Alþýðublaðið - 30.03.1966, Blaðsíða 4
Bttatfórar: Gylfl Gröndíl (4b.) og Benedlkt Gröndel. — RltstJÍSmarfuU-
trúl: ElOur GuSnason. — Símar: 14900-14903 — Auglýslngasíml: 1490«.
ASsetur AlþýSubúalO vlO Hverflsgötu, Reykjavllc. — PrentsmlOJa AlþýOu
blaOalna. — Aakrlftargjald kr. 85.00 — 1 laueasðlu kr, 5.00 elntaktt).
Gtgefandl AlþýOuflokkurinn.
Samningarnir...
SAMNINGAR milli íslands og Swiss Aluminium
lutd. um byggingu álbræðslu hér á landi voru und-
irritaðir í fyrradag. Er þetta merkur atburður í at-
irinnusögu þjóðarinnar, þáttur í framkvæmd gam-
alla drauma um að virkja jökulfljót og nota orku
^eirra til stóriðju.
Samningar þessir eiga sér langan aðdraganda.
Í/Iörg erlend félög hafa á undanförnum árum athug-
að möguleika á byggingu álverksmiðja hér á landi,
en öll horfið frá — flest vegna ótryggra efnahags-
rnála frekar en lélegra náttúruskilyrða. Lengi vel
gekk hvorki né rak í viðræðum við Svisslendinga,
.Jjar eð samningamenn íslands settu sem algert skil-
yrði, að raforkuverð væri 2,5 mills. Þegar Swiss
Aluminium loks gekk inn á það verð, var byrjað að
semja.
Auk íslenzkra sérfræðinga fékk ríkisstjórnin sér
tll ráðuneytis bandarískt lögfræðifirma, sem hefur
sérþekkingu á slíkum samningum. Að auki sátu
f alltrúar Alþjóðabankans okkar megin við samn-
i agaborðið, þv-' að þeir munu lána fé til Búrfellsvirkj
-tbar og er þeirra hagur, að íslendingar nái góðum
Siamningum. Allt ætti þetta að tryggja svo sem bezt
verður, að vel hafi verið haldið á málstað íslend-
i ága.
...og Alþingi
ÞJÓÐVILJINN hefur gert harða árás á ríkis- ,
sljórnina fyrir það, <að samningarnir við Swiss
Aluminium Ltd. skyldu vera undirritaðir af iðnað-
armálaráðherra, áður en þeir voru lagðir fyrir AI-
4>ingi. Kallar blaðið þetta fyrirlitningu á Alþingi.
1 Þessi málflutningur er furðulegur. Samkvæmt
21. grein stjórnarskrárinnar á forseti lýðveldisins að
tgera samninga við erlend ríki, en það þýðir í reynd,
ríkisstjórn á að gera slíka samninga. Ef þeir hafa
i sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða
fcreytingu á stjórnarhögum ríkisins, skal samþykki
i 'i í
Alþingis koma til.
Framkvæmd þeasara máía hefur ávallt verið
svo, að framkvæmdavaldið gerir samninga við er
lenda aðila. Fjölda þeirra samninga þarf ekki að
leggja fyrir Alþingi, en margir hafa þó verið lagð-
ií .þar fyrir til staðfestingar. Um þetta hafa ekki ver
ið deilur, enda er þessi sami háttur fyrirskipaður í
síjórnarskrám flestra ríkja og framkvæmd eins og
•feér héfur verið.
í sannleika sagt hefur ríkisstjórnin leyft nefnd
þingmanna úr öllum flokkum. að fylgjast með gerð
samninganna og hafa áhrif á þá undanfarið ár. Þetta
ýr meira en gert hefur verið áður og meira en ríkis-,
stjórn ber skylda til. Þess vegna er fráleitt að kalla
meðferð þessa máls „fyrirlitningu“ á Alþingi.
ó 4 30. rnarz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐ1Ð
G£Æ$/l£6r
mm c//ð mcm mr/
oooooooooooooooooooooooooooooooo*
Y
Minnkandi fylgi við bjórinn.
★
★
★
★
Reynsla og staðreyndir mæta fullyrSingum.
Bakkusarprestar hafa reynst lygalaupar.
Drepið á nokkur atriði sögunnar.
OOOOOOOOOOO'OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOi
MÉR ER SAGT, að ölfrum-
varpið mæti æ harðari mótspymu
á Alþingi, fleiri og fleiri þinff-
memi séu að verða því andvígir.
Þetta mun ekki sízt stafa af því
að mönnum er ljást hversu greig-
vænlegt ástandið er í áfengismál
unum. En það mun líka hafa sitt
að segja, að bláköld reynslan sýnir1
og sannar, að andbanningar og
aðrir Bakkusarprestar, hafa allt
af reynzt lygarar fyrir dómi sög
unnar.
ALLAR FGLLYRÐINGAR
þeirra frá uphafj hafa verið á þá
lund, að auðveldari leið til á-
fengisöflunar yrði til þess að
minnka smygl og brugg og draga
úr drykkjuskap. En reynslan hefur
sýnt svo að ekki verður um deilt,
að hver tilslökun hefur orðið til
þess að auka smygl og auka brugg
og leitt til enn skefjalausari
drykkjuskapar þar til komið er
eins og nú, og menn sjá þegar
þeir litast um í kringum sig. —
Ðagsbrún hefur samþykkt mót-
mæli. — Hér er síðasta bréfið,
sem ég hef fengið um þessi mál:
HILMAR JÓNSSON SKRIFAR:
„Frumvarp það, sem nú liggur
fyrir Alþingi um heimild til brugg
unar áfengs öls hér á landi gefur
tilefni til margvíslegra hugleið-
inga um áfengis- og æskulýðs-
mál: — Ýmsar skrílsamkomur ungl
inga á Hreðavatni, í Þórsmörk,
á Þingvöllum, í Vaglaskógi og
Hallormstaðaskógi og á fleiri stöð
um hafa á undanförnum árum
vakið athygli á sívaxandi neyzlu
unglinga á áfengum drykkjum.
Svo alvarlegt var ástandið orðið
að nefnd á vegum dómsmálaráðu
neytisins var sett á laggirnar til
að finna ráð til úrbóta.
SÉRSTAKLEGA var ein lielgi
sumarsins orðin alræmd fyrir
drykkjulæti, verzlunarmannahelg
in. Með virðingu fyrir öllum vand
læturum verður það að viður-
kennast. sem rétt er að einungis
einn aðili sýndi í verki viðleitni
til að stemma stigu við þessari
óheillaþróun, bindindissamtökin.
Þau beittu sér sem sagt fyrir móti
um verzlunarmannahelgina —
móti, sem haldið hefur verið í
5 ár oftast á Húsafelli við vaxandi
vinsældir. Þessi viðleitni templara
hefur þann árangur borið að nú
í sumar voru þrjú bindindis-
mannamót haldin um verzlunar-
mannahelgina.
DÓMSVALDIÐ, sem fylgzt hef
ur með þessum samkomum hefur
lagt blessun sína yfir þær og næg
ir að nefna í því sambandi bein
an stuðning, sem Ásgeir Péturs
son sýslumaður í Bargamesi, hef
ur veitt forráðamönnum Húsafells
mótsins og Axel Túliníus þeim
Framhald á 15. síðu.