Alþýðublaðið - 18.05.1966, Blaðsíða 11
fcsRitsÝtóiTOrn Eidsson
Víkingur náöi óvænt
jafntefli v/ð KR
ÞAÐ er ekki hygginna manna
háttur aS vanmeta dug mótherja
sinna, hvort heldur er á knatt-
spyrnuvellinum eða við aðrar að-
stæður. Þetta fengu KR-ingar að
sannreyna í fyrrakvöld, er þeir
hittu fyrir hið unga lið Víkings í
Reykjavíkurmótinu. Fæsta mun
hafa órað fyrir þvi, og þar á með-
al KR-inga sjálfa, sem fylktu sinu
serkasta liði fram til orrustu, að
úrslitin yrðu þau sem raun varð
á, jafntefli án marka.
Vissulega áttu Víkingarnir við-
ofurefli að etja, hurð skall nærri
hælum öðru hvoru og jafnteflis-
möguleikinn dinglaði á bláþræði,
sem út af fyrir sig var engin
furða. Hitt vakti meiri furðu og
aðdáun þeirra hundruð áhorf-
enda, sem leikinn sóttu, hversu
hinir .ungu Víkingar fengu varizt
af harðfengi leiftursókn mótherj-
anna, sem lögðu sig alla fram um
að knýja úrslitin sér í hag.
Víkingarnir vörðust ekki ein-
asta af miklu kappi, þeir áttu
og við og við hröð upphlaup, og
sýndu í leiknum ótvírætt þol og
þrek. Voru hvað eftir annað fyrri
til að knettinum og tókst að láta
mótherjana hafa sem minnst at-
liafnafrelsi. Þannig börðust þeir
allan leikinn og uppskáru, sem
laun erfiðis síns eitt dýrmætt stig.
Lið KR sem óneitanlega er vel
skipað, náði sér aldrei á strik í
leiknum. Framlínan vann illa
saman, og dugði ekki til leikni
Eyleifs eða hraði Baldvins. Einka-
framtakið, sem gott er að vissu
marki, sat um of í fyrirrúmi fyrir
samstarfinu. Ætluðu þar hver um
sig upp á eigin spýtur, að „gera
mikið” en minna varð úr en til
stóð, þegar á átti að herða, um
það sáu fóthvatir Víkingar. Eini
„samvinnumaðurinn” í framlín-
unni var Hörður Markan, en
mátti sín lítt fyrir liðsmönnum
„einkaframtaksins”. Allar sóknar
lotur fóru því út um þúfur að
mestu leyti, eða þá að markvörð-
ur Víkings, sem var mjög öruggur,
greip inn í á réttum tíma.
Með sanni má segja, að lið
Vikings kom skemmtilega á ó-
vart, það sýndi óvenjulega mik-
inn baráttuvilja og úthald sem
hvert lið getur verið hreykið af.
Víkingar, sækið fram nú sem
stefnir.
Halldór Bachmann, sem er nýr
af nálinni sem landsdómari dæmdi
leikinn yfirleitt vel — og var
þessi hans fyrsti. — x.
Við birtnm þessa mynd af Þórólfi Beck í því tilefni, að skozku
knottspyrnunni t*r lokið að þessu sinni. Þórólfur lék ekki mikið
með aðalliði Giasgow Rangers í vetnr, en I þau fáu skiptí sem
hann lék með, stð hann sig vel. En samkeppnin er hörð um
sæti í þessu frái'æra liði.
Bob Seagren stekkur 5,32 m. I stangarstökki.
BobSeagren5,32m
í stangarstökki
FRÁBÆR árangur náðist í
Bandaríkjunum um síðustu helgi.
Bob Seagren, 19 ára stúdent frá
Kalifomíu setti heimsmet í stang-
arstökki, stökk 5,32 m. Hann bætti
met Fred Hansens um 5 sm.
en það var frá 1964.
Langhlauparinn Gerry Lind-
gren var aðeins 6/10 úr sek. frá
heimsmeti Clarkes í þriggja
milna hlaupi fékk tímann 12,53,0
mín. Randy Matson varpaði kúlu
21,09 m. John Tushaus setti banda
rískt met í spjótkasti, 86,56 m.
Cantello átti gamla metið, 86,04
m„ sett 1959. John Perry hljóp
880 yds á hinum frábæra tíma,
Bæjakeppni í
knattspyrnu
Bæjakeppni í knattspyrnu fer
fram milli Keflavíkur og Reykja-
víkur á morgun (uppstigningar-
dag) á Melavellinum og hefst kl.
20,30.
1,47,1 mín. og tími Jim Metcalf
var aðeins 1/10 úr sek. lakari. —
Art Walker setti bandarískt met
í þrístökki, 16,56 m. Loks má
geta um bandarískt met Jim Ru-
yn í tveggja mílna hlaupi 8,24,1
mín. Hann er aðeins 18 ára.
Everton varð
bikarmeistari
EVERTON varð enskur bikar-
meistari, en úrslitaleikurinn fór
fram á Wembley á laugardag að
viðstöddum 100 þúsund áhorfend-
um. Sheffield Wed. skoraði eitt
í fyrri hálfleik, en Everton ekk-
ert. í upphafi síðari hálfleiks
bætti Sh. Wed. öðru marki við og
sigurinn virtist nær öruggur. En
Everton menn voru ekki á sama
máli, hinn 19 ára gamli nýliði
í liðinu Mike Trebilcock skoraði
tvívegis og landsliðsmaðurinn De-
rek Temple bætti þriðja markinu
og sigurmarkinu við 12. mín. fyr-
ir leikslok.
ísland vann
USA í tveim
landsleikjum
ÍSLAND sigraði Banda-
ríkin auðveldlega í hand- s
knattleik á laugardag og á
mánudag. í fyrri leiknum
urðu lokatölurnar 26—18
eftir 11—9 í hléi, en í þeim t|
síðari 41—19 eftir 18—9 í»i;
hléi. -Ekki höfum við frétt
nánar um leiki þessa, gang
þeirra eða frammistöðu ein-,
stakra leikmanna, en mun-,
um skýra nánar frá þvl er
liðið kemur heim.
Sundknattleikur/
kl. 20,30 í kvöld
í KVÖLD fer fram í Sundhöí
Reykjavíkur úrslitaleikur í Sund-
knattleiksmeistaramóti íslands,
til úrslita leika Ármann og KR.
Effginn efi er á því að hér verður
um. mikinn baráttuleik að ræða,
þar sem KR hefur nú fullan hug
á að stöðva sigurgöngu Ármanns
sem staðið hefur í 20 ár. Á uiré-
an leiknum verður keppt i þessum
sundgreinum:
400 m. skriðsundi karla !
100 m. skriðsundi karla
100 m. skriðsundi kvenna
100 m. bringusundi kvenna.
Allt bezta sundfólk landsiœ
keppir á mótinu.
Keppnin hefst kl. 20,30.
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12.
SMURSTÖÐIN
Sœtúni 4 — Sími 16-2-27
BfUInn er smurður fljðtt og vel.
Sdjum aUar tegundir af smurolíu
T rúlof unarhringar
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. maí 1966. %%