson hitti Pétur í stúku þessari. Humphrey ætlaði að mæta og horfa á en varð að hætta viö. „Hann hafði feng ið Asíuinflúensu eins og fleiri“ og sendi son sinn í staðinn. Stúkan, sem boðsgestir fengu til afnota kvað Pétur vera í 3 kílómetra fjarlægð frá skotpall inum, en menn fylgjast með í sjónaukum. Við hliðina á stúk- unni er stjórnhúsið. Rúmast þarna um þúsund manns og var stemningin spennu blandin, þeg ar skotið fór fram, andrúms- loftið var rafmagnaö", sagöi Pét ur. Skotiö var kl. 7.51 og var orðið bjart. Geimfarana sá ég því miöur aldrei, sagöi Pétur, þeim var haldið burtu frá fólki vegna hættu á smitun af Asíu- inflúensunni. Skotið sjálft tókst mjög vel, og kvaðst Pétur hafa heyrt verkfræðing frá Boeing- verksmiöjunum segja frá kraft- inum í fyrsta þrepi eldflaugar- innar, sem þeir smíða. Væri afl iö eitthvaö svipað því sem bíla- lest milli austur og vesturstrand ar, stuðara í stuöara, mundi framleiða. Pétur kvaðst hafa haft náö uga daga á Florida í góðu veðri, þegar blaðamaður Vísis náði sambandi við hann á laugar- dagskvöld var hann einmitt aö koma inn úr dyrunum frá golf- vellinum. Djörfbókum viðkvœmmál■ efni frá Gunnari Dul — Orðstir og auður, fyrsta skáldsaga Gunnars Dal komin út Gunnar Dai, heimspekingur og skáld sendi sína fyrstu skáldsögu á markaðinn fyrir nokkrum dög- um. Bókin heitir Orðstír og auöur og þaö eftirtektarveröasta við bókina er það að Nóbelsskáldið Laxness og Gunnar Dal sækja á sömu miö að nokkru leyti í nýj- ustu bókum sínum, alla leið vestur undir Snæfellsjökul, sem erlendir dulhyggjumenn telja mestu orku- stöð heims. dvalizt á Arnarstapa ellegar á Spáni til að undirbúa þessa frum- raun sína í skáldsagnagerð, en haft er eftir honum sjálfum að hlutverk skáldsögunnar sé aö skilja og skýra manneðlið. Nýstárlegt er við þessa bók að hún er gefin út af nýrri bókaút- gáfu, Skarði á Seltjarnarnesi, en Hafsteinn Guðmundsson (í Hólum) rekur prenthús sitt með nýtízku- legum útbúnaði og er brot óg frá- gangur skáldsögu þessarar með öðrum hætti en hefur tíökazt hér- lendis í bókagerð og eiguleg á að líta fyrir þá sök. Útgefandinn, Hafsteinn Guð- mundsson, fylgir bókinni úr hlaói með því að lýsa því yfir að þetta sé fyrsta skáldsaga í sérstökum bókaflokki, er hann hyggst gefa út næstu 10 árin, sem sagt ein- göngu - íslenzkar skáldsögur. Skáldsaga Gunnars Dal er lík- Iega ein djarfasta bók um við- kvæm efni, sem út hefur komið á undanförnum árum á íslandi. Ætlunin mun vera að þýða bókina á erlendar tungur, m. a. spænsku. Gleðileg jól og farsælf komandi ár bökkum vioskiptin á hinu liðna Austurstræti 17 fSilli & Valdi). 