Vísir - 23.12.1968, Side 8

Vísir - 23.12.1968, Side 8
s Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði inrjanlands í lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Jólastreita — Jólafriður ' f>orláksmessa er í dag, — Kklega annasamasti dagur ársins. Verzlariir verða opnar til miðnættis og troð- fullar af fólki, ef að líkum lætur. Flest verzlunarfólk mun ganga örþreytt til hvílu í nótt. Aðrir verða á þön- um um verzlanahverfin, jafnyel fram á síðustu stund, til þess að velja jólagjafir, jólavörur og jólamat, því að oft vill tíminn verða ódrjúgur við lok jólaundirbún- íngsins. Og margir munu eiga eftir langt dagsverk, þegar heim er komið, ekki sízt húsmæðurnar, sem bera hita og þunga jólaannanna. Streitan, sem hefur verið að hlaðast upp undanfarnai vikur, nær hámarki í dag. Þannig hefur það verið árum saman. Hið mikla ver- ildlega vafstur, sem er undanfari jólanna, er farið að skyggja á jólahaldið sjálft. Hreingerningar, endur- bætur á húsnæði. húsmunakaup, bakstur og jólamat- reiðsla, skreytingar og innkáup jólagjafa og annars til jólahalds, — allt þetta bætist við venjulegan vinnu- dag. Þetta setur marga konuna og margan manninn í spennitreyju, sem aldrei þrýstir fastar að en einmitt í dag, — á Þorfáksmessu. Þessi streita veldúr því, að margir eru veraldlega of vel, en andlega of illa búnir undir helgi jólanna. Annir, órói og streita eru ekki í sariiræmi við friðar- hátíðina. Velmegun undanfarinna ára hefur magnað þetta ástand. Og jafnvel riú, þegar þorri fólks hefur minna milli handa en undanfarin ár, er álagið ekki minna, því að sumir sætta sig ekki við annað en að halda uppi sama höfðingsskap og áður í jólaeyðslu. Fróður maður sagði Vísi, að hann teldi jólaútgjöld meðalfjölskyldu í ár nálgast 20.000 krónur, sem jafn- gildir því, að fslendingar verji nærri einum milljarð króna til jólanna. Sumt af þessu fer til nytsamlegra þarfa, en upphæðin er eigi að síður ævintýralega há. Tilgangslítið er að hugsa af angurværð til liðinna tíma, þegar hin veraldlega dýrð jólanna var minni. Hin rólegu og friðsömu sveitajól tilheyra vissulega liðinni tíð. Óhjákvæmilegt er, að velmegun nútímans ryðji úr vegi gömlum verðmætum sem öðru gömlu. Jólahaldið hlýtur að endurspegla lífskjörin og þjóð- lífshraðanm En vissulega er óskandi, að menn fari ikki að öllu leyti/á mis við rósemi hugans og friðinn, sem einkenndu gömlu jólin. Margir frídagar fafa nú í hönd hjá flestum stéttum þjóðfélagsins. Vonandi verða menn fljótir að jafna sig eftir umstang jólaundirbúningsins, svo að þeir fái notið þessara daga. Jólin voru, eru og eiga að halda áfram að vera friðarhátíð, Hinn .étti jólaandi þarf að ríkja á sem flestum heimilum. í þeirri von óskar Vísir öllum lesendum sínum friðsœlla jóia V1SIR . Mánudagur 23. desember 1968. „HÚN FRÆNKA MÍN í AMERÍKU“ — ég dáist að henni! „Þú þekkir auðvitað hann Jón bróður minn í Ameríku?“ spurði gamla konan Vestur- íslending... j^g ætla samt ekki að spyrja þjg, hvort þú þekkir ekki „hana frænku mína 1 Ame- ríku“ þvl það gerirðu eflaust ekki. Og þó væri hún þess vel verð. Ég er hreykinn af henni og dái hana innilega, þótt hvorki hafi ég heyrt hana né séö, held- ur átt bréfaskipti við hana um áratug. Frænka mín er' 87 ára að aldri, sennilega fædd í Winni- peg eða flutt þangað kornbarn- ið. Er hún, því uppalin Kanada- mær í erlendri menningu um hálfan níunda tug ára, en ts- lendingur enn f hug og hjarta og fram í fingurgóma! Rit- hönd hennar er frábærlega fögur, og íslenzk réttritun hennar á við góða landsprófs- nemendur hér heima! Frænka mín er Austfirðing- ur eins og ég, en fékk þó Suður- þingeying að láni sem föðurafa. Virðist sú blóðblöndun hafa borið stórfurðulegan árangur, sennilega arfgengan langt fram- an úr ættum: Þingevsk skáld- hneigð, listhneigð og litagleði enn lengra að! Þessir eiginleikar eru dásamlega sameinaðir í frænku minni. Hún er ljóðelsk mjög og kann fjölda Ijóða gömlu þjóðskáldanna okkar. Teiknað hefir hún og mál^ð frá æsku- árum, og var mjög sótzt eftir myndum hennar. Efalaust er hún vel skáldmælt, bæði á ís- lenzka tungu og brezka, og mun ég drepa á það að lokum. í síðasta bréfi sínu, frá októ- berlokum, segir hún m. a., en hún er nú vistmaður Elliheim- ilisins „Betel" á Gimli: „Ég sit hér við gluggann minn og horfi út á hið stóra Winnipegvatn. Bryggjan og höfnin er rétt fyrir utan glugg- ann minn sem snýr í austur, og þar er töluvert að sjá suma dagá, svo að ég mála hér dá- lítið mér til dægrastyttingar . .