Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 16

Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 16
:■, / Uuineti 17B • Sini 21120 Rqkjnfli jjtek+SœlherL * 9 pf__. • i oo ennn Sími 13835 Ávaxiasatt, sem m& blanða 4 rfiMHnw nxeff vstnL VISIR Mánudagur 23. desember 1968. eisKar nniinn af... iiee MaSurinn þekkir' gæSin. Nýr kaþólskur biskup — Herra Hinrik Frehen settur i embætti: Lofaðihinum lútherska starfsbróíur góðri samvinnu Nýr kaþólskur biskup var settur innw embætti sitt hér á landi í gærdag. Athöfnin fór fram í Kristskirkju í Landakoti þar sem herra Hinrik Frehen var settur inn í embætti sitt sem Reykja víkurbiskup. Fjöldi manns var viðstaddur athöfnina, m. a. forseti Islands, biskupinn yfir íslandi, utanrík- isráðherra, borgarstjórinn og allmargir aörir gestir, auk þess margir úr kaþólska söfnuðinum hér, en hann telur 1000—1100 manns. Kristskirkja var fagurlega skreytt, þegar „prósessían" kom frá Landakoti að kirkjunni, kórdrengir með kross í farar- broddi, þá klerkar og biskupar í litríkum hempum. Frammi í fordyri kyssti herra Frehen á róðukross, sem þar lá á púöa, blessaði hann síðan söfnuöinn. Sr. Öback í Landa- koti las páfabréf um stofnun nýs safnaðar í Reykjavík á lat- ínu og í íslenzkri þýðingu. Söfnuðurinn hefur til verið trúboösstöð. Risknnsvípsla fór fram í 40 þús. lítrar af ijóma seljast á þrem dögrnn í kvöld verður flogið með 4-5 úsund lítra af rjóma frá Akur- yri til Reykjavíkur. Þetta mikla :iagn og meira þarf til að anna 'tirspurninni eftir rjóma fyrir há ðarnar, en rjómaneyzla er iíklega aldrei meiri. Þessi rjómi, sem komiö verður ’'eð flugleiðis frá Akureyri verður skilinn frá mjólkinni í dag að mestu en eitthvað af honum hefur verið flutt til Akureyrar með bfl frá Húsavík. Blaðið talaði við Odd Helgason, sölustjóra hjá Mjólkursamsölunni, sem sagði, að síðustu þrjá dagana fyrir jólin seldust sennilega 40 þús und lítrar af rjóma eða álíka og II fyrra. í dag er búizt við að seljist 110—120 þús. iftrar af mjólk en 130 þús. lítrar á morgun. i Oddur sagði ennfremur um rjóm | ann, sem kemur til Reykjavfkur í i kvöld að hann yrði til sölu á j morgun og á annan í jólum en þá j eru^mjólkurbúðir opnar frá 10-12. Hvít jól í Reykjavík I nótt breyttist vindáttin hér sunnanlands og sums staöar var él, Veðurstofan spáir suðvestan- átti í dag með éljagangi þannig,’ að gera má ráð fyrir að jöröin gráni nú á Þorláksmessu og Reykvíkingar fái hvít jól. Hvít jól verða um allt norðanvert landið en snjór er á jörðu allt frá norðanverðu Snæfellsnesi og suður um Austfirði. í nótt er spáin sú, að stytti aftur upp með norðanátt og verði bjart og aö norðan að- fangadag. Búizt er viö sams konar veðráttu á jóladag, þann- ig að jólaverðið verður að lík- indum fallegt hér sunnanlands. Allflestar Reykjavík, Stykkishóhni Belgíu fyrir hálfum mánuði og var hér aðeins um innsetningar- athöfn að ræða, dr. Heim, erki- biskup frá Kaupmannahöfn sat í biskupsstóli framan af atböfn inni en hann setti herra Frehen í embætti og leiddi hann til sætis síns. Þar vottuðu klerkar honum holhistu og virðingu með því að