3. hæð Simar 16870 & 24645 Kvöldsími 30587 Stefán J. Richter sölum. Ragnar Tómasson hdl. Svo skol — »-»- 9. síðu. þeim í fjósinu, þegar þessi gáll- inn var á þeim. Selirnir áttu líka sína jóla- gleði. Það er gömul þjóðtrú, að þeir séu fólkið hans Faraós, sem drukknaði f Rauðahafi. — Sagnir herma, að þeir hafi kast- að selshaminum á jólum og dansað i hamraborgum. — Ef haminum var stolið komust þeir ekki aftur til sinna heimkynna í sjónum og urðu að dveljast með mennskum mönnum. — Sagnir eru einnig tii um að sæ- fólkið dansaði f baðstofum manna, líkt og álfar. Tröllin höfðu einnig sína jóla- gleði. Aö minnsta kosti segir f Bárðarsögu Snæfellsáss frá jóla- veizlu, sem Hít tröilkona setti sterka. „Voru þar borð upp tekin og matur á borö bor- inn heldur stórkostlegur. — Drykkia var bar mjög ó- stjómleg, svo að aliir urðu þar ginntir.“ Allt var á ferð og flugi í svartnættinu um jóiin. Þá var framinn margur galdur. — Gaidrahyski beizlaði mennska menn til gandreiðar. Og fjand- inn sjálfur fékk til sín læri- sveina tii þess að kenna þeim galdur og rammt kvað að kynngi og ókennilegum hlutum. Nú er ekk; dansað í kirkjum, né vakað við leiki á jólanött. Ólíkt höfumst við að nú til dags. — Myrkriö grúfir ekki lengur yfir lágum kotum. — Við heyrum ekki kveðið í hól- um og klettum og hittum ekki álfa á krossgötum. — Eitthvaö þykir okkur þó nóg um þann dáradans, sem nú er dansaður um jólin. Að iokum skal hér geta nokkurra rita, sem geyma mik- inn fróöleik um jól, siði og þjóð- trú, og er stuðzt við þær í bess- ari grein: Þjóðsögur Jóns Árna- sonar (einkum 1. bindi) — Jólavaka, safnrit úr íslenzkum bókmenntum, Jóhannes úr Kötl- um gaf út og Jól á íslandi, eftir Árna Björnsson. J. H. ECvenii!ssíðfi — y 5 sfðu fara í hárgreiðslu njóti þess af heilum hug og léti allt amstur og búsáhyggjur fyrir jóiin lönd og leið, Þið eruð ekki á heim- ilinu og getið gleymt því um stund meðan þið eruð að endur- nýja ykkur, án þess gerir nýja greiðslan ekki hálft gagn. Und- ir þetta tekur Pálína Sigurbergs- dóttir f Valhöll, Laugavegi 25, en hún segir jafnframt að finna megi mun á þeim konum, sem slaka á og hinum, sem bfða þess í taugaæsingi, að lagning- unni ljúki svo þær komist aftur tii verkanna. En víkjum aftur að aðfanga- degi og hvað eigi að gera þá. Fjölskyldan verður ánægðust, þegar húsmóðirin er ánægð, af- slöppuö og vel til höfö og þótt þá muni um eitthvert smáatriði í jólaundirbúningnum, köku- tegund eða slíkt, þá skiptir það miklu minna máii. En til þess að verða ánægju- efni fjölskyldunnar og skilyrði þess að líta vel út er að vera komin f jólaskap og þá gengur allt miklu betur. Aðfangadags- morgun hafið þiö á hreinu hvað er eftir en hafið ekki áhyggjur, ef smátafir veröa, alltaf má sleppa einhverju. Eftir hádegiö kemur aö hvíldartímanum. Þá farið þið í heitt og gott bað, lagið til fæturna og hendurnar, setjið ofurlítið krem á andlitið og farið að sofa. Ef ykkur tekst ekki að festa blund, slappið þið eins vel af og ykkur er mögu- legt. Þegar þið farið á fætur hefjið þið andlitssnyrtinguna og þær ykkar, sem eru búnar að laga á sér hárið passa þaö að setja um það klút meðan þær ljúka síðustu eldhússtörfunum til þess að ekki komi í það lykt eða gufa. Síöast er greitt yfir hárið, varaliturinn settur á og borið á sig ilmvatn og þið sýnið fallegt jólaandlit. Síðustu lólnltorfin borin út ú morgun ISI Að undanförnu hafa starfs- menn á pósthúsinu lagt nótt við dag til þess