Alþýðublaðið - 27.01.1966, Síða 1
Fimmtudagur 27. janúar 1966 - 46. árg. — 21. tbl. — VER0: 5 KR.
FRJÁLSINNFLUTNINGUR Á
JARNI, STALI OG TIMBRI
Reykjavík. —
FJÖLGAÐ hefur verið þeim
vörutegundum, sem flytja má inn
án gjaldeyris- og innflutnings-
leyfa. Þær vörúr, sem nú hafa
bætzt á frílistann eru helztar, stál,
járn og timbur, eldhúsimirétting-
ar og gólfteppi. Þá hafa innflutn-
ingskvótar ýmissa vörutegunda
verið auknir og á það við um
Biðskákir tefldar
í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI voru tefldar
biðskákir á Reykjavíkurmótinu í
skák og fóru þær þannig': Friðrik
Ólafsson og Guðmundur Pálma-
son gerðu jafntefli, Jón Háldánar
son vann Kieninger, Guðmundur
Pálmason vann Kieninger os
Freysteinn og O’KelIy sömdu um
jafntefli.
Staðan á mótinu er þá þannig:
1.—2. Friðrik og Vasjúkov 8
vinningar.
3. 0‘Kelly 7 vinningar.
4. Guðmundur Pálmason 6VÖ
vinningar.
• 5. Freysteinn 6 vinninga.
Ellefta og síðasta umferð móts
ins verður tefld í kvöld.
húisgögn og sement og leyfður
verður nú takmarkaður innflutn-
ingur á nokkrum sælgætistegund-
um. .
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála
ráðherra skýrði frá þessu í frétta-
auka Ríkisútvarpsins í gærkvöldi
og sagði þá meðal annars, að þess
ar ráðstafanir væru liður i þeirri
stefnu ríkisstjórnarinnar að veita
neytendum kost á fjölbreyttu vöru
úrvali og stuðla að aukinni sam-
keppni í verzluninni.
Auk þeirra vörutegunda, sem
að ofan greinir, fara nú pípu-
hlutai-, nærfatnaður úr baðmull,
skyrtur, karlmannasokkar og
og gúmmískófatnaður á frílista,
og einnig er myndaður smávægi-
legur innflutningskvóti fyrir ó-
brennt kaffi.
Innflutningur þeirra vöruteg-
unda, sem nú bætast við frílist-
ann var á sl. ári 7% heildar-
innflutningsins, og er þetta
stærsta skrefið til stækkunar frí-
listans, sem stigið hefur verið
síðan 1960, sagði viðskiptamála-
ráðherra.
Hlutdeild hins algjörlega frjálsa
innflutnings eykst nú úr 79,2% í
86,2% heildarinnflutningsins.
Ráðherra gat þess, að ríkis-
stjórnin hefði viljað gæta þess
Framhald á 14. síðu.
✓ /
AFMÆLISHATIÐ I GÆR
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dagsbrún minntist sextíu ára
afmælis síns með hófi að Hótel Borg í gærkveldi, og var
þar mikið fjölmenni. Þessa svipmynd tók ljósmyndari AI
þýðublaðsins, þegar gestirnir streymdu til hófsins. Á henni
er Eðvarð Sigurðson, formaður Dagsbrúnar að heilsa upp á
Jónu Guðjónsdóttur, formann Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar. Til hægri er Þórunn Valdimarsdóttir (Mynd: JV).
Vegieg hátíðahöEd
ÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓO*
Kveðja Alþýðuflokks-
ins til Dagsbrúnar
í TrLEFNI af 60 ára afmæli Verkalýðsfélagsins Dags-
brúnar sendi stórn Alþýðuflokksins félaginu eftirfarandi
skeyti í gær:
Alþýðuflokkurinn sendir Verkamannafélaginu Dagsbrún
hugheilar ámaðaróskir í tilefni af 60 ára afmæli félagsins
um leið og hann þakkar því gifturíkt brautryðjendastarf að
hagsmunum alls verkalýðs í Reykjavík og á íslandi öllu.
Á liðnum áratugum hafa léiðir Dagsbrúnar og Alþýðu-
flokksins ,’egið saman í baráttu fyrir bættum kjöriun og auk-
inni menningu ísleuzkra alþýðustétta. Megi það samstarf efl
ast og batna með hverjum nýjum áratug, íslandi og íslenzkri
þjóð tii heilla og hamingju.
Emil Jónsson Gylfi Þ. Gíslason
formaður varaformaður
Benedikt Gröndal
ritari
á Ésafirði í gær
ÍSAFJRÐI. - (bs-oó).
VF.GLEG HÁTÍÐAHÖLD voru
í gær á ísafirði í tilefni 100 ára
afmælis kaupstaðarins1 Kaupstaðn
um bárust margar góðar gjafir og
heillaóskir. Meðal gesta við há-
tíðahöldin voru forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson og Eggert
G. Þorsteinsson, félagsmálaráð-
herra.
Hátíðahöldin hófust með há-
tíðarfundi bæjarstjórnar, sem
hófst kl. 14,00 í Góðtemplarahús-
inu, og var húsið fagurlega
skreytt blómum og skjaldarmerkj-
um. Áður en gengið var til dag-
skrár lék Lúðrasveit skólanna tvö
lög. Stjórnandi var Þórir Þóris-
son. Þá söng Sunnukórinn undir
stjórn Ragnars H. Ragnar. Þá
bauð forseti bæjarstjórnar, Bjarni
Guðbjörnsson, gesti velkomna, og
gerði grein fyrir sögu ísafjarðar
á liðinni öld. Þá var gengið til
dagskrár og teknar fyrir tvær til-
lögur. í fyrsta lagi tillaga um
byggingu nýs elliheimilis á ísa-
firði. Framsögu í því máli fluttu
bæjarfulltrúarnir Björgvin Sig-
hvatsson og Högni Þórðarson. —
Síðan var flutt tillaga um sjóðs-
stofnun til verðlauna fyrir náms-
afrek nemenda í væntanlegum
menntaskóla á ísafirði. Framsögu-
maður var Haraldur Ólafsson. Sam
þykkt var með samliljóða atkvæð-
um að byggt verði elliheimili fyr-
ir 40 vistmenn á sjúkttdiússlóð-
inni og verði rekstur elliheimilis-
ins í tengslum við sjúkrahusið. Á
þessu ári verði efnt til verðlauna
Framh. á 14. siðu.
Verzlunarmannaféiag Reykjavíkur 75 ára
Verzlunarmannafélag ReykjavíkuT er 75 ára £ dag og minnist Alþýðublaðið afmælisins með
efití á bls. 7, 8 og 9. og birtir auk þess kveðjur til félagsins á nokkrum síðum.