“ Þessi litgleöi í blóði frænku virðist ættgeng fram í fimmta lið, jafnvel hér heima, þar sem ung systkin sýna frábæra ,lit- gleði frá blábemsku, hver sem árangur verður síðar. Frænka mín missti eiginmann sinn um síöustu áramót, 96 ára að aldri. Hann var Snæfelling- ur, þremenningur dr. Jóns „foma“ og þeirra bræðra. Föð- uramma hans var systir séra Þorkels á Staðastað. / ♦ Böm frænku og barnaböm eru öll vel menntuð úr mennta- skólum og háskólum vestra, og sum þeirra a.m.k. listhneigð. Einn sonur hennar stundaði list- nám í Lundúnnum, og var þá um hrið „illustrator" (teiknari og málari) sumra vikublaöa Lundúnaborgar, og hefir nýskeð verið ráðinn þangað á ný til þeirra starfa. Einn dóttursonur hennar er háttsettur yfirforingi í sjóher Kanada. Og margs fleira værj að minnast. í september-bréfi sínu segir frænka mín m. a.: „íslenzkan okkar hér vestra virðist sennilega komin all- langt áleiðis að hverfa af tung- unni, en satt aö segja þá hefir hún þó aldrei fyrr veriö jafn mikils metin hér sem um þessar mundir. Ég man þá tíð, aö fólk hér þorði varla að viðurkenna að það væri íslenzkt, er þaö var að leita sér að vinnu, En nú er íslenzka höfð hér í hávegum, sérstaklega á vettvangi alls er snertir menntun og bók- menntir. — Og ég-get bætt þvi hér við, að því fylgir einnt>» ráðvendni. Yfirleitt trúa hér all- ir Islendingunum, og treysta, og tel ég víst, að það muni stafa allt frá fyrstu íslendingunum, sem hér settust að. — Lifðu þá margir þeirra og dóu, án þess að læra nokkuð að ráði í tungu þeirri, sem hér er okkar dag- lega mál. . . .“ Ég nefndj skáldhneigð frænku. í einu bréfi sínu (1957) sendi hún mér langt og fallegt ljóð, 7 erindi alls, er hún nefnir Iceland. Er þar fyrst all-ýtarleg lýsing á landi „elds og ísa“, sögu þess og örlaga um aldir. Sjötta erindi ljóðsins er svo hjartnæm ástarjátning til föö- urlandsins, að ætla mætti að ort væri hér heima. Ever down the ages the island loved its own Icelandic bards and ballads from whitch our culture has grown. We love these poets pictures of present or ancient lore, the sagas, and clever sayings, their songs, and hymns of yore. ♦ „Frænka mín í Ameríku“ lýkur venjulega bréfum' sínum áþekkt og amma mín myndi gert hafa austur á Fljótsdalshéraði um aldamótin síðustu: oröaval og blessunaróskir sem þá tíðk- aðist og gekk að erfðum, 6- haggað í íslenzkum sveitum gegnum ættir og aldin „Bið ég svo Guð að blessa þig og þína í bráð og lengd, og þó ég eigi það hreint ekki skilið, þá langar mig til að fá línu frá þér við hentugleika“.“ — Og það fékk hún og hefir fengið margsinnis síðan v. Á þessum bréfaskiptum okk- ar „frænku minnar í Ameríku" er auðséð, að enn hefir hún ekki glatað né vanrækt erfða-eöli sitt og eiginleika, þótt alizt hafi upp í erlendri stórþjóða-menn- ingu um hálfan níunda tug ára! Svo traust ættl fslendings- eMi vort og erfðamenning að vera enn í dag. v. Félag íslenzkra útvarpsvirkja 30 ára : Hinn 10. janúar 1938 komu nokkrir útvarpsvirkjar saman að afloknu dagsverki í útvarps- sal til að stofna með sér félag er hlaut nafnið Félag útvarps- virkja Reykjavíkur, og gæta skyldi hagsmuna útvarpsvirkja og vernda tilverurétt iðngreinar þeirra. í upphafj var félags- svæöið miöaði við Reykjavik. en nær nú til alls landsins og fór nafnbreyting í samræmi við það fram árið 1966. í tilefni af þessum tímamót- um létu stjórnir Félags ísl. út- varps & meistarafélagsiútvarps- virkja gera merki fyrir félögin. sem munu framvegis einkenna nlögg þessara félaga og prýða þá staði. sem útvarpsvirkjar eru til húsa með starfsemj sína. I 30 ára afmælishófi félagsins voru þeir Eggert Benónýsson, og Friðrik A Jó.nsson sæmd;r merki félagsins úr gulli fyrir óeigingjörn og fórnfús störf > bágu félagsins um mörg ar. í félagi fsl. útv. er nú 71 félagi og í stjórn þess sitja: Formaður Vilberg Sigurjónsson, ritari Halldór J. Amórsson og gjaldkeri Bjarni Karlsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.