aö unnt yrði að koma jólapóstinum til skila í tæka tíð. Ekki er annars að vænta en að það takist og verða síðustu bréfin borin út fyrir há- degi á morgun. Pósthúsið verður opið til kl. 6 í kvöld, en aftur á móti verður toll- póststofan í Hafnarhúsinu og bögglapóststofan í Hafnarhvoli op- in tii kl. 19, og þar verða jóla- bögglar afhentir. Fyrir hátíðar í fyrra voru borin út um 900 þúsund bré.' samtals og er ekki ólíklegt að nú sé um eitt- hvað svipað magn að ræða. 3 Murgur upplýsingui í jóludugbók • „Borgin í dag“ gefur ýmsar hagkvæmar upplýsingar um það, sem er að eerast á jólunum. Þar eru allar iólamessur, yfirlit er þar yfir ferðir strætisvagna í Reykjavík og nágrenni um jólin, læknavaktir, onnunartíma apóteka, tannlæknavaktir, hitaveitu og raf veitu. Heimsóknartíma sjúkrahúsa um jólin og margt fleira. Hand- hægt er, að taka opnuna, sem „Borgin í dag“ er á og geyma. Tunglferðin — m-* í. sfðu. ekki talið, að hún reynist geim- förunum hættuieg. Aðalhreyflar geimfarsins verða settir af stað í fyrramálið og dregið þannig úr hraðanum. Það er kl. 14.22 eftir íslenzk- um tíma á aðfangadag, sem geim farið á að fara inn á hringiaga braut kringum tunglið, sem er i 111 km fjarlægð frá tunglinu. Geimfarið á aö fara 10 hring- ferðir um tunglið. Klukkan 6.06 á jóladag eiga geimfaramir að stýra geimfar- inu af tunglbrautinni og áleiöis til jaröar á ný. Inn í gufuhvolf jarðar á geim- farið að koma aftur klukkan 15.41 á föstudag eftir íslenzk- um tíma og lenda síðan á Kyrra- hafi. Hurkulegur — W-> 1. síöu. þarna stóð, og að Bjarka Elíassyni yfirlögregluþjóni og rak honum löðrung meö lófa mínum, sem var löðrandi í blóði. Þessu næst var ég flutt á slysa- varðstofuna af lögreglunni. Lög- regluþjónarnir spurðu mig ekki nafns, en sögðu, að aðgerð lok- inni, mætti ég fara heim til mín. Á slysavaröstofu Borgarspítalans var saumaður saman skurður á höfði mínu með tólf sporum." Annar aðili, sem hlaut áverka frá hendi lögreglunnar var Leifur Jóelsson: „Ég var handtekinn strax og ég kom út úr Tjarnarbúð. Ég hafði ekkert í höndunum. Ég var settur inn í lögreglubíl ásamt nokkrum fleirum mönnum, en er lögreglan ætlaðj að troða enn fleir- um handteknum upp í bílinn, neit- aði ég að flytja mig, en ég sat við dyr bílsins. Sló þá lögreglumaður mig, er stóð fyrir utan, í höfuðið með lögreglukylfu, og eru sjö vitni að þvi, að þessi lögregluþjónn hefur einkennisnúmerið 37. Var mér haldið í um hálfa klst. í lög- reglubíl, en var að því loknu fluttur á slysavarðstofuna. Lögreglubjón- ar spuröu mig ekki nafns, en sögðu að ég mætti fara að lokinnj að- gerö. Á Slysavarðstofunni var saumaður saman s’kurður á höfði mínu með 8 sporum.“ Nánar verður skyrt frá málsat- vikum í 1. tbl. eftir jól, en rúms- ins vegna, er hér látið staðar num- ið. Til leigu Til leigu 2-3ja herb. íbúð, gæti verið með húsgögnum, teppi á gólf um. Tilb. er greini frá fjölskyldu- stærð og atvinnu, sendist augl. Vísis fyrir 10. jan. merkt „Reglu- semi.“

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.