kyssa á embættis- hring hans. nunnanna frá Hafnarfirði og voru viðstaddar athöfnina, m. a. Karmelsystur úr Hafnarfirði, sem venjulega sru innilokaðar í klaustri sínu. Játu þær við Mariualtarið dnstra megin í kirkjunni í >rúnu kuflunum sínum. Sfðasta innsetning biskups : embætti átti sér stað hér á iandi á 16. öld, þegar Jón bisk- ap Arason var settur f embætti íitt. Kaþólskum sið á Tslandi !auk að fullu og öllu 1550, þegar ión biskup var hálshöggvinn að Skálholti. Var athöfnin í gær því sögu- ieg og mörgum minnisstæð, sem á horfðu. HERRA FREHEN, nýi bisk- upinn, með bagal sinn og mit- ur, tákn embættis sins. ► 0LIUFEL0GIN ERU FJÁRVANA KostaÓi 100 þús. kr. á dag oð láta rússneska oliuskipib biða Klerkar gengu fyrir biskup, krupu á kné og kysstu á biskupshringinn til að votta hollustu srna. ► Viðskiptabankar olíufélag- anna, Landsbankinn og Út- vegsbankinn, hlupu undir bagga með að leggja fram greiðslu- tryggingu fyrir olíunni til að forða þjóðfélaginu frá frekara tapi vegna tafa á að uppskipa olíunni úr rússneska skipinu Kostroma, sagði Vilhjálmur Jóns son, forstjöri Olíufélagsins h.f., í viðtali við Vísi í morgun. Skipið kom sl. fimmtudags- morgun, en það var ekki hægt að hefja uppskipunina fyrr en á laug ardagsmorgun, þar sem ekki var hægt að leggja fram greiðslutrygg- ingu fyrir farminu fyrr. Það kost laði um 100 þús. krónur á sólar- hring. Staðreyndin er sú, að eftir geng islækkunina skortir olfufélögin mjög fjármagn til olíuinnflutn- ingsins, sagði Vilhjálmur. Aðspurð ur um ástæðuna fyrir þessari töf. Ekki hefur verið unnt að ráða bót á þessum fjármagnsskorti, en við- skiptabankarnir eiga mjög í vök að verjast vegna fjármagnsskorts. Þeir eru allir með stóran yfirdrátt í Seölabankanum, sem þeir verða að greiða 16% refsivexti fyrir. — Því er ekki að neita, að viðskipta- bankarnir skaðast á því að leggja fram greiðslutryggingu fyrir olí- unni, þar sem þeir hafa ekki fjár magnið og verða þar af leiðandi að auka yfirdráttinn í Seðlabank- anum. 49 hlutverk í Tjarnarbæ Annan dag jóla frumsýnir Litla leikfélagið nýtt íslenzkt leikrit í Tjarnarbæ. Leikrit þetta er að miklu leyti tengt jólum og er það samið af leikurunum sjálfum á- samt Jóhannesi úr Kötlum, sem leggur til ljóðin í leiknum. Leik- ritið fjallar um gömlu íslenzku jólasveinana, börnin hennar Grýlu, huldufólkið, dýrin, sem tala á jóla- nótt og fleira. Það, sem vakti fyrir þessum ungu leikurum með þessari leik- ritsgerð var að skapa íslenzkt leik- rit úr þjóðsögulegu efni, sem væri við hæfi þroskaðra bama. Mörgum furðulegum persónum bregður fyrir í þessu leikriti, svo sem jóiasveinunum þrettán, Grýlu- börnunum, Leiðindaskjóðu, Skrukkuskjóðu, Dúðadurti, Leppa- lúða, Langlegg og Bólu, auk margra kynlegra álfa. — Alls eru hlutverkin í leikritinu 49 talsins. Leikendurnir sjálfir annazt tjalda- smíði og búningagerö auk leikrit- unarinnar, en leikstjóri og verk- stjóri við sköpun sýningarinnar er Guðrún Ásmundsdóttir. — Leikur- inn verður sýndur á hverjum degi fram á þrettánda, nema gamlárs- dag og nýársdag.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.