Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 5

Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 5
5 Bezta jóiagjöfin, sem hús- móðirin gefur sjálfri sér Já, núna er þaö jólagjöfin handa ykkur, sem er til um- ræöu. Handa ykkur frá ykkur sjálfum. Nú eniö þiö búnar aö hugsa út jó'lagjafimar handa öQum í fjölskyldunni, ■»aka kannski frameftir við að búa þær til eöa búa þær út, til þess aö fá aö vera í friði. Svo eraö þið búnar aö ganga frá þvotti, þvo og laga til aö mestu, baka, athuga jólaskreytingam- ar og allt hiö ótal marga, sem þið allar geriö fyrir jólin. Og núna er rööin komin að ykkur. Bezta jólagjöfin, sem Kvennasíðan getur mælt með við hverja konu, er að hún taki sér a. m. k. eina hvíldarstund ef ekki tvær, þrjár á aðfanga- dag. Þessa hvfldarstund á að nota tíl þess fyrst og fremst að slappa vel af og svo auðvitað að hressa ofurlítiö upp á út- lítið. Viö óskum þeim konum til hamingju, sem hafa verið svo forsjálar að panta sér jóla- lagningu í góðum tíma á hár- greiðslustofu. Þann klukkutíma, sem það tekur að láta þvo, leggja á sér hárið, þurrka það og greiða úr því eigið þiö að nota vel og er hægt að nota vel og hundraökallinn, sem fer í lagninguna er í þetta sinn ó- venju mikils virði. Það verkar ekkert eins upplífgandi á sál- ina og á útlitið eins og það að hafa það á tilfinningunni að vera vel greiddur og með greiðslu, sem klæðir mann. En við viljum leggja áherzlu á það, að þær sem eiga eftir að 3§->- 3. síða. Sælgætið í hófi Hvemig væri að kaupa nýja tannbursta handa allri fjöl- skyldunni áður en jólasælgætis- átið hefst? Til þess að vemda tennur og maga barnanna um jólin vegna sælgætisátsins ætti aöeins að hafa sælgætisskálina standandi á borðum ákveðna tima dagsins. Bezti tíminn er þegar líður á daginn eða um kvöldiö, þegar flestar máltíðirnar em afstaðn- ar. Sælgætisskálinni á aö halda frá þeim yngstu en fortölur og loforð um sælgætisskammt seinnipartinn eiga að róa þau eldri. Svo á að bursta tennurnar vel aö afloknu öllu sælgætisát- inu og þaö þarf að hjálpa böm- unum allt til 6—8 ára aldurs við að bursta tennumar vel og á réttan hátt. Laufabrauð og heitir drykkir .Jsiandske löivabröd" voru einn rétturinn í myndafrásögn, sem danska blaðið Eva birti fyrir skömmu af jólagleðskap. 1 greininni voru bæöi sýnd föt af nýjustu tizku, gefnar upp- skriftir að púnsdrykkjum1, sem er til siös að hafa á jólum og öðm því, sem neytt er meö þeim og á meöal þess var hið gamla góða íslenzka laufa- brauð. íað er „islandske löivabröd“, sem herrann heldur á. Dönsku húsmæðumar neyta þvíheimabakaðs laufabrauðs um leið og við höfum aðgang að dönskum tertubotnum. En hug- myndin er bráðsnjöll því ekki að hafa laufabrauö með heitum drykk, sem gleður gestinn, þegar hann kemur inn úr kuld- anum. Eftir jóladagana em einnig flestir búnir að fá nóg af kaffi og smákökum. Epla- skífur er annað, sem er mjög gott með heitum drykk og eins og við höfum sagt frá áður, mikið hafðar i Danmörku á gamlárskvöld. Á myndinni, sem fylgir, er þessi tízkuklæddi herramaður að'bíta í laufabrauðsköku, sem daman, sem er klædd í buxna- kjól, var að rétta honum. Ekki er annað aö sjá en honum líki bakkelsið vel. Auðveldur og ódýr jóladrykk- ur, sem hitar vel er rauðvín, sem er hært með sykri og sterku te og sjóðandi heitu hellt síðan á. Sítrónusneiö höfð með. Annar drykkur, sem er fyrir fleiri og hægt er t.d. að bera fram á gamlárskvöld er: Púnsdrykkur. 1 innihald tveggja rauðvíns- flaskna er blandað 1 stykki heilum kanel og 8 heilum negul- nöglum og látið trekkja í fimm mínútur yfir meðalhita og undir loki. Bætt f þetta hýðinu af sítrónu, sem hefur verið skorið í ræmur, 125 gr. sykur, y2 flaska portvín, 100 gr. flysjaðar möndlur og 100 gr. ljósar rús- ínur. Hitað og hrært I um leið þar til upp að suðumarki og borið fram strax. Þetta á að vera nóg í um það bil 12 glös. Með þessu má bera fram auk laufabrauös og eplaskífna, döðl- ur og hnetur og smákökur. BÓKAÚTGÁPAN HILDllR HVER ER VICTORIA HOLT? Victoria Holt er einn af kunnustu og vinsælustu rithöfundum Englands í _____ dag. Söpr hennar eru þrungnarspennu og duiúð, lesandinn ieggur bókina ógjarnan frá sér fyrr en hann hefur lesíö hana til enda. Bóka hennar er ætíð beðið með mikilli eftirvæntingu. Bókaútgáf- an Hildur hefur þegar gefið ót tvær af sögum Victoriu Holt, Manfreya kastalinn og nu, Frúin af Meliyn. KEWMIÐ BÖRISlllNIJM AÐ VARAST ELDIWW Varist eldinn yfir hátíftarnar BRUIVABÓTAFÉLAG ÍSLAIVDS LAUGAVEGI 103 . SÍMI 24425 Mikið úrval af sænskum Lindshammar krystal og öðrum gjafavörum. Einnig jólaskreytingar og skreyt- ingaefni. Mjög fallegar þýzkar styttur ný- komnar. BLÓM & ÁVEXTIR Hafnarstræti 